19.12.1977
Neðri deild: 39. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1530 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)
87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins
Páll Pétursson:
Herra forseti. Formaður allshn. d., hv. 11. þm. Reykv., Ellert B. Schram, lýsti því með nokkurri vandlætingu, að hér væri verið að brjóta lög með því að falast eftir húsakaupum í Kópavogi fyrir rannsóknarlögregluna. Það var erfið fæðing á þessum lögum um rannsóknarlögreglu ríkisins, og eins og við, sem sæti höfum átt í allshn. Nd. undanfarin ár, vitum mætavel, var þessi fæðing ótrúlega erfið, eiginlega óskiljanlega erfið, því raunar var ekki margt í þessu frv. sem orkaði mjög tvímælis og það tók ekki veigamiklum breytingum í meðförum n. Þó tók það nokkrum breytingum. T.d. var nánar kveðið á um starfssvið rannsóknarlögreglunnar. Og eins og segir í 3. gr, laganna um rannsóknarlögreglu ríkisins: „Rannsóknarlögregla ríkisins hefur með höndum lögreglurannsóknir brotamála í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarneskaupstað, Garðakaupstað, Hafnarfirði og Kjósarsýslu, að hví leyti sem þær eru ekki í höndum lögreglustjóra þar samkv. ákvæðum þessara laga eða annarra réttarreglna. — Með sama hætti skal rannsóknarlögregla ríkisins hafa með höndum rannsóknir brotamála í Keflavík, Grindavík, Njarðvíkum, Gullbringusýslu og á Keflavíkurflugvelli þegar dómsmrh. ákveður.“
Nú sæti síst á mér að draga það í efa, að við séum alveg sérstaklega bráðskýrir menn í allshn. hv. d. En ég hygg að þetta orðalag: „Rannsóknarlögregla ríkisins hefur aðalstarfsstöð í Reykjavík“, og ekki bætt inn í þessum orðum: „eða nágrenni“, það sé bara leifar frá gamalli tíð og þetta verði fært til betri vegar og samræmis því að það sjáum við náttúrlega ef við veltum því fyrir okkur, ef við hugsum okkur að við hefðum kort af höfuðborgarsvæðinu, þá er miðpunktur þess svæðis í miðbæ Kópavogs, nákvæmlega miðpunktur höfuðborgarsvæðisins. Það er eiginlega naflinn á höfuðborgarsvæðisins þarna í miðbæ Kópavogs, þ.e.a.s. miðað við Hafnarfjörð. Seltjarnarnes, byggðina í Breiðholti og Mosfellssveit. Þetta er allt innan hrings.
Nú er hv. 11. hm. Reykv. bjóðkunnur knattspyrnumaður og hann ætti að sjá hvað bað er mikilvægt að hafa rétta staðsetningu á vellinum. svo að auðvelt sé að bregða við til allra átta með sem snörustum hætti. Og ég sé ekki annað en að það, sem farið er fram á í þessu frv. til laga, séu allt saman atriði sem auðvelt sé að fullnægja, þetta séu nánast sjálfsagðar breytingar, og ég get fyrir mitt leyti fallist á þær allar saman. Ég legg nú ekki höfuðáherslu á fyrir mitt leyti að fá að ganga frá nál. í dag um þetta mál, en ég ætla bara að biðja formann n. í öllum lifandi bænum að láta okkur ekki þurfa að veita þessu fyrir okkur á mörgum þingum.