19.12.1977
Efri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)
129. mál, fjáröflun til vegagerðar
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Við fyrri hluta þessarar 3. umr. málsins flutti ég brtt. á þskj. 228 og óskaði eftir því, að afgreiðslu málsins væri frestað, þar sem mér fannst að á frv. væru bersýnilegir hnökrar sem yrði að leiðrétta. Ég benti á það þá, að embættismennirnir í kerfinu hefðu ískyggilega mikla tilhneigingu til þess að koma með innheimtufyrirkomulag og láta lögskipa það sem einungis tæki tillit til þarfa kerfisins, en ekki til eðlilegra hagsmuna og sjónarmiða einstaklinganna sem ættu að bera þessi gjöld.
Í fyrsta lagi taldi ég fráleitt að menn, sem yrðu að þola það að á þá væru lagðar dagsektir, fengju ekki að vita af því, að dagsektir væru byrjaðar að falla á þá. Í öðru lagi taldi ég fráleitt, að ekki væri ákveðið eitthvað um hámark dagsektanna. Og í þriðja lagi taldi ég mjög illt að ákveða ætti annað eðli dagsekta en verið hefði fram að þessu með því að tiltaka það sérstaklega, að innheimta dagsekta félli ekki niður jafnvel þótt sú skylda, sem væri verið að knýja menn til að uppfylla, væri innt af hendi.
Ég er og var þeirrar skoðunar, að grundvallarmunur sé á dagsektum annars vegar og hins vegar refsingum og menn eigi ekki að fara að grauta þessu saman og þar með raunverulega stefna að því að breyta dagsektum í refsingar, sem þær eru ekki lögum samkvæmt.
N. hefur fjallað um þetta og hefur tekið nokkurt tillit til þeirra sjónarmiða, sem ég setti fram, og er ég þakklátur fyrir það. Brtt. hennar gerir ráð fyrir því að hámark dagsekta sé miðað við 30 daga tímabil. Það tel ég strax vera mjög mikilvæga bót frá því sem áður var.
Í öðru lagi fellst n. á að slá því föstu, að hér sé um refsingar að ræða, með því að ræða hér um viðurlög. Ég tel að það sé þó skárra en hafa þetta eins og það var, þar sem þessu var öllu grautað saman, þó að ég hefði auðvitað helst kosið að hetta hefði verið með hinu klassíska fyrirkomulagi dagsekta, sem falla niður ef skyldan er innt af hendi. Ef menn eru alveg ákveðnir í því, að hún skuli alls ekki falla niður, þá er eins gott að hafa það á hreinu að hér sé um refsingu að ræða, hér sé um sekt að ræða eða viðurlög, og það sé þá nefnt sínum réttu nöfnum. Það er þó skárra að nefna hlutina sinum réttu nöfnum heldur en vera að grauta þessu öllu saman.
Þriðja atriðið, sem ég var með, hefur n. hins vegar ekki fallist á, þ.e.a.s. að hverjum og einum sé tilkynnt um að þessi viðurlög séu að falla á hann eða hafi fallið á hann, þannig að hann geti varað sig á þessu. Þegar hámarkið er komið inn í lögin, þá er nú kannske ekki alveg jafnslæmt að tilkynningarskylda skuli ekki vera fyrir hendi. Ég sætti mig því við þetta fyrirkomulag eins og n. hefur gert till. um og leyfi mér því að draga till. mína á þskj. 228 til baka.