16.12.1977
Neðri deild: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)

113. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. þetta var lagt fyrir hv. Ed. og var samþ. þar óbreytt. Efni þess er framlenging á 13% verðjöfnunargjaldi af raforku sem hefur verið í gildi um skeið og gildir til loka þessa árs og fer frv. fram á að það verði framlengt fyrir árið 1978.

Þetta gjald var lagt á til að bæta fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins. Nú hefur það gerst, að Orkubú Vestfjarða hefur verið stofnað samkvæmt lögum sem samþ. voru á Alþ. vorið 1976. Við frekari undirbúning þess máls og rækilega athugun á fjárhagsgrundvelli Orkubúsins og eignum og skuldum orkuveitna á Vestfjörðum og Rafmagnsveitna ríkisins einnig á Vestfjörðum þótti einsýnt, að til þess að Orkubú Vestfjarða fullnægði þeirri meginforsendu að vera rekið á traustum fjárhagsgrundvelli yrði að ætla Orkubúinu hluta af verðjöfnunargjaldi raforkunnar. 20% eða fimmtungur gjaldsins var sú upphæð sem till. var gerð um að lokinni þessari ítarlegu athugun á fjárhagsgrundvelli. Þetta var sumpart miðað við eignir Rafmagnsveitnanna á Vestfjörðum og við eignir Rafmagnsveitnanna í heild, enn fremur þann halla sem Rafmagnsveiturnar höfðu haft af rekstri á Vestfjörðum miðað við aðra landshluta. Á fyrri hluta þessa árs, þegar þessi mál voru í undirbúningi, var samþykkt af ríkisstj. að áfram skyldi haldið undirbúningi að stofnun Orkubúsins, m.a. á þeim grundvelli, að Orkubúið fengi 20% af verðjöfnunargjaldinu.

Á þessum grundveill var síðan unnið áfram að þessu máli. Seinni hluta ágústmánaðar var haldinn stofnfundur Orkubúsins á Ísafirði og þetta ákvæði m.a. sett í stofnsamning sem síðan var í haust staðfestur formlega og endanlega af ríkisstj. Þar er svo ákveðið, að ríkisstj. muni beiti sér fyrir því, að Orkubú Vestfjarða fái 20% af verðjöfnunargjaldi af raforku.

Í þessu frv. er því sú breyting frá gildandi lögum, að Rafmagnsveitur ríkisins skuli fá 80% af tekjum af verðjöfnunargjaldi og Orkubú Vestfjarða 20%.

Ég vænti þess, að þetta frv. fái hér góðar undirtektir eins og í hv. Ed., en þar mælti iðnn. öll með samþykkt frv.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv, iðnn.