17.12.1977
Neðri deild: 36. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1120)

130. mál, skyldusparnaður og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Páll Pétursson:

Virðulegi forseti. Það hefur verið eindregin ósk bændasamtakanna, að felldur yrði niður söluskattur á kjöti og kjötvörum. Ég trúi því ekki að ekki sé hægt að finna sanngjarna leið til að framkvæma þetta án þess að undanbrögð verði veruleg. Ég treysti ríkisstj. fullkomlega til að láta þetta atriði fylgja öðrum sanngjörnum ráðstöfunum sem ég vonast til að hún sjái sér fært að gera í málefnum landbúnaðarins og koma þar á móts við réttmætar og sanngjarnar óskir bændasamtakanna. Ég mun gefa hæstv. ráðh. mínum dýrðina af þessu verki, en ekki hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, og segi því nei