17.12.1977
Sameinað þing: 33. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)
106. mál, fjáraukalög 1975
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Frv, það til fjáraukalaga fyrir árið 1975, sem hér liggur fyrir á þskj. 123, er samið af fjmrn. skv. till. yfirskoðunarmanna Alþingis eins og fram kemur í ríkisreikningi fyrir árið 1975.
Leitað er heimildar fyrir öllum umframgjöldum að undanskildum Alþingiskostnaði, skipt eftir rn., en hér er sami háttur hafður á og verið hefur á liðnum árum.
Eins og fram kemur í þskj. nemur heildarfjárhæð frv. tif fjáraukalaga fyrir árið 1975 11 milljöðrum 188 millj. 340 þús, kr. Skiptist fjárhæðin á öll rn. að undanskildu fjmrn., en gjöld þess rn. urðu 38 millj. 172 þús. kr, lægri skv. ríkisreikningi en skv. fjárl. Skýring þess er fyrst og fremst sú, að í fjárl. var gert ráð fyrir fjárveitingu til ráðstafana í kjara- og verðlagsmálum að fjárhæð 500 millj. kr. Í ríkisreikningi var ekki fært sérstaklega á þennan lið, heldur koma gjöldin fram hjá viðeigandi stofnunum hverri fyrir sig, og er það í samræmi við túlkun laga frá árinu 1966 um uppgjör ríkisreiknings.
Í framsöguræðu minni með frv. til samþykktar á ríkisreikningi fyrir árið 1975 gerði ég grein fyrir stærstu liðum reikningsins. Hér mun ég hins vegar víkja að stærstu frávikum gjaldareiknings og fjárlaga. Við 1. umr. fjárlagafrv. fyrir árið 1977 gerði ég m, a. grein fyrir þessum atriðum og vísaði jafnframt í grg. ríkisbókhaldsins um afkomu ríkissjóðs á árinu 1975.
Af heildarfjárhæð þessa frv., rúmlega 11 milljörðum, er talið skv. sérstöku yfirliti í ríkisreikningi á bls. 187 að rekja megi 2 milljarða 653 millj. 615 þús. kr. til sérstakra laga og markaðra tekna og þeirri fjárhæð tif lækkunar 1 milljarð og 5 millj. kr, skv. heimild í lögum nr. 11/1975, um ráðstafanir í efnahags- og fjármáfum. Þessar fjárhæðir taka þó ekki til áhrifa ýmissa almennra lagaákvæða um fjárhagslegar skuldbindingar ríkissjóðs sem leiddu til aukinna gjalda frá áætlun fjári., eins og auknu framlög til Tryggingastofnunar ríkisins, uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir og niðurgreiðslur á vöruverði.
Stærstu efnisþættir þessa frv., taldir í ráðuneytaröð, eru þessir:
1. Fræðslumál, menntmrn., 465 millj..488 þús. kr.
2. Uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir og jarðræktarframlög hjá landbrn. 503 millj. 654 þús. kr.
3. Framlag til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins 846 millj. 108 þús. kr., og þar með gjöld Hafrannsóknastofnunar vegna kaupa á Baldri, 396 millj. 820 þús. kr., eða samtals 1 milljarður 242 millj. 926 þús. kr, hjá sjútvrn.
4. Löggæslukostnaður hjá sýslumanna-, bæjarfógeta- og lögreglustjóraembættum 399 millj, 494 þús. kr., og kostnaður við landhelgisgæslu 246 millj. 150 þús. kr., eða samtals 645 millj, 644 þús. kr. hjá dóms- og kirkjumrn.
5. Umframgjöld félmrn., 455 millj. 683 þús. kr., voru nær eingöngu vegna Húsnæðismálastofnunar og Byggingarsjóðs verkamanna.
6. Framlög til Tryggingastofnunar ríkisins námu 2 milljörðum 512 millj. 517 þús. kr, umfram fjárl.
7. Gjöld Vegagerðar reyndust 462 millj, 605 þús, kr. umfram fjárl., og framlög til landshafna 398 millj. 995 þús. kr. umfram fjárl. Þessir tveir liðir samgrn. námu því 861 millj. 600 þús. kr. af umframgjöldum samgrn,
8. Niðurgreiðslur á vöruverði námu 1 milljarði 828 millj., 5 þús. kr, umfram fjárl., og er sú fjárhæð nærri öll umframgjöld viðskrn.
Gjöld vegna vaxta- og verðbótagreiðslna lána námu 1 milljarði 663 millj. 692 þús. kr. umfram fjárl., en aðrir liðir fjárlaga- og hagsýslustofnunar reyndust lægri í ríkisreikningi en fjári., m.a. vegna þess að gjaldfærsla á fjárveitingaliðum til ríkisbifreiða kemur fram hjá þeim stofnunum sem fá af þeirri fjárveitingu.
Ég hef hér talið upp einstaka efnisþætti umframgjalda ríkisreikningsins fyrir árið 1975, samtals að fjárhæð 9 milljarða 579 millj. 211 þús. kr. Aðrar fjárhæðir þessa frv, dreifast á hina ótal liði ríkisreikningsins, og tel ég ekki ástæðu til að rekja þá hér.
Ég vil, herra forseti, leyfa mér, með tilvísun til þeirrar grg. sem ég hef nú gert fyrir fjáraukalögunum, að leggja til að frv. verði vísað til 2, umr. og hv. fjvn. Ég vildi mælast til þess, að hægt væri, áður en þm, færu heim í jólaleyfi, að ljúka afgreiðslu þessa máls og fá fjáraukalögin samhliða ríkisreikningi fyrir 1975 samþ.