19.12.1977
Efri deild: 43. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)

98. mál, löndun á loðnu til bræðslu

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Eins og fram kemur í áliti sjútvn. Nd, eða réttara sagt flm. þessa frv., sem allir eru nm. í sjútvn. Nd., þá er það hugsað frá hendi nm. að þetta skip, ef það fær leyfi á næstu vertíð, landi á þeim stöðum sem fjærst eru miðum og þurfa á hráefni að halda, þannig að ef fullt er á miðum, eins og t.d. við Norðurland, en ekkert í þróm við Suðurland, þá getur loðnunefnd beint skipinu þangað eða öfugt, þetta skip verði því að taka á sig lengstu ferðirnar án þess að fá flutningastyrk. Það fær engin hlunnindi önnur en þau, að það verður auðvitað tekið útflutningsgjald af þeirri framleiðslu sem unnin er úr afla þessa skips, að öðru leyti en því að stofnfjársjóðsframlagið fær skipið endurgreitt, en það er lagt inn á reikning hvers skips fyrir sig. Þetta álit ég að sé eina eðlilega leiðin við. rekstur svona skips, ef þessi breyting á lögum um löndun á loðnu til bræðslu verður samþykkt.