17.12.1977
Efri deild: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1483 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)

130. mál, skyldusparnaður og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég skal vera stuttorður, vegna þess að ég veit að nú fer hv. þm. að svengja. En ég vil þó koma hér nokkrum aths. á framfæri varðandi þetta frv.

Ég tel að sú hugsun að leggja skyldusparnað á hátekjur sé hárrétt, og ég er því samþykkur þeirri grundvallarhugsun sem fram kemur í þessu frv. Hér er ekki verið að leggja byrðar á lágtekjufólk og ekki heldur á fólk með miðlungstekjur, heldur einungis á hátekjumenn, og þegar haft er í huga að þessi byrði felst í því einu að menn eru látnir lána samfélaginu með fullri verðtryggingu 10% af þeim launum sem umfram eru ákveðið tekjulágmark, sem er satt að segja býsna hátt, þá tel ég að það sé fullkomlega sanngjarnt og eðlilegt.

Það er hins vegar svo, að þetta gjald er ekki lagt á alla. Sumir sleppa við að greiða þetta lán til ríkisins. Hv. þm. Jón Sólnes hefur þegar getið um einn hóp sem sleppur undan því að greiða þetta gjald, en þar er um aldraða að ræða, þá sem orðnir eru 67 ára. Færa má rök bæði með og móti því, að þeir séu undanskildir. Ég ætla út af fyrir sig ekki að gera það atriði að umtalsefni. Ég hef minni áhyggjur af því, vegna þess að ég þykist vita að þar sé um tiltölulega litlar upphæðir að ræða samanlagt. Þessi hópur, fólk sem er 67 ára og eldra og hefur þetta miklar tekjur, sá hópur er ekki stór. En ábending hv, þm. er hins vegar út af fyrir sig ekki út í bláinn. Það er í sjálfu sér ekki óskynsamlegt, sem hann segir, að frekar beri að hlífa yngstu kynslóðinni, sem er að koma undir sig fótum, heldur en þeirri elstu, sem væntanlega hefur komið sér sæmilega fyrir, vegna þess að hér er aðeins um að ræða hátekjufólk meðal aldraðra. Hór er ekki verið að níðast á lágtekjufólki í þeirra hópi. En þetta er ekki það sem ég tel mestu máli skipta í þessu sambandi. Þetta er smærra atriði frá mínu sjónarmiði séð. Hitt finnst mér miklu alvarlegra, að stór hluti þeirra aðila, sem mestar tekjurnar hafa, er algerlega undanþeginn þessari skyldu.

Um 3000 aðilar í þjóðfélaginu greiða tekjuskatt og hafa verulegar tekjur, en eru þó gersamlega undanþegnir því að þurfa að gjalda nokkuð til skyldusparnaðarins. Þar á ég við allan atvinnureksturinn í landinu, þann atvinnurekstur sem rekinn er í félagsformi. Tekjur, sem stafa af rekstri sem rekinn er í eigin nafni, lenda í skyldusparnaði, en tekjur, sem félagsrekstur hefur sannanlega, sleppa algerlega. Og þarna er ekki um neinar smáræðisfúlgur að ræða. Ég gæti trúað því, svona fljótt á litið, að ríkissjóður gæti fengið 500–600 millj, kr. í aukinn skyldusparnað með því að leggja þetta einnig á atvinnureksturinn, því þó að atvinnureksturinn sé að vísu að stórum hluta tekjuskattslaus, líklega upp undir helmingurinn af fyrirtækjum í félagsformi sem algerlega sleppur við að greiða tekjuskatt eða greiðir óverulegan tekjuskatt, þá munar þrátt fyrir allt svolítið um það sem hinn hlutinn greiðir, og ég held að það sé alveg ástæðulaust að láta þær tekjur sleppa undan þessum skyldusparnaði og engin ástæða til þess að þetta tekjuskattsákvæði snerti einungis, eins og segir í 1. gr., alla menn sem tekjuskattskyldir eru. Auðvitað á það að snerta alla lögaðila sem geta lent í tekjuskatti.

Ég vil láta þess getið til viðbótar, af því að um þetta er ekki margt fleira að segja og ég mun gera nánari grein fyrir hugmyndum mínum um þetta efni við 2. umr. málsins og þá væntanlega flytja brtt. í þessa átt, en um annað efni frv. vil ég segja það eitt, að ég tel mjög óeðlilegt að hér sé lagt á aukið flugvallagjald sem renni í ríkissjóð vegna margvíslegra útgjalda ríkissjóðs. Ég tel að flugvallagjald eigi að leggja á til þess að hraða uppbyggingu flugvalla í landinu og bæta öryggisbúnað á hinum ýmsu flugvöllum. Miðað við það, hve þörfin á því sviði er gífurleg, tel ég afskaplega óeðlilegt að fjmrh. seilist í þennan tekjulið bara til að fylla einhverjar glufur sem skapast hafa í fjárlagadæminu hjá honum. Ég er sannfærður um að í öllum nálægum löndum, þar sem flugvallagjald er innheimt, rennur það í ákveðna sjóði sem síðan er varið til að bæta flugvelli eða annað það sem snertir flugumferð. Ég er viss um að þetta er einsdæmi, að nú eigi öðru sinni í tíð þessarar ríkisstj, að fara þá leið að leggja skatt á flugumferð án þess að það veiði flugmálum til styrktar. Ég er því mótfallinn þessu ákvæði í óbreyttum búningi.