19.12.1977
Efri deild: 41. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)
98. mál, löndun á loðnu til bræðslu
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að ítreka það, að ég tel, að hér sé um misskilning að ræða eða þá í versta tilfelli bókstaflega verið að leita eftir ágreiningsatriðum. Við skulum hugsa okkur það ástand, sem er nærtækast og sem skapaðist nú fyrir örfáum dögum, að allt geymslurými norðanlands var fullt. Ég vil biðja hv. 5. þm. Norðurl. e. að taka eftir þessu. Fyrir örfáum dögum skapaðist það ástand á tveimur sólarhringum, að allar hafnir norðanlands voru fullar og vísa varð skipunum hingað suður til Reykjavíkur til löndunar. Í slíku tilfelli hefði þá átt að segja við hið umrædda skip, Ísafold: Þú verður að bíða þangað til losnar pláss fyrir norðan. — Verður ekki að landa, þar sem þeir menn, sem með stjórn á þessum veiðum fara, segja skipinu til? Í dag landar þú fyrir austan, góði, á morgun fyrir norðan og þriðji túrinn þinn verður e.t.v. í Þorlákshöfn við Suðurland. Ég held að þeir menn, sem þar halda um stjórnvöl, og reynsla er þegar fengin á því að þeir hafa í góðu samstarf við flotann allan haldið mjög góðu samkomulagi við skipstjórnarmenn um niðurröðun á löndun, ráði hvar landað er. Það getur vel farið svo, að eftir allar vel heppnaðar veiðiferðir þessa skips verði landað fyrir Norðurlandi, ég skal ekkert um það segja, a.m.k. þar sem skipið flýtur að bryggju og löndunarmöguleikar eru fyrir hendi. En að binda það í lagagr., að tiltekið skip megi ekki landa nema í tilteknum landshluta, hygg ég að væri algert einsdæmi í lögum og veit að við nánari athugun sjá menn að þetta er nánast illframkvæmanlegt og út í hött að láta skipið t.d. halda sjó fyrir norðan, vegna þess að hafnir þar eða löndunarmóttaka þar yrði stöðvuð vegna yfirfyllingar á móttökustöðvum. Þetta sér hver heilvita maður að er óeðlilegt og til háðungar fyrir hv. Alþ. að samþ. Mergurinn málsins er að þessari reglu, að skipið fari ávallt og sé ekki að óþörfu a.m.k. fyrir löndun íslenska skipa, bauðst umræddur skipstjóri í viðtölum við mig til að hlíta, fara ávallt á þær hafnir sem minnst ásókn væri í og minnstar líkur væru á að fengju annað hráefni. Þetta veit ég að hlutaðeigendur þessa máls eru tilbúnir að standa við og hlíta í því efni fyrirmælum íslenskra aðila. Ég hygg að það sé algert einsdæmi, að farið sé inn á þá braut að segja í lögum að tiltekið skip, sem hefur leyfi til að veiða í íslenskri landhelgi, megi ekki landa nema í tilteknum landshlutum, Það mun vera algert einsdæmi og hv. Alþ. til lítils sóma. Ég hygg að þær aðstæður gætu skapast, að þetta lagaákvæði yrði með öllu óframkvæmanlegt. Til hvers höfum við þá barist? Ég hef ekki trú á því, að loðnunefnd fari að vísa þessu skipi né öðrum úr veiðiskipahópnum eða þeim skipum, sem hlotnast sú gæfa að fylla sig á einum sólarhring, að vísa þeim vísvitandi til hafnar þar sem mest er beðið eftir löndun eða lengstur biðtími, viljandi eða vitandi vits, heldur muni þeir þjóðarinnar vegna og allra, sem hlut eiga að máli, vísa því til þeirrar hafnar, þar sem það er sem minnst fyrir íslenskum skipum, þar sem þörfin fyrir hráefni er mest og aðstæður raunhæfar til löndunar fyrir þetta skip sem um er að ræða eins og önnur. — Þá tiltrú hef ég á loðnunefnd og starfsmönnum hennar, þar til annað reynist.