17.12.1977
Efri deild: 36. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1407 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)

128. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það varð ekki samkomulag um að framlengja þetta sérstaka tímabundna vörugjald, eins og það heitir, og við, sem skipum minni hl. n., leggjum til að frv. verði fellt. Ástæðulaust er að hafa uppi langar orðræður um þetta mál, sem hefur verið tíður gestur hér á Alþ. seinustu missirin.

Vörugjaldið var fyrst lagt á árið 1975 og átti þá í þess orðs fyllstu merkingu að vera tímabundið, ekki stóð til að það stæði nema út það ár. Þegar svo kom að árslokum sá hæstv. fjmrh. sitt óvænna og taldi sig ómögulega geta séð af því öllu í einu, svo að það var komið með framlengingu, en jafnframt var þess látið getið, að gjaldið félli niður í áföngum á árinu 1976. Enn var því hugsunin sú, að þetta væri raunverulega tímabundið gjald. Ég minnist þess, að í fjh.- og viðskn., sem fjallaði um málið á þeim tíma á vegum Ed., lét ég þá skoðun í ljós, að langeðlilegast væri fyrir hæstv. fjmrh. að sleppa orðinu „tímabundið“, því að ef að líkum léti teldi hann sig áreiðanlega ekki geta misst af þessu gjaldi þegar þar að kæmi, slíkur losarabragur væri á fjármálum ríkisins undir stjórn hæstv. núv. ríkisstj., að hún mundi áreiðanlega halda dauðahaldi í alla tekjustofna sem fælu í sér álögur á almenning, eins og þetta gjald gerir, út í rauðan dauðann. Það fór líka svo. að þegar til átti að taka og feila niður gjaldið, þá var það framlengt. Síðan hefur þróunin verið í gagnstæða átt, því að gjaldið hefur farið hækkandi og er komið upp í 18%. Og nú er lagt til, að þetta sérstaka tímabundna vörugjald sé framlengt til eins árs. Satt að segja þykir mér langmerkilegast að hæstv. fjmrh. skuli ekki leggja til að að þetta sérstaka tímabundna vörugjald verði ótímabundið, vegna þess að það er bersýnilega það sem hann hefur í hyggju.

Á það hefur verið bent, að þetta gjald er mjög óréttlátt vegna þess að það mismunar einstökum starfsgreinum og leggst misjafnlega á hina ýmsu vöruflokka og er að því leyti harla tilviljanakennt, eins og hlýtur að vera um skatt sem aðeins var hugsaður til mjög stutts tíma. Þetta er eitt af þeim gjöldum sem núv. ríkisstj. ber alla ábyrgð á og hefur átt sinn þátt í að magna verðbólguna í þjóðfélaginu. Við, sem skipum minni hl, fjh.- og viðskn., erum því eindregið þeirrar skoðunar, að þetta gjald eigi að hverfa, og leggjum til að frv. verði fellt.