19.12.1977
Neðri deild: 41. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)

132. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1978

Frsm. meiri hl. (Tómas Árnason):

Hæstv, forseti. Það eru örfá atriði, sem mig langar til að gera að umræðuefni í tilefni af þeim umr. sem farið hafa fram um þetta lagafrv.

Hv. 7. þm. Reykv. gerði athugasemd við það, að ég hefði ekki kynnt réttilega þau bréf sem hefðu borist til fjh.- og viðskn, frá Sambandi almennra lífeyrissjóða, Landssambandi lífeyrissjóða og Iðju, félagi verksmiðjufólks. Vegna þess að þessi bréf eru stutt ætta ég að leyfa mér með leyfi hæstv. forseta — að lesa þau upp.

„Til fjh: og viðskn. Nd, Alþ., Reykjavík. Framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyríssjóða hefur á fundi sinum í dag, föstudag 16. des., fjallað um ráðagerðir ríkisstj. að skylda sérhvern lífeyrissjóð með lögum að verja á ári hverju a. m, k. 40% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á verðtryggðum skuldabréfum fjárfestingarlánasjóða.

Ef framangreindar ráðagerðir verða að lögum er gert ráð fyrir að lífeyrissjóðum verði skylt að verja á næsta ári a.m.k. 6,8 milljörðum kr. til fjárfestingarlánasjóða. Af þessu tilefni vill framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða taka fram eftirfarandi:

Framkvæmdastjórnin mótmælir harðlega allri lögbindingu á meðferð fjármagns lífeyrissjóðanna. Jafnframt telur framkvæmdastjórnin, að lífeyrissjóðunum sé ofviða að kaupa verðtryggð skuldabréf af fjárfestingarsjóðum fyrir a.m.k. 40% af ráðstöfunarfénu, og bendir á, að biðtími eftir íbúðarlánum hjá þeim, sem öðlast hafa full lánsréttindi, er frá nokkrum mánuðum í allt að 11/2 ári.

Framkvæmdastjórnin vekur sérstaka athygli á því, að frv. þetta er lagt fram án nokkurs samráðs við lífeyrissjóðina eða aðila vinnumarkaðarins. lífeyrissjóðir innan Sambands almennra lífeyrissjóða hafa fram að þessu staðið við skuldbindingar sínar um verðtryggð skuldabréfakaup af Byggingarsjóði ríkisins og munu hér eftir sem hingað til standa við gefin loforð þar um. Hinir almennu lífeyrissjóðir voru settir á stofn í ársbyrjun 1970 samkv. ákvæðum í kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins frá árinu 1969. Við það verður ekki unað, að stjórnvöld geti einhliða ráðskast með fjármuni lífeyrissjóðanna og gripið þannig inn í gerða kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins.

Framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða er að sjálfsögðu ljós sá mikli vandi sem sjóðirnir eiga við að etja á verðbólgutímum. Framkvæmdastjórnin er og hefur ávallt verið reiðubúin að ræða ávöxtunarmál lífeyrissjóðanna og leita lausnar á þeim málum í samvinnu við stjórnvöld. Hins vegar munu stjórnir lífeyrissjóðanna, sem skipaðar eru að jöfnu fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, ekki ljá máls á því, að hægt verði með einhliða lagasetningu að ráðskast með fjármuni þeirra. Framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða lýsir yfir fyllstu andstöðu sinni við slíkum vinnubrögðum og skorar jafnframt á stjórnvöld að falla nú þegar Frá ráðagerðum sínum um lagasetningu vegna skuldabréfakaupa lífeyrissjóðanna af fjárfestingarlánasjóðunum. Um slík kaup skal nú sem áður semja á jafnréttisgrundvelli.

Virðingarfyllst.

Framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða.

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri SAL.“

Síðan er bréf frá Landssambandi lífeyrissjóða svo hljóðandi:

„Stjórn Landssambands lífeyrissjóða mótmælir eindregið heim ákvæðum í frv. til laga vegna lánsfjáráætlunar 1978. þar sem gert er ráð fyrir að skylda lífeyrissjóði til að verja a.m.k. 40% af ráðstöfunarfé þeirra til kaupa á verðtryggðum skuldabréfum fjárfestingarlánasjóða. Ákvæði þessi marka háttaskil í samskiptum ríkisvaldsins við lífeyrissjóðina, en um alllangt skrið, eða allt frá árinu 1970, hafa ríkisstjórnir haft samráð við samtök lífeyrissjóða um málefni þeirra. En tilgangur Landssambands lífeyrissjóða er m.a. að gæta hagsmuna lífeyrissjóða á sviði löggjafar og vinna að því, að ríkisvaldið taki réttmætt tillit til starfsemi og þarfa lífeyrissjóðanna. Landssamband lífeyrissjóða var stofnað 1964 og þá gagngert vegna fyrirhugaðra aðgerða stjórnvalda svipaðs eðlis og nú er um að ræða. Innan vébanda landssambandsins eru nú 49 lífeyrissjóðir.

