17.12.1977
Neðri deild: 36. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1466 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

130. mál, skyldusparnaður og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Garðar Sigurðsson:

Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd. — Ég vona að flugmálastjórn hafi aðgang að þessum peningum sem hæstv. ráðh. var að tala um, Ég þekki ekki þær tölur sem hann var að tala um, því að fyrir árið 1977 voru peningar til framkvæmda í flugmálum 378 millj., en þeir peningar, sem koma inn nú til framkvæmda í flugmálum fyrir árið 1978, eru áætlaðir 530 millj. Mismunurinn á því er 152 millj., ekki á fjórða hundrað millj. Ef við eigum að taka flugskýlispeningana með, þá verður fjárveitingin til framkvæmda í flugmálum ekki 530, heldur 600 millj„ og þá verður mismunurinn 222 millj. miðað við árið í fyrra, þar sem fjárveitingar til framkvæmda voru 378 mill j. Það er ekki heldur á fjórða hundrað milljóna.

Það væri kannske ástæða til að bæta nokkru við þetta. En það má öllum vera ljóst, að til framkvæmda í flugmálum um allt land, til öryggismála, til flugvalla o.s.frv., er aðeins um 530 millj. af nýju fé að ræða, sennilega talsvert lægri upphæð en flugstöðin í Reykjavík kostar ein.