19.12.1977
Neðri deild: 39. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1527 í B-deild Alþingistíðinda. (1227)

87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Hv. formaður allshn. vill gefa sér og n. góðan tíma til að athuga skipan þessara mála og frv., og hef ég ekkert við það að athuga. Hann hefur sýnt það fyrr, að hann er áhugamaður um framgang þessa máls, og vænti ég að það verði framhald á því.

Ég get ekki alveg fallist á þær athugasemdir sem hann kom fram með hér. Að vísu er alltaf álitamál hvað á að kalla langt og hvað á að kalla stutt. Hitt liggur í augum uppi, að þegar rannsóknarlögregla ríkisins var sett á stofn og ljóst var að þyrfti að útvega henni búsnæði, þá varð að hefjast handa með skjótum hætti og þýddi ekki að bíða vikum og mánuðum saman. Lögin um rannsóknarlögreglu ríkisins voru afgreidd 28. des. á fyrra ári og voru þá loksins afgreidd eftir að þau höfðu legið fyrir tveim þingum.

Það var síðan, eins og ég gerði grein fyrir, leitað að húsnæði. Það voru skoðuð, eins og ég sagði, ekki færri en 10 hús, þ. á m. margnefnt hús í umr. hér á Alþ. og utan þess, og svokallað Víðishús þótti ekki henta fyrir rannsóknarlögreglu. Og þannig var um fleiri hús. Hins vegar hentaði húsið að Skaftahlíð 24 ákaflega vel að mínum dómi. En það var leigusamningur um það hús og sú leiga, sem krafist var fyrir það, var hærri en viðurkennt hefur verið af fjárlaga- og hagsýslustofnun, og ég fellst alveg á að það hefði ekki verið heppilegt að fara inn á þá braut sem þó var í sjálfu sér freistandi til að fá þarna gott húsnæði á góðum stað.

Bráðabirgðakaupsamningurinn um þetta húsnæði að Auðbrekku 61 var gerður 20. mars. Er það stuttur eða langur tími til þess að útvega nýrri stofnun húsnæði, 3 mánuðir? Það getur verið álitamál.

Þá sagði hv. þm. Ellert B. Schram, að það væri heldur svona, að mér skildist, óviðkunnanlegt að rannsóknarlögreglan væri þarna í iðnaðarhverfi. En það iðnaðarhverfi er nú ekki meira en svo, að í næsta húsi við rannsóknarlögregluna mun sitja bæjarfógetinn í Kópavogi með sína skrifstofu og sitt starfslið, þannig að ég tel að hún verði ekki í slæmum félagsskap að því leyti til.

Þá sagði hv. þm. um þetta staðarval, að það væri uppi gagnrýni á því af hálfu þeirra sem væri ætlað að hefja rannsóknarlögregluna til vegs og virðingar, held ég að hann hafi orðað það, þeirra sem starfa eiga við hana.

Úr því að hv. allshn. treystir sér ekki til þess að afgreiða málið fyrir áramót, þá vænti ég þess, að hún kalli þessa aðila fyrir sig sem flesta og fái að heyra álit þeirra á þessu staðarvali. Ég vænti þess einnig, að hún gefi sér tíma til að fara á vettvang og skoða húsið og skoða teikningar.