19.10.1976
Sameinað þing: 6. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

239. mál, rafmagn á sveitabýli

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Hæstv. ráðh. gat þess áðan að honum hefði tekist að útvega fé til raforkuframkvæmda. Það var gert með því að hæstv. ráðh, tilkynnti orkuráði, sem ég á sæti í, að hann hefði ákveðið að taka úr Orkusjóði fjármuni til þess að geta lagt línur heim á sveitabýli, aðallega til rafhitunar. Ég veit ekki til þess að þetta hafi gerst áður, að Orkusjóði væri ráðstafað á þennan hátt, en ég ætla ekki að gera aths. við það. Hitt þykir mér dálítið einkennilegt, að þessi aðgerð kemur ekki fyrr en nú í haust, þegar svo mjög er liðið á árið og vitað er að framkvæmdir geta orðið erfiðar af veðurfarsástæðum þá mánuði sem eftir eru af árinu. Þarna sýnist mér að skort hafi yfirlit og fyrirhyggju. Þessi upphæð hefði átt að vera á fjárlögum ársins.

En það er sitthvað fleira, sem ég hef séð af plöggum og fengið í þessari stofnun sem ég á sæti í, Mér hefur sýnst að það skorti 190–200 millj, upp á það að Rafmagnsveitur ríkisins fái á þessu ári fjármagn sem er algerlega óhjákvæmilegt í endurbætur og viðbætur á eldri veitum. Þar koma mörg atriði til, og vanræksla á þessu sviði, sem orðið hefur í sumar, getur haft mjög alvarlegar afleiðingar þegar á næsta vetri. Það hefur ekkert verið lagt fram til stofnlínu frá Kröflu til Austurlands, sem er ákaflega veigamikið atriði og átti að vera þáttur í Kröfluvirkjuninni. Þessi stofnlína átti að vera tiltæk um leið og virkjunin tæki til starfa, vegna þess að austfirðingar þurfa á mikilli raforku að halda. Við vitum ekki annað enn þá en að þeir þurfi fyrst og fremst raforku til að hita híbýli sín. En ég tek eftir því að í fjárl. fyrir næsta ár er ekki einn eyri að finna til þessarar línulagnar. Þarna hefur sem sé skort yfirlit og fyrirhyggju frá hæstv, ráðh., og ég vil vekja athygli á þessu til þess að hv. fjvn. geti skoðað þessi raforkumál gaumgæfilega í sambandi við gerð fjárl. fyrir næsta ár, svo að þau vandræði, sem orðið hafa á þessu sumri vegna fyrirhyggjuleysis, endurtaki sig ekki.