16.12.1977
Neðri deild: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

113. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ekki er gert ráð fyrir að þessi ákvörðun hafi nein áhrif á rafmagnsverð Rafmagnsveitna ríkisins.

Það var annað atriði en verðjöfnunargjaldið sem mjög kom til athugunar í sambandi við stofnun Orkubúsins, og það var hvernig eignayfirtöku Orkubúsins skyldi háttað, bæði varðandi orkuveiturnar á Vestfjörðum og eignir Rafmagnsveitnanna og þá einnig hvernig færi um skuldir. Eftir athugun sérfræðinga á þessu máli varð niðurstaðan að til þess að fjárhagsgrundvöllur væri sæmilega traustur undir Orkubúinu gæti það aðeins tekið hluta af skuldum Rafmagnsveitna ríkisins á sig, og þegar miðað var við uppgjör í árslok 1975 var gert ráð fyrir að Orkubúið tæki á sig 500 millj. af skuldum Rafmagnsveitnanna, en um 800 millj., sem eftir stæðu, kæmu ekki til Orkubúsins. Þessar tölur hafa breyst við framreikning síðan, en hins vegar felst það í samþykkt ríkisstj. um þetta mál, að rekstur og afborganir af þeim skuldum, sem eftir verða og ekki flytjast yfir til Orkubúsins, skuli greiða úr Orkusjóði eða af öðrum tekjustofnum orkumála. Ekki er gert ráð fyrir því, að afgangurinn af þessum skuldum verði áfram á vegum Rafmagnsveitna ríkisins.

Ég vil því svara fsp, hv. þm. á þá leið, að ég lít ekki svo á, að þetta hafi nein áhrif á rafmagnsverð hjá Rafmagnsveitum ríkisins.