19.12.1977
Efri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1493 í B-deild Alþingistíðinda. (1172)

129. mál, fjáröflun til vegagerðar

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. við frv. til laga, sem hér er á dagskrá, um breyt. á l. nr. 79 6. sept. 1974 um fjáröflun til vegagerðar o.s.frv. Þær eru á þskj. 238 og hljóða svo:

„1. Við 2. gr. Á eftir orðunum „sem nota annan orkugjafa en bensín“ 1. efnismálsgr. komi: öðrum en strætisvögnum.

2. Við 3. gr. Á eftir orðunum „á kostnað eigenda í bifreiðar“ í 1. efnismálsgr. komi: aðrar en strætisvagna.

3. Við 4. gr. Síðari málsl. 2. efnismgr. orðist svo: Skal bifreiðin vera að veði fyrir gjöldum þessum og skal það veð ekki ganga fyrir öðrum veðum.“

Hvað snertir strætisvagna á ég ekki sérstaklega við Strætisvagna Reykjavíkur. Ég vil leyfa mér að benda á að strætisvagnar eru einungis notaðir innan borgartakmarka eða bæjartakmarka, eins og hér á höfuðborgarsvæðinu, í Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík, á götum sem borgarar viðkomandi sveitarfélaga hafa lagt að öllu leyti sjálfir. Hér er um almenna þjónustu við borgarana að ræða til að auðvelda fólki að komast á milli staða til og frá vinnu með þessum vögnum, og er þjónusta þeirra bundin við þær götur sem ég áðan minntist á. Ég endurtek að lagning, viðhald o. fl. á þessum götum, sem vagnarnir aka eingöngu eftir, er ekki fjármagnað af Vegasjóði, a.m.k. ekki hvað snertir höfuðborgarsvæðið, og því tel ég ósanngjarnt að af þeim sé greitt þau gjöld sem hér um ræðir eða skylda almenningsvagna þessarar tegundar til að hafa kostnaðarsama mæla setta í bílana.

Ég vil geta þess að mikill rekstrarhalli er hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, hann er yfir millj. kr. á dag, sem er þungur baggi á Reykjavíkurborg, og er þessi rekstrarkostnaður fyrir utan allan þann fjármögnunarkostnað annan sem kemur beint úr borgarsjóði eða sveitarsjóðum, ef þeir eru með strætisvagna. Ég tel að það sé skylda ríkisstj. eða Alþ. að létta undir með starfrækslu almenningsvagna, en ekki auka skattbyrði þessara fyrirtækja. Því hef ég leyft mér að leggja þessar brtt. fram.

Í 4. gr. segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Þungaskattur, dagsektir og viðurlög hafa lögtaksrétt. Skal bifreiðin vera að veði fyrir gjöldum þessum og skal það veð ganga fyrir öðrum veðum.“ Nú er mér sagt, og kom það fram á nefndarfundum, að þetta sé hefð og standi í lögum, að innheimta opinberra gjalda gangi fyrir öðrum veðsetningum. Ég tel óréttlátt að ríkið skuli hér fótumtroða þann rétt sem þinglesinn er til einkaaðila, ef um veðsetningar er að ræða á viðkomandi tækjum, í þessu tilfelli bifreiðum.