19.12.1977
Efri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1505 í B-deild Alþingistíðinda. (1186)

130. mál, skyldusparnaður og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég vil bæta við fáeinum orðum vegna þeirra aths. sem gerðar hafa verið við þær brtt. sem ég flyt á þskj. 253.

Ég hef ekki miklu við það að bæta sem ég sagði hér áðan um skyldusparnað félaga sem gerð er hér till. um. Ég held, að það sé fullkomlega eðlileg og raunhæf till., og get alls ekki á það fallist, að hugsanlega léleg afkoma fyrirtækja á næsta ári breyti þar einu eða neinu um, því að eins og ég tók fram áðan gildir þetta einungis um þau fyrirtæki sem eru það vel rekin og koma það vel út úr rekstrinum, að þau skili hagnaði, skili tekjum. Hin fyrirtækin, sem standa á sléttu eða eru jafnvel rekin með tapi, koma auðvitað aldrei til greina í sambandi við skyldusparnað.

Ég tel að fyrirtækin hafi í dag óhóflegar heimildir til þess að taka frá fé áður en tekjuskattur er á lagður. Þar eru hinar fjöldamörgu ívilnunarreglur að verki, svo sem afskriftareglur, varasjóðsframlög og aðrar slíkar reglur, þannig að ég er ekki í minnsta vafa um það, að ef fyrirtæki á eitthvað aflögu, þegar að því kemur að leggja á tekjuskatt, þá hefur það áreiðanlega þegar tekið til hliðar það fé sem líklegt er að verði lagt til aukinnar uppbyggingar í rekstrinum. Ég er hræddur um að þau orð, sem hv. þm. Halldór Blöndal viðhafði um tilgang skyldusparnaðarins, að hann væri ætlaður til að taka til hliðar það fé sem annars færi í óhófseyðslu, eða svo að ég noti nú hans óbreyttu orð, „spandans“, þau eigi ekki síður við um stórfyrirtækin og það sé talsverð hætta á því og talsverð brögð að því, að miklar tekjur fyrirtækja lendi nú í ýmiss konar „spandans“ enda til þess refarnir skornir, að menn hafi eitthvað út úr rekstrinum og geti haft mikið fjármagn handa á milli.

Í sambandi við 3. brtt. á þskj. 253 er það rétt, að hjá mér kom fram áðan tvenns konar hugsun varðandi innheimtu söluskatts af kjöti og kjötvörum. Annars vegar er sá möguleiki að innheimta söluskatt af kjöti og kjötvörum með venjulegum hætti. Hinn möguleikinn er að greiða niður heildsöluverð kjöts svo að það jafngildi afnámi söluskattsins. Báðar mundu þessar leiðir koma nokkuð í sama stað niður, og það er aðeins fyrirkomulagsatriði hvor leiðin yrði valin. Þetta yrði ríkissjóði nákvæmlega jafndýrt í báðum tilvikum. Ég var þeirrar skoðunar, að þetta væri einungis fyrirkomulagsatriði sem hægt væri að ákveða nánar um í reglugerð. En hér hafa komið fram ábendingar um að það kunni að vera erfitt að fara hina síðari leið á grundvelli þeirrar lagabreytingar sem hér er gerð till. um. Mér þykir því rétt að lagfæra till. í það form, að tekin séu af öll tvímæli að hægt sé að framkvæma þetta með hinum síðari hætti. Ég vil því leyfa mér, herra forseti, að flytja skrifl. brtt. við mína eigin till., eins og stundum kemur fyrir í slíkum tilvíkum, og hún er einfaldlega sú, að 3. brtt. á þskj. 253 orðist svo:

„Á eftir 6. gr. komi ný gr., svo hljóðandi — síðan kemur þessi mgr. óbreytt: Frá 1. jan. 1978 skal fella niður söluskatt af kjöti og kjötvörum og verðlag á þeim vörum lækka samkv. því.

Heimilt er að framkvæma efni 1. mgr. með því að greiða niður heildsöluverð kjöts að því marki að það jafngildi afnámi söluskatts.“

Hér er sem sagt ósköp einfaldlega veitt alveg ótvíræð heimild til þess að lækka verð á kjöti og kjötvörum sem nemur söluskattinum með því að fara svolítið annan hring að því marki heldur en einfaldlega með því að afnema söluskattinn í versluninni. Með þessu ættu að vera tekin af öll tvímæli um það, að þetta er hægt að framkvæma ef vilji er fyrir hendi. Spurningin er bara sú ein, hvort sá vilji er fyrir hendi, og því miður virðist mér á öllu að svo sé ekki hvað varðar ríkisstjórnarflokkana báða. Þeir virðast ætla að koma sér undan því með einhverjum afsökunum og einhverjum hæpnum útskýringum, með tilvísun til þess að þetta sé ekki hægt í framkvæmd. En það er rangt. Þetta er hægt, þó að e.t.v. þurfi að fara nokkra krókaleið að þessu nákvæmlega sama marki. Að því stefnir brtt. mín. Ég vil leyfa mér að leggja hana hér fram og óska eftir því að hún komi til afgreiðslu.