17.12.1977
Neðri deild: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1429 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)

136. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Það er ekkert sérstakt að segja um þetta frv. Það er sambærilegt við frv. um ríkisborgararétt sem lögð eru fram á hverju þingi og hv. þm. kannast við. Þetta er ekkert færibandafrv. Gert er ráð fyrir að það sæti venjulegri og hefðbundinni meðferð og að í meðförum þingsins verði teknir inn í frv. þeir, sem kunna að hafa orðið of seinir fyrir með umsóknir sínar, svo og þeir, sem kunna að fullnægja skilyrðum á því tímabili sem líður frá því að frv. er lagt fram og þangað til Alþ. afgr, það.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.