17.12.1976
Neðri deild: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (969)

56. mál, launaskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Virðulegi forseti. Á þskj. 58 er flutt frv. til l. um breyt. á lögum nr. 14 frá 15. mars 1965, um launaskatt. Með lögum nr. 14 frá 1965 um launaskatt var lagður 1% skattur á launagreiðendur af greiddum vinnulaunum. Með lögum nr. 94/1970 var ákveðið að innheimta 11/2% til viðbótar af launaskattsstofni og skyldi sú viðbót gilda frá 1. des. 1970 til 31. ágúst 1971. Þessi viðbótarskattur var síðan framlengdur fjórvegis með tímabundnum lagaákvæðum, þannig að í reynd var innheimtur 21/2% launaskattur á tímabilinu frá 1. des. 1970 til 1. apríl 1974. Með lögum frá 1974, nr. 10, var hinn fasti launaskattur hækkaður úr 1% í 2%, en jafnframt ákveðið í 18. gr. laganna, að 11/2% álagið skyldi innheimt áfram frá 1. apríl 1974 til ársloka þess árs. Þessi viðbótarskattur hefur síðan verið framlengdur með tímabundnu lagaákvæði, síðast með lögum nr. 74/1975. Hefur því verið innheimtur 31/2% launaskattur frá 1. apríl 1974.

Með frv. þessu er lagt til að sami háttur verði hafður á um innheimtu launaskatts árið 1977 og verið hefur frá 1. apríl 1974 og verði skatturinn 31/2%, þar af renni 2% til Byggingarsjóðs ríkisins, en 11/2% til ríkissjóðs.

2. gr. þessa frv. er samhljóða 2. gr. laganna frá 1975 og felst í henni að hlutur Byggingarsjóðs ríkisins í kostnaði við álagningu og innheimtu skattsins verði óbreyttur frá því sem verið hefur.

Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1977 eru tekjur af launaskatti áætlaður í samræmi við ákvæði frv. þessa, en þar sem hér hefur enn ekki verið tekin endanleg ákvörðun um þennan launaskatt er talið eðlilegt að framlenging eigi sér aðeins stað um eitt ár.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.