19.12.1977
Efri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (1177)
129. mál, fjáröflun til vegagerðar
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Það hefur að vísu gefist skammur tími til þess að athuga þá brtt., sem hér er borin undir atkv., en eftir því sem ég skil þá breytingu, sem hér er gerð á innheimtu þungaskatts, þá er sú breyting, sem felst í uppsetningu mælis, til hagsbóta fyrir strætisvagna með þeim rökum, sem hv. flm. till. tilgreindi áðan, og ég segi nei.