20.10.1976
Efri deild: 5. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

26. mál, útvarpslög

Flm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Við hv. 5. þm. Norðurl. e., Stefán Jónsson, höfum leyft okkur að endurflytja frv. um breyt. á útvarpslögum, þ.e.a.s. að í stað fyrri málsl. síðustu mgr. 15. gr. l. komi: .,Í reglugerð má ákveða að þeir. sem njóta tekjutryggingar samkv. l. nr. 67/1971, verði undanþegnir afnotagjöldum. Rn. skal auglýsa eftir umsóknum samkv. þessari heimild, þannig að allir eigi jafnan kost á undanþágum þessum, hvar sem þeir búa á landinu.“

Ég flutti allítarlega framsöguræðu fyrir þessu frv. okkar í fyrra og sé ekki ástæðu til þess að fara eins náið út í það nú. Ástæðurnar eru ærnar. Kjör aldraðra og öryrkja eru yfirleitt lakari og þrengri en annarra þjóðfélagshópa þó að margt hafi þar horft í rétta átt og vel tekist, og nú hygg ég að það sé samdóma álit allra að það sé þörf alhliða stórsóknar til að gera þessu fólki lífið léttbærara. Tekjutryggingin; sem komið var í lög árið 1971, var e.t.v. einhver merkasta úrbót sem þetta fólk hefur fengið, vegna þess að þar voru þeir lakast settir færðir verulega upp á við. Það þarf ekki að rekja það hvernig verðbólgan hefur leikið þetta fólk. Enga hefur hún leikið eins illa. Sparifé þess hefur á einni nóttu rýrnað um tugi prósenta með þeirri algildu lækningaaðferð sem beitt er jafnan í okkar efnahagsmálum sem gengislækkun nefnist, og við vitum einnig að vegna þess að grunnurinn, sem reiknað er út frá hjá þessu fólki, er enn svo lágur sem raun ber vitni, þá fer ekki hjá því að prósentuhækkanirnar vega minna, þó að þær séu jafnháar og almenn hækkun launa í landinu. Það er því áreiðanlegt að fólk, sem hefur aðeins tekjutrygginguna í dag, er ekki ofhaldið í kjörum Þetta má bæta á margan veg, en það kemur mjög til greina að leita leiða til þess að létta útgjöldum af þessu fólki, og frv. er einmitt af hálfu flm. smáspor í þá átt.

Skylduútgjöld aldraðra og öryrkja eru óhjákvæmileg, útgjöld sem þeir hljóta að verða að taka á sig. Ég hef áður minnt á það við nokkur tækifæri hve þungbær útgjöld þessa fólks eru á þeim svæðum sem ég kalla „köldu svæðin“ og á þar við olíukyndikostnaðinn. Þetta fólk býr oft í stóru og óhentugu húsnæði. Ég hef dæmi um það nú nýlega frá öldruðum hjónum austur á landi að útgjöld þeirra munu að öllum líkindum fara upp í 160 þús. kr. af þessum völdum á árinu, þrátt fyrir það að olíustyrkurinn sé dreginn frá. Þau búa að vísu í mjög stóru húsnæði sem þau eiga erfitt með að losa sig við, og auk þess er húsinu vitanlega ekki nógu vel við haldið. En þetta er engu að síður satt dæmi. Og slík dæmi um ýmis úfgjöld þessa fólks væri hægt að nefna miklu fleiri.

En aðalástæðu fyrir því að við erum með frv: flutning af þessu tagi, til viðbótar því sem ég hef áður sagt, er sú, að hér er um að ræða rýmkun á núgildandi heimild til þess fólks sem fær uppbót ofan á tekjutrygginguna vegna sérstaklega erfiðra aðstæðna. Við teljum sem sagt að ef við færum þetta í það form sem gert er ráð fyrir í frv., þá séum við í raun og veru að færa þetta á þann veg sem ætlast var til þegar undanþágan var sett. Þá var uppbót á venjulegan lífeyri í raun og veru mjög hliðstæð því sem nú er gagnvart því fólki sem er á tekjutryggingunni. En reglugerðartúlkunin í dag er ótvíræð um það að tekjutryggingarfólkið skuli ekki fá þetta, heldur aðeins það fólk sem fær uppbót ofan á tekjutrygginguna. Ég hef tekið eftir því víða úti á landi að þar er þessi uppbót ákaflega óalgeng, og ég held að ég fari rétt með að hún sé um það bil þrisvar sinnum óalgengari, miðað við íbúafjölda, úti á landsbyggðinni, a.m.k. í mínu kjördæmi, heldur en hér í Reykjavík. Þetta stafar m.a. af því, að þegar fólk hefur náð því marki að komast í tekjutrygginguna, þá hefur það ekki fengið nógu góðar upplýsingar og ekki sótt sinn rétt til uppbótar, því að ég hygg að það sé ekkert betur statt eða betur á vegi komið, það fólk sem er úti á landsbyggðinni, heldur en aldraða fólkið hér í Reykjavík. Fólkið hér hefur aðeins betri upplýsingar um þetta. Það eru fleiri aðilar sem hér leiðbeina því, m.a. frá borgaryfirvöldum hér, sem gera töluvert í því að upplýsa þetta fólk, til viðbótar við það að Tryggingastofnunin heldur uppi miklu betra upplýsingakerfi enn þá hér í Reykjavík heldur en úti á landi, þó að ég viðurkenni einnig að upplýsingar frá Tryggingastofnun ríkisins um rétt fólksins hafa farið mjög batnandi og hafa verið stórauknar.

