15.12.1976
Sameinað þing: 32. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (845)

Umræður utan dagskrár

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Ég vil reyna að verða við þeirri ósk forseta að verða stuttorður. En tilefni þess, að ég kveð mér hljóðs hér utan dagskrár í dag, er það að í fréttum íslenska Ríkisútvarpsins í gærkvöld var flutt sú frétt að íslenska ríkisstj. hefði samið við Elkem Spigerverket um byggingu og rekstur málmblendiverksmiðju í Hvalfirði, sem sagt, það hefði þegar verið gengið frá samningum við það auðfyrirtæki um byggingu og rekstur þess fyrirtækis í samstarfi eða sameign við íslensku ríkisstj. Þetta er ekki í fyrsta skipti að fréttir um stórviðburði koma að utan. Það er ekki verið að tilkynna íslendingum hluti sem þessa, þó þeir hafi gerst fyrir nokkrum dögum. Það kemur sem sagt í ljós að nú fyrir nokkrum mínútum var verið að leggja fram frv. um samningana við þetta auðfyrirtæki hér fyrir okkur þm. og að þessi undirritun hefur átt sér stað 8. þ. m, og í dag er 15. des.

Ég leyfi mér að spyrja hæstv. iðnrh. og hæstv. ríkisstj. hvaða nauður hefur rekið ríkisstj. til þess að ganga þannig frá málum við Elkem Spigerverket að Alþ. standi nú fyrir gerðum hlut. Samkv. þessari frétt og samkv. því frv., sem nú hefur verið lagt fyrir okkur þm., hafa verið gerðir samningar milli íslensku ríkisstj. og þessa auðhrings um byggingu og rekstur járnblendiverksmiðju í Hvalfirði án þess að Alþ. hafi verið gefið tækifæri til þess að ræða málið. Sjálfsagt verður þessu plaggi fengið lagalegt gildi með samþykkt eftir á, en það er raunverulega búið að binda 1?endur þm. með því að ganga frá öllum hlutum fyrirfram. Þessi aðferð, að reyna að þrýsta hlutum í gegn eða gera þá fyrir fram, er svo sem ekkert ný. Umr. við Union Carbide var þrýst hér í gegnum þingið á þeirri forsendu að á ferðinni væru ameríkanar sem þyrftu að flýta sér og mættu ekki stansa hér lengi og það þyrfti að hafa málið tilbúið þegar þeir kæmu hér við.

Ýmsar spurningar hljóta að vakna hvernig stendur á því að svona er á hlutum haldið m.a.: Er ríkisstj. hrædd við sinn stóra þingmeirihluta, að hann haldi ekki nema það sé búið að binda hendur hans fyrir fram? Eru þeir hræddir við að svipað gerist og virðist hafa gerst við Eyjafjörð, að þm., þegar þeir höfðu tíma og aðstöðu til þess að athuga málin, þá voru þeir ekki tilbúnir að hanga aftan í slíkri aðgerð sem að byggja álverksmiðju við Eyjafjörð, en eftir því sem mér skilst eru flestir þm. eyfirðinga ekki hlynntir því máli.

Nú getur það líka verið að hæstv. ríkisstj. vilji sem minnstar umr. um þetta mál vegna þess að allstór hópur nábúa þessarar verksmiðju. Þ.e.a.s. verkamenn frá Akranesi, hafa farið út til Noregs og skoðað svipaðar verksmiðjur og byggja á þarna. að hún sé hrædd um að það komi upp upplýsingar um hvað eigi að fara að gera þarna í nágrenni Akraness og hvað eigi að fara að bjóða akurnesingum og öðrum íslendingum, við hvaða aðstöðu eigi þar að bjóða þeim að vinna.

Getur það verið að hún sé líka hrædd við það að bændur og búalið í umhverfi verksmiðjunnar séu í auknum mæli að verða andsnúið þessu fyrirtæki? Eða eru ráðh. kannske hræddir við að umr. skapist um það að skrýtin hafi orðið fyrstu skrefin við framkvæmdir Grundartangaverksmiðjunnar? Hafa þeir kannske vitað um það að hvað eftir annað í útvarpinu nú í hádeginu var auglýst nauðungaruppboð á eignum fyrirtækis þess sem stóð fyrir framkvæmdum á Grundartanga á s.l. ári, og kannske hræddir við að fólk geri sér grein fyrir því að till. og umr. og trú manna á því, að þetta fyrirtæki boði nokkuð gott og sýni rekstralegan hagnað, hafi kannske eitthvað hallast og skekkst þegar litið er til rekstrar þörungaverksmiðju það sem aðalsérfræðingar ríkisstj. hafa staðið að og þar átti að vera stórgróðafyrirtæki, að þarna sé að koma eitthvað svipað upp á teninginn.

Ég lofaði hæstv. forseta því að vera ekki hér langorður. Það hefði þó verið rétt að eyða svolitlum tíma til þess að ræða þetta mál miklu frekar, ekki síst vegna þess hvernig á þessu máli er haldið. En ég vil einnig nota tækifærið til þess að mótmæla þeirri aðferð sem notuð hefur verið til að kynna þetta frv Þm. stjórnarflokkanna og Alþfl. var sent þetta frv. fyrir tveimur dögum. Nú fyrir nokkrum mínútum var verið að leggja það á borð okkar Alþb.þm. og þm. Samtakanna. Hvers lags vinnubrögð eru þetta? Hverju er verið að leyna? Af hverju máttum við ekki sjá þetta? Getur það verið vegna þess að það mátti ekki ræða þetta mál áður en þm. færu heim í jólafrí? Átti að reyna að þrengja þannig að hlutum, að það væri útilokað að málið væri tekið hér til einhverrar umr. áður en við færum heim? Mér virðist allt benda til þess. Og ég vil endurtaka það, að ég mótmæli mjög eindregið þeirri aðferð sem hefur verið höfð í þessu máli, að því skuli hafa verið haldið leyndu fyrir þm. svo lengi, allt frá 8. þ.m., að þessir samningar hafa verið gerðir, og ég mótmæli því að Alþ. skuli réttir þessir samningar undirritaðir og frágengnir af ráðh. Og ég endurtek og spyr: Hvaða nauður hefur rekið til þess að þannig er á málum haldið?