15.12.1976
Efri deild: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (865)
13. mál, skipan dómsvalds í héraði
Frsm. (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Það er það sama um þetta frv. að segja og þau tvö frv., sem hér hafa verið til meðferðar næst á undan þessu, að allshn. hefur rætt þetta frv. á fundum sínum og mælir með því að það verði samþ„ með þeim fyrirvara þó að einstakir nm. áskilji sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.