17.12.1976
Efri deild: 25. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (995)

100. mál, söluskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Með frv. þessu er lagt til að söluskattsauki samkv. söluskattslögum verði hækkaður um 1%. Jafnhliða er lagt til að felld verði úr gildi lög nr. 9 27. febr. 1976, um ráðstafanir til þess að draga úr áhrifum olíuverðhækkana á hitunarkostnað. Fellur þá niður hið svonefnda olíugjald, sem nemur nú 1% á söluskattsstofn. Breyting sú, sem í frv. felst, hefur því hvorki áhrif til hækkunar né lækkunar á skattlagningu vöru og þjónustu. Breytingin er gerð til einföldunar og hagræðis, en þeim tekjum, sem komu af olíugjaldinu og gengu til að draga úr áhrifum olíuverðhækkunar á hitunarkostnað íbúða, bæði beint og óbeint, er nú ætlað að ráðstafa í framtíðinni á fjárl. hverju sinni.

Í frv. til fjárl. fyrir árið 1977 er lagt til að 600 millj. kr. verði varið til beinna styrkja til þeirra aðila sem nota olíu til hitunar íbúða sinna. Þar er einnig lagt til að 1000 millj. kr. renni í Orkusjóð til að hraða hitaveituframkvæmdum og raforkuframkvæmdum vegna hitunar íbúða og til að standa undir skuldbindingum sjóðsins að öðru leyti.

Við 3. umr. fjárlaga mun verða lagt til að í stað 600 millj. kr. til styrkja verði sú tala hækkuð í 700 millj. kr.

Frv. þetta felur þannig fyrst og fremst í sér formbreytingu um olíugjaldið svonefnda, sem ekki er talið með ríkistekjum, heldur litið á það sem tímabundna ráðstöfun fjár til að milda áhrif olíuverðhækkunarinnar 1973 og eftirleiks hennar. Nú er hins vegar með öllu ljóst að þeim vanda, sem hlýst af hækkun orkuverðs í heiminum, verður hér á landi best mætt með því að efla hitaveituframkvæmdir og aðrar hagkvæmar innlendar orkuframkvæmdir. Af þessum ástæðum er nauðsynlegt að efla fjárhag Orkusjóðs til þess að greiða fyrir fjármögnun þessara framkvæmda. Hér er ekki um tímabundið viðfangsefni að ræða og því langeðlilegast að stíga það skref, sem hér er lagt til, með því að viðurkenna olíugjaldið sem ríkistekjur í stað þess að hafa það eins og milli vita.

Eins og ég gat um áðan, er þegar gert ráð fyrir að meiri hluti fjárins gangi til hitaveituframkvæmda og annarra verkefna Orkusjóðs eða 1 milljarður kr., en samkv. frv 600 millj. — væntanlega 700 millj. kr. til styrkja til þeirra sem hafa hitað hús sín með olíu. Í þeirri tölu er þá gert ráð fyrir að styrkfjárhæð á hvern mann geti hækkað úr 9 500 kr. á þessu ári, m. a. vegna útbreiðslu hitaveitna. Það er eftirtektarvert að síðan 1972 hefur sá hluti þjóðarinnar, sem býr við hitaveitu, aukist úr 45 í 55%, og á næstu árum gæti þetta hlutfall hækkað í á milli 70 og 80%. Þessi nýja grein sparar mikinn innflutning og þar af leiðandi gjaldeyri, og segja má að þetta frv. sé til þess flutt að ríkissjóður geti stuðlað að þessari þróun næstu árin og lagt grunn að framhaldi hennar.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.