19.12.1977
Efri deild: 41. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1491 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)
99. mál, verðlagsmál landbúnaðarins
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Það eru nú orðnar það langar umr. um þetta mál og ég er búinn að tala það mikið, að ég skal ekki bæta miklu við. Raunverulega var það eitt atriði sem kom mér til að biðja um orðið á nýjan leik. En áður en ég vík að þessu atriði vil ég vekja athygli á því, vegna þess sem kom fram við umr. á laugardaginn í Ed., að segja má að mjólkurframleiðslan hafi á s.l. 10–15 árum orðið að meðaltali um 8% umfram innanlandsneyslu, en gert er ráð fyrir að umframframleiðslan verði um 10% á þessu ári, þó að ekki sé það alveg örugg tala. Það mun hafa verið í byrjun síðasta mánaðar sem ég fékk þessa tölu ég hef ekki yngri tölu. Á þessu sama tímabili, eða s.l. 15 árum, hefur um 20% af kjötframleiðslunni verið flutt úr landi. Þessu vildi ég bæta við þær upplýsingar sem ég hef gefið áður í þessum umr.
Ekki skal ég fara að tala um það, hvort ég er skárri landbrh. í þessari stjórn eða fyrri stjórn, þar verður auðna að ráða. Það vill oft verða þannig, að góður er hver genginn, og ég tek þann dóm síðar meir, en nú er ekki hægt að meta þetta.
Ég vil líka endurtaka það sem ég hef áður sagt, að erfiðleikar, sem hefur verið við að fást og voru byrjaðir á árinu 1974, eins og verðhækkanir af völdum olíukreppunnar, hafa náttúrlega verið geysilega miklir á þessum síðustu árum. Áburðurinn hækkaði í verði um 150% á einu ári og rekstrarvörur eftir því. Og mitt mat er það — og ég tel mig hafa skýrt í hv. d. hvað hefur verið gert í þágu landbúnaðarins á síðustu árum mitt mat er nú það, að ef ég hefði þurft að leggja eins mikla vinnu á mig í sambandi við landbúnaðarmálin á árunum 1971–1974 og síðan hefur orðið, þá hefði orðið lítill tími eða erfitt að snúast fyrir fjmrn. Það stafaði af því, að árferði þessi ár var landbúnaðinum miklu hagstæðara en hin síðari árin þegar bæði hafa dunið yfir óþurrkar og hækkun á rekstrarvörum, en allt þetta hefur gert það að verkum, að það veldur þeim erfiðleikum sem við er að fást.
Það, sem ég vil sérstaklega taka fram, er í fyrsta lagi að ég lít svo á að engin stétt á Íslandi sé kúguð. Ég mótmæli því alveg að bændastéttin sé kúguð stétt. Það er fjarri mér að álita slíkt. Hún hefur aldrei verið, síðan ég þekkti til, kúguð stétt. Bændastéttin hefur verið sá burðarás í íslensku þjóðlífi, að slíka stétt er ekki hægt að tala um sem kúgaða stétt.
Svo skal ég bæta því við, að ríkisstj. ákvað á fundi sínum í morgun að taka mál atvinnuveganna sérstaklega til meðferðar í störfum sínum þegar hún hefur betri tíma en nú er þessa síðustu daga þingsins: landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarmál. Það mun verða gert og þá tekin til meðferðar þau mál eins og um þau hefur verið fjallað á hinum einstöku fundum víðs vegar um landið og einstakir þættir skoðaðir í þeim efnum. Ég óskaði eftir till. frá Stéttarsambandi bænda um sumt af því, sem fram hefur komið, og þarf ekki að bæta við það sem ég sagði hér um flutning lagafrv. Það verður ekki gert, nema það sé gert þannig að ég hafi á bak við mig þá sem eiga að njóta laganna, og trygga stöðu hér á hv. Alþingi.
Ég skal svo ekki eyða fleiri orðum að þessari þáltill. Umr. hafa orðið allmiklar. Ég held að þær hafi skýrt málin nokkuð. Ég vona það. En ég vil þó bæta því við, að ég mun reyna að beita mér fyrir því að þeir, sem vinna að endurskoðun framleiðsluráðslaganna, reyni að ljúka þessari endurskoðun í vetur. Ég er ekki bjartsýnni en það. Og ég endurtek, að ég tel það vera brýna nauðsyn að endurskoða framleiðsluráðslögin sem heildarlöggjöf. Þetta er slík löggjöf. Ég treysti því, að af því skilningsleysi, sem hefur verið uppistaðan í ásökunum á landbúnað og bændur, af þeim ósið fari menn að reyna að venja sig og skilningur þjóðarinnar á gildi landbúnaðar fyrir þjóðina í heild fari vaxandi, enda mun henni þá best vegna.