16.12.1976
Neðri deild: 24. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (918)
100. mál, söluskattur
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Það er nú fyrst ástæða til þess að þakka hv. þm. Lúðvík Jósepssyni fyrir umhyggju þá sem hann ber fyrir Framsfl. (Gripið fram í.) Ég tek það bókstaflega sem hann segir, af því að ég þekki hann.
Ég get alveg fallist á það að framsóknarmenn megi gjarnan kallast fulltrúar fólks úti á landi. En hitt vil ég í leiðinni minna hann á, að Framsfl. á nú jafnmarga kjörna fulltrúa hér í Reykjavík og Alþb. Framsfl. á líka jafnmarga fulltrúa kjörna í Reykjaneskjördæmi og Alþb. Þetta er rétt að hafa líka í huga.
Viðvíkjandi þessu máli annars vil ég segja það, að mér fannst hv. þm. Lúðvík Jósepsson leggja fullmikla áherslu á öryggi þessa tekjustofns í úthlutun. Það hefur í raun og veru aldrei verið neitt öryggi bundið við þetta, vegna þess að lögin, sem bæði hafa ákveðið tekjustofninn og úthlutunina, hafa alltaf verið samþykkt til eins árs í senn, svo að það hefur alltaf verið komið undir vilja Alþ. á hverju ári hvernig það hefur viljað haga þessu máli. Nú má að vísu segja að sú breyting sé gerð — það er alveg rétt — að tekjustofninn sé fastákveðinn til lengri tíma. Úthlutunin er eftir sem áður komin undir vilja Alþ. á hverju ári og fer eftir fjárl. En áður hafði Alþ. það í sinni hendi, ef það hefði viljað og ef það hefði verið skoðun þess að fella niður bæði tekjuöflunina og úthlutunina. Brtt. meiri hl. gengur út á að fella þau niður frá áramótum, þau áttu að falla niður, eins og hv. þm. sagði við lok febrúarmánaðar. Það var, eins og kom fram í aths. með þessu frv., upphaflega ætlunin að flytja annað frv. um úthlutunina sem hefði þá verið eins konar framlenging á þeim ákvæðum laganna sem nú gilda, sem fjalla um úthlutunina, og það hefði sennilega eðli málsins samkv. ekki getað gilt nema til eins árs eins og áður. En að athuguðu máli þótti eðlilegra að setja ákvæði um það í fjárlög, þar sem tekjustofnarnir koma inn í þau, setja þá líka þar ákvæði um ráðstöfun fjárins frá ári til árs eins og gert hefur verið.
Það er alveg rétt, að ef miðað er við að það sé tryggt að hægt sé að veita bæði einstaklingum og rafmagnsveitum sams konar greiðslur og s. l. ár, þá mun væntanlega þurfa upp undir 700 millj. til þess. Það er sú áætlun, sem viðskrn. hefur gert. En sú fjárhæð leyfir naumast hækkun frá því sem verið hefur til einstaklings eða rafmagnsveitu. Þetta eru staðreyndir sem rétt er að menn hafi í huga og verða að hafa í huga við afgreiðslu fjárl. því að þar er þessu ráðstafað.