Það þarf, held ég, ekkert að deila um það hve fjölmiðlarnir eru mikilvægir fyrir þetta fólk sem oft lifir í tiltölulega mikilli einangrun, stundum sem gleymt af sínu samfélagi og reyndar af sínum nánustu einnig. Þess vegna er það álit okkar flm. að þetta fólk eigi að njóta þessara fjölmiðla án þess að greiða fyrir það töluvert tilfinnanlegan hluta af sínum árslaunum.

Við flm. höfum ekki um það tiltækar upplýsingar, hve mikill fjöldi það er sem mundi njóta þessarar undanþágu til viðbótar ef heimild fengist. Við teljum sjálfsagt að það sé athugað áður en þetta frv. yrði samþykkt, ef við yrðum svo heppnir að fá það samþykkt. Og þá kemur vitanlega alltaf upp spurningin um þá misnotkunarhættu sem á þessu er. Við gerum okkur það alveg ljóst, flm., að þarna er nm misnotkunarhættu að ræða. Það er falað um fólk sem getur notið þessara fjölmiðla hjá sínum. Við bendum auðvitað á að þessi misnotkunarhætta er alveg eins til staðar í dag fyrir fólk sem fær uppbót ofan á tekjutrygginguna, þó að hún hafi að vísu nokkuð aukist með auknum fjölda. En misnotkunarhættan er viða, og ef við ættum að setja þar undir lekann alls staðar, þá er ég hræddur um að fá réttlætismál kæmust í gegn eða hefðu komist í gegn, ef við værum alltaf með stöðugan ótta við það. Við reiknum með því að í reglugerðinni verði sett nánari ákvæði um þetta, og við höfum ekkert að athuga við það, þó að ákvæðin verði þrengd þar og reynt að sjá til þess að um misnotkun verði ekki að ræða, siður en svo. En við viljum hins vegar fá mikla breytingu á þessu frá núgildandi skipan, þannig að sem allra flest af þessu fólki njóti þessarar undanþágu.

Þá er komið að einu veigamiklu atriði sem við höfum tekið fram í okkar grg. Það er um tekjutap viðkomandi stofnunar, en í þeirri stofnun er mjög oft borið við lélegum fjárhag, og ég skal ekki rengja þá ágætu stofnun um það að hún sé illa á vegi stödd fjárhagslega. En við tökum það einnig fram, að verði talið að um mikið tekjutap verði að ræða hjá viðkomandi stofnun, þá sé sjálfsagt af hálfu okkar að reyna að finna þar á einhverja lausn, og við mundum fúslega styðja það og þætti ekkert óeðlilegt við það, þó að þar væri e.t.v. einhverju bætt ofan á okkur sem betur þolum þessi gjöld.

Það þykir e.t.v. einhverjum einkennilegt að rn. skuli auglýsa eftir umsóknum samkv. þessari heimild, eins og í frv. segir, þannig að allir eigi jafnan kost á undanþágum þessum, hvar sem þeir búa á landinu. En þetta höfum við flm. sett inn vegna þess að við þekkjum þess mörg dæmi hvað fólk er undarlega ófrótt enn þá um rétt sinn. Besta sönnunin fyrir því er einmitt það sem ég sagði áðan um það, að víða úti á landi sækir fólk alls ekki eins vel þennan rétt sinn og t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu.

Ég sé ekki ástæðu til að gera þessu máli frekari skil. Þetta er einfalt mál í sniðum og þarf eflaust að athuga vel í meðferð n., kanna hvaða áhrif þetta hefur, ekki síst fyrir þá stofnun sem er verið að ræða um, Ríkisútvarpið Ég er þó alveg viss um það, að þegar þessi undanþága var sett, þá var átt við að miklu leyti það fólk sem í dag er svokallað tekjutryggingarfólk. Þar af leiðandi erum við í raun og veru aðeins að færa þetta á þann veg sem ætlunin var með þessari undanþágu í upphafi. Ég þekki svo aftur mörg dæmi um það hve illa gengur fyrir fólk að fá dæminu snúið við ef einhver þess nánasti hefur verið svo góður að kaupa handa því sjónvarpstæki og það síðan verður að borga af þessu sjónvarpstæki, að fá þar nafnaskipti á. Ég hef eitt dæmi um það austan frá Seyðisfirði þar sem eru öldruð hjón sem bæði hafa uppbót ofan á venjulega tekjutryggingu. Dóttir þeirra er öryrki með uppbót ofan á venjulega tekjutryggingu. Og af því að sonur þeirra slysaðist til þess að gefa þeim sjónvarp á sínum tíma, maður sem er reyndar alltaf fjarverandi úti á sjó og nýtur þessa sjónvarps ekki, heldur þetta fólk, þá er títilokað af hálfu þessarar ágætu stofnunar að fá nafnbreytingu hér á. Það er verið að svindla, segja þeir uppi í Ríkisútvarpi, þegar komið er með þetta mál. Þarna geta því komið upp einnig ýmis dæmi sem væri full þörf á að athuga frekar.

Ég vísa svo aðeins til grg. okkar, niðurlags hennar, þar sem segir að samfélagið eigi að koma til móts við þetta fólk þar sem þess er kostur á þeim sviðum þar sem þörfin er brýn. Allt, sem þokar burtu á einhvern hátt einmanaleik allt of margra úr þessum hópi, telst til brýnustu samfélagsþarfa þessa fólks. Því er lagt til að heimild þessi verði rýmkuð svo að fleiri njóti góðs af. Ég veit að þetta frv. mun út af fyrir sig eða meginhugsun þess eiga sér góðan hljómgrunn hér í hv. d., og að lokinni þessari umr. leyfi ég mér að óska þess að frv. verði vísað til hv. menntmn.