16.12.1977
Neðri deild: 32. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)
75. mál, launaskattur
Frsm. minni hl. (Lúðvík Jósepsson):
Hæstv. forseti. Það er svipað að segja um þetta mál og hið fyrra. Við, sem erum í minni hl. fjh: og viðskn., erum þeir sömu og í fyrra máli, þ.e. ég og hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason. Við erum andvígir þessu frv. og ekki hvað síst því ákvæði sem gerir ráð fyrir að þessi launaskattur verði gerður að föstum framtíðartekjustofni ríkisins.
Það er enginn vafi á því, að launaskatturinn að því leyti til sem hann rennur í ríkissjóð, en það er 11/2% launaskattur sem rennur í ríkissjóð, er óeðlilegt gjald og ætti að hverfa og ríkið ætti að afla sér tekna sem þessu nemur eftir öðrum leiðum. Gjaldið var upphaflega lagt á sem bráðabirgðaráðstöfun í sambandi við ákveðnar dýrtíðarráðstafanir sem þá voru á ferðinni, og þetta gjald kom í rauninni í staðinn fyrir hækkun, sem annars hefði orðið á framfærsluvísitölunni, og kauphækkun sem hefði þá orðið samkv. þeirri leið. En nú er svo langt um liðið að það hefði að sjálfsögðu verið rétt að endurskoða þetta gjald og fella það niður.
Ég vil í þessu sambandi minna á það, að Vinnuveitendasambandið hefur gert sérstaka samþykkt sem það hefur beint til fjh: og viðskn. í tilefni af þessu frv. Sambandið leggst eindregið gegn því, að þessi launaskattur verði framlengdur á þann hátt sem hér er gert ráð fyrir. Það er bent á að nú sé verið að gera þetta að föstum og varanlegum tekjustofni ríkisins og því er mótmælt, og að sjálfsögðu benda þeir á að staða atvinnuveganna er í mörgum greinum þannig núna, að engan veginn er réttlætanlegt að halda gjaldi eins og þessu.
Ég efast ekkert um að ríkið hefði mjög auðveldlega getað náð sér inn tekjum sem þessu gjaldi nemur eftir miklum mun sanngjarnari og eðlilegri leið en þarna er farin. En nú virðist stefnan vera sú að segja ekki aðeins, að þetta skuli framlengt út næsta ár, heldur er nú stefnt að því að gera þetta að varanlegum tekjustofni. Það er mjög varhugavert þegar gjöldum, sem lögð eru á til bráðabirgða og gripið er til vegna einhverra sérstakra ástæðna, er smám saman breytt á þennan hátt í varanlega tekjustofna. Satt að segja er ég alveg undrandi að hæstv. ríkisstj. skuli leggja það til nú að ætla að gera þetta gjald einnig að varanlegum tekjustofni með því að afnema öll tímamörk og ganga út frá því, að ríkissjóður hafi þetta sem áframhaldandi tekjustofn um óákveðinn tíma, 11/2% launaskatt.
Ég vil einnig benda á það, að það kom fram í sambandi við síðustu launasamninga að hinn aðili vinnumarkaðarins, þ.e.a.s. verkalýðssamtökin, lýsti sig mjög hlynntan því að þetta gjald yrði afnumið og á þann hátt yrði veitt nokkurt svigrúm til kaupgjaldshækkana. Það hefði svo, eins og þar kom fram, að sjálfsögðu verið opið fyrir ríkissjóð að meta það, hvort hann gat á þennan hátt fallið frá þessu gjaldi eða hvort hann vildi afla sér tekna eftir öðrum leiðum. En afstað hæstv, ríkisstj. virðist vera þessi, að af því að hún hefur einu sinni krækt í svona gjald sé sjálfsagt að halda því endalaust, hvernig svo sem á stendur, og helst af öllu gera hvert svona bráðabirgðagjald, hversu vitlaust sem það er, hvernig svo sem reynslan hefur orðið af hví, að varanlegum tekjustofni og neita að gefa öðrum möguleikum gaum, sæm auðvitað eru margir aðrir fyrir hendi.
Afstaða okkar í minni hl. er sem sagt sú, að við leggjumst gegn samþykkt þessa frv. í þeim búningi sem það liggur hér fyrir.