15.12.1976
Efri deild: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

122. mál, stimpilgjald

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það frv. til l., sem hér liggur fyrir til umr., um breyt. á l. nr. 75/1921, um stimpilgjald, er flutt í tengslum við hækkað fasteignamat, eins og það frv. sem ég mælti fyrir áðan, um breyt. á lögunum um aukatekjur ríkissjóðs. Þessi tvö frv. fylgjast að vegna breytinga á fasteignamatinu, og varðandi þetta frv. um breyt. á lögunum um stimpilgjald get ég vísað til þeirra almennu athugasemda sem raktar voru áðan um frv. til l. um breyt. á lögunum um aukatekjur ríkissjóðs. Varðandi það, hve mikil þessi hækkun stimpilgjalds verður í einstökum tilvikum, vísast einnig til þess sem var sagt áður. Að öðru leyti þarfnast þetta frv. ekki skýringa.

Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.