20.10.1977
Sameinað þing: 7. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

13. mál, aðild Grænlendinga að Norðurlandaráði

Gils Guðmundsson; Herra forseti. Ég hafði ekki gert ráð fyrir því að taka þátt í þessari umr. nú nema sérstakt tilefni gæfist til, því hvort tveggja er, að ég ræddi þetta mál nokkuð hér á þingi í fyrra og á auk þess sæti í þeirri n. sem væntanlega fær málið til meðferðar, utanrmn. En satt að segja blöskraði mér svo málflutningur eða kannske ætti fremur að segja sá mikli og leiði misskilningur sem virðist kominn upp, sérstaklega hjá hv. 9. þm. Reykv. og raunar fleirum, að það sé eitthvað í formi þessarar till. sem komi í veg fyrir það, að hægt sé að samþ. hana. Ég held að annaðhvort sé hér um að ræða að hv. 9. þm. Reykv. hafi ekki lesið tillgr. rækilega eða þá að hann hafi af einhverjum ástæðum viljað misskilja það sem þar segir. Ég get ekki séð að það sé neitt í þessari till, sem komi í veg fyrir að þeir aðilar, sem þar er skorað á, þ.e.a.s. ríkisstj. Íslands annars vegar og fulltrúar Íslands í Norðurlandaráði hins vegar, beiti sér fyrir að sú breyting verði gerð á þeim sáttmála og þeim reglum, sem gilda um þessi efni, að Grænlendingar — (Gripið fram í.) kem að því, — að Grænlendingar eigi þess kost að gerast aðilar.

Nú ætla ég að stytta mál mitt, en nefna það, að við, ég og hv. 9. þm. Reykv., eigum báðir sæti í utanrmn. Hann hefur þegar lýst því yfir, að ef öllum formsatriðum væri fylgt, þá sé hann í rauninni fylgjandi kjarna málsins. Þess vegna vænti ég fulls stuðnings hans við till., sem yrði þá lítils háttar breytt, t.a.m. á þann veg, að Alþ. álykti að skora á ríkisstj. og fulltrúa Íslands í Norðurlandaráði að beita sér fyrir þeim breytingum á samningi um Norðurlandaráð sem geri kleift að Færeyingar, Grænlendingar, Álandseyingar og e.t.v. Samar geti öðlast sjálfstæða aðild að Norðurlandaráði. Ég mun beita mér fyrir brtt. í þessa átt, ef það mætti verða til þess að menn geti sameinast um kjarna málsins.