19.12.1977
Neðri deild: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1537 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

113. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Lúðvík Jósepsson:

Forseti. Það eru aðeins fáar athugasemdir sem ég vil gera í sambandi við þetta frv. sem ég er í meginatriðum sammála, því mér er ljóst að það verður að halda áfram innheimtu á svonefndu verðjöfnunargjaldi á selda raforku. En mér finnst ástæða til þess að geta þess í sambandi við þetta frv., að það er mjög farið að bera á því hér á hv. Alþ. og ég segi í vaxandi mæli, að frv. séu lögð hér fyrir eða aðrar till., m.a. frá hæstv. ríkisstj., sem hefur besta aðstöðu til þess að undirbúa slík mál, án þess að lágmarksupplýsingar fylgi málunum, og þau mál koma síðan afgreidd úr n. þannig að nálega engar upplýsingar fylgja með.

Ég tel t.d. að í þessu tilfelli, þar sem um það er að ræða að framlengja 13% verðjöfnunargjald á alla raforkusölu í landinu, hefðu átt að liggja fyrir upplýsingar um það, hversu hárri upphæð þetta gjald nemur nú. Einnig hefðu átt að fylgja upplýsingar um það, hvernig þessu gjaldi hefur verið varið. Ég hygg að gjaldið hafi runnið svo að segja allt eða allt til Rafmagnsveitna ríkisins til að jafna halla á rekstri þeirra. Í því skyni var gjaldið lagt á upphaflega. Ég hefði gjarnan viljað fá upplýsingar um það, hvernig Rafmagnsveitur ríkisins koma út rekstrarlega séð. Þurfa þær á þessu gjaldi öllu að halda áfram og jafnvel kannske ennþá meira? Eitt vitum við, og það er að Rafmagnsveitur ríkisins, sem selja raforku til stórs hluta landsbúa, selja enn þá raforku á miklum mun hærra verði en gildir t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu.

Síðasta skýrsla, sem kom frá Orkustofnun um raforkuverð í smásölu, er miðuð við árslok 1976. Þá er raforkuverðið í Reykjavík 13.65 kr, á kwst., en hjá Rafmagnsveitum ríkisins er það þá 21.48 kr. á kwst., þ.e. hjá þeim sem kaupa rafmagn af Rafmagnsveitum ríkisins. Þetta er almenningstaxti, 57% hærra raforkuverð, það er 57% hærra. Ég vil aðeins minnast á það í sambandi við þetta mál.

Þetta dæmi er kannske ekki miklu verra en mörg önnur sem hér koma nú fram. En það er í rauninni lágmarksskylda að gera nokkra grein fyrir jafnþýðingarmiklum málum og þessum. Hvað nemur gjaldið hárri fjárhæð og hvernig er ástatt með þá stofnun sem nýtur þessa gjalds?

Nú er enn fremur gert ráð fyrir því í þessu frv., að sú breyting verði gerð á, að 20% eða 1/5 þessa verðjöfnunargjalds skuli renna til Orkubús Vestfjarða vegna þeirrar skipulagsbreytingar sem þarna hefur á orðið. Ég býst við, að Orkubúi Vestfjarða veiti ekki af þessum hluta, og tel alveg sjálfsagt, að það svæði, sem þar er um að ræða, fái sinn réttláta hluta af þessu verðjöfnunargjaldi um leið og það verður sjálfstætt orkusvæði. En það er engin grein gerð fyrir því í grg. með þessu frv. og ég hef ekki orðið var við það við afgreiðslu málsins, að lagðar séu fram neinar talnalegar skýrslur um það, hvernig þessi 20% eru fundin. Er þetta réttlátur hluti fyrir þá Vestfirðinga sem eiga að njóta þessa hluta verðjöfnunargjaldsins, eða eiga þeir kannske rétt á hærri hluta?

Ég býst við því, að það skipti kannske ekki mjög miklu máli hvort Vestfirðingar fá samkv. þessu aðeins hærra en þeirra hlutfalli næmi. Það yrði þá sennilega aðeins til þess, að Rafmagnsveitur ríkisins kæmu út með enn þá meira tapi, og það yrði þá að vera vandamál ríkisins sem sér um rekstur þeirra. En væntanlega yrði það ekki látið bitna á þeim sem kaupa raforku frá Rafmagnsveitum ríkisins.

Þetta voru athugasemdir sem ég vildi að hér kæmu fram. Að öðru leyti lýsi ég yfir, að ég er sammála því, að haldið verði áfram að innheimta þetta verðjöfnunargjald af því að það er alls ekki hægt að komast hjá því. Ég er einnig sammála því, að Orkubú Vestfjarða fái sinn hluta af þessu verðjöfnunargjaldi — réttlátan hluta. Ég get í rauninni ekkert um það sagt, hvort það á að vera 20% eða meira eða minna. Það get ég ekki. En mér finnst eðlilegt að það fái sinn hluta. Ég geri því ekki athugasemdir við það út af fyrir sig, heldur hitt, að mér finnst að hér skorti algjörlega allar upplýsingar varðandi þetta mál. Af því að þetta er eitt af mörgum málum, sem svona er ástatt um, geri ég þessar athugasemdir.