Það er alveg laukrétt, sem hv. þm. Lúðvík Jósepsson tók fram, að það hefur orðið hækkun á olíunni og þetta þyrfti að vera hærra í krónutölu en það var í fyrra ef það ætti að hafa sama gildi. En það verða þá þm. að gera upp í sambandi við afgreiðslu fjárl. og verja þá lægri fjárhæð til þeirra annarra þarfa sem gert er ráð fyrir að þessu gjaldi sé varið til. Það er rétt að þetta hefur verið markaður tekjustofn til markaðra útgjalda, má segja. En það er líka gert ráð fyrir því í fjárlagafrv. og verður væntanlega kveðið skýrar á um það í því og örugglegar, að þessu fé sé varið til ákveðinna þarfa, fyrst til niðurgreiðslna þeirra, sem þurfa að búa við olíukyndingu, og annars vegar til Orkusjóðs, afganginum í raun og veru til Orkusjóðs. Það er ekki gert ráð fyrir því að þetta fé renni beint til ríkissjóðs, heldur í Orkusjóð til ákveðinna þarfa. Og þar er áreiðanlega um þarfir að fjalla sem fólkið úti á landi, jafnvel á Austfjörðum líka, hefur mikinn áhuga á. Ég hygg að það fari vænn skammtur af þessari fjárhæð til jarðborana og jarðhitaleitar, og það vill nú svo til að víðs vegar um landið er mjög mikill áhugi á því að fá slíka jarðhitaleit framkvæmda. Og það er ekki óeðlilegt, vegna þess að reynslan hefur sýnt að menn hafa fundið jarðhita með þeirri kunnáttu, sem þeir hafa nú, og tækjum þá finna menn og hafa fundið jarðhita á ýmsum stöðum þar sem menn reiknuðu alls ekki með því áður. Og það er afskaplega eðlilegt að menn hafi mikinn áhuga á því að láta kanna þetta, því að það er auðvitað ekki um það deilt að þetta er mikið hagræði fyrir menn, ekki aðeins kostnaðarlega, heldur og að ýmsu öðru leyti, að fá varmaveitur þar sem því verður við komið. En þar sem jarðhiti hefur nú fundist og er fyrir hendi er reynt að ráðast í hitaveitur og auðvitað eru vanefni víða fyrir hendi í sambandi við það, og það er rétt að úr þeirri þörf hefur verið reynt að bæta með lántökum og byggja þessar hitaveitur upp á þeim grundvelli, og það er út af fyrir sig góð framkvæmd vegna þess að þær borga sig. En það þarf þó að hafa fjármagn fyrir hendi og útvega lánsfjármagn til þess. Ég hygg að vænum hluta af þeim afgangi, sem verður af þessu 1% þegar tekið hefur verið frá til þess sem ég hef minnst á, verði einmitt varið í þessu skyni, lána til stofnkostnaðar við hitaveitur.
Ég skil vel umhyggju hv. þm. fyrir því fólki sem verður að búa við olíukyndingu. Það er alveg rétt, að það á í erfiðleikum, og það er ekki deilt um það, að aðstaða þess er erfiðari að þessu leyti til, að það býr við dýrari kyndingu, dýrari hitun húsa. En ég held að það sé líka nokkurs virði fyrir það fólk að fá að eygja von um að það geti þó hugsanlega fengið hitaveitu síðar, a. m. k. verði einskis látið ófreistað í því skyni að kanna hvort ekki sé fyrir hendi jarðhiti þar í grennd sem möguleiki sé á að beisla. Og við vitum að það eru fjölmargar hugmyndir á leiðinni um framkvæmdir í þessu efni, sjálfsagt það miklar að það verðar erfitt og kannske óframkvæmanlegt að fullnægja öllum þeim óskum í einu vetfangi. En það er hér eins og oft endranær, að menn verða að velja og hafna, velja á milli þess hvort þeir vilja ýta undir þessar framkvæmdir með þessum hætti, sem hér er nú gert ráð fyrir, eða meta hitt meir að reyna að bæta að fullu þann mismun sem er á hitunarkostnaðinum.
Þó að hitunarkostnaður þeirra, sem búa við olíukyndingu, sé ekki bættur að fullu almennt séð, þá er þar þó um að ræða umtalsverðan styrk sem þeir fá. Ég hygg líka að það leiði af úthlutunarreglunum, þar sem styrknum er úthlutað eftir fjölskyldustærð, að þeir sem maður verður almennt að ætla að eigi við erfiðasta aðstöðu að búa, það séu fá tilvik þar sem þeir fái ekki verulegar greiðslur af þessu fé.
Ég vildi aðeins láta þetta koma fram af því að mér fannst hv. þm. Lúðvík Jósepsson ekki taka nægilegt tillit til þessara hliða á málinu, ef ég má segja svo, en undirstrika enn á ný að það er ekkert nýtt nú, úthlutunin hefur alltaf þurft hingað til að ákveðast frá einu ári til annars. Auðvitað getur hann og aðrir hv. þm. komið að sínum brtt. um þetta efni í sambandi við fjárl., alveg eins og hann hefði getað gert í sambandi við venjulegt lagafrv.