Frv. það, sem hér um ræðir, var lagt fram án þess að leitað væri álits samtaka lífeyrissjóða á efni þess og telur stjórn landssambandsins það mjög misráðið. Undanfarin ár hefur fjáröflun ríkisstj. til fjárfestingarlánasjóða hjá lífeyrissjóðum grundvallast á frjálsu samkomulagi milli þessara aðila. Stjórn landssambandsins telur að þetta fyrirkomulag hafi tekist með ágætum og lífengin ástæða til að fara inn á þá braut að lögskylda lífeyrissjóði til slíkra skuldabréfakaupa. Þá vekur stjórnin athygli á því, að ekki er raunhæft að gera ráð fyrir, að sjóðirnir geti varið 40% af ráðstöfunarfé þeirra í þessu skyni án þess að um stórfellda röskun á veitingu íbúðalána til sjóðfélaga þeirra verði að ræða. Stjórn landssambandsins dregur jafnframt í efa rétt stjórnvalda til að svipta með þessum hætti lífeyrissjóðina ráðstöfunarréttinum yfir fjármagni þeirra, sem ótvírætt er eign sjóðfélaganna.

Stjórn Landssambands lífeyrissjóða skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirætlanir sínar í þessu efni og hafa um þær fullt samráð við samtök lífeyrissjóða.

Virðingarfyllst.

f.h. stjórnar Landssambands lífeyrissjóða.

Bjarni Þórðarson, formaður.

Hermann Þórðarson, varaformaður.“

síðan er bréf frá Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, svo hljóðandi:

„Á almennum félagsfundi í Iðju, félagi verksmiðjufólks, var eftirfarandi till. samþykkt samhljóða:

Fundur í Iðju, félagi verksmiðjufólks, haldinn í Lindarbæ 18. des. 1977, mótmælir harðlega þeirri fyrirætlan ríkisvaldsins að krefjast 40% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna og skerða þannig verulega getu þeirra til að gegna hlutverki sínu í þágu launþeganna, sem eru eigendur lífeyrissjóðanna.

Virðingarfyllst.

Bjarni Jakobsson, formaður.“

Þetta eru þau þrjú bréf sem bárust til fjh- og viðskn., og hafi ég sagt eitthvað, sem ekki lýsir innihaldi þessara bréfa réttilega, þá vildi ég lesa þau upp, því að sjálfsagt er að efni þeirra komi fram hér á Alþ. Það kemur fram í einu þessara bréfa, hver hugmyndin sé að lánað verði samkv. lánsfjáráætlun ríkisstj. til fjárfestingarlánasjóðanna. Segir þar: 6.8 milljarðar a.m.k., en ég hygg að samkv, lánsfjáráætlun sé fyrirhugað að lána Byggingarsjóði ríkisins og Framkvæmdasjóði Íslands 5100 millj., en á þessu yfirstandandi ári munu lánin nema um 3150 millj. kr. þannig að fyrirhugað er að þessi lán aukist um tvo milljarða, ef lánsfjáráætlunin gengur fram eins og henni er ætlað.

Hv. 7. þm. Reykv. minntist á það, að hann óttaðist að ef íbúðarhúsabyggingar hér á Reykjavíkursvæðinu drægjust saman mundi það hafa þau áhrif, að íbúðarverð mundi hækka og það mundi auka á verðbólguna. Við þessu er það að segja, að sú stefna hefur verið mörkuð að takmarka erlendar lántökur og þess vegna ekki kostur á öðru en að treysta á innlenda fjármögnun. Þá verða menn, eins og ástatt er, að velja og hafna. Það er ekki nægilegt tiltækt innient fjármagn til þess að fjármagna e.t.v. það sem menn vildu í þessum efnum, en þó er þess að geta, að heildarfjárfestingin á næsta ári í samræmi við lánsfjáráætlunina er rúmlega 25% af þjóðarframleiðslunni, eins og hún er áætluð, og að mati sérfræðinga talið varhugavert að meiri fjárfesting eigi sér stað með tilliti til þess að reyna að hefta verðþenslu og verðbólgu í þjóðfélaginu.

Hv. 2. þm. Austurl. mælti fyrir áliti minni hl. fjh.- og viðskn, Það kom fram í máli hans, eins og raunar fleiri, að ágreiningurinn í þessu máli er fyrst og fremst um það, hvort lífeyrissjóðunum verði gert skylt að verja árlega a.m.k. 40% af ráðstöfunarfé sínu til kaupa á skuldabréfum með fullri verðtryggingu til langs tíma. Það vill nú svo til, að þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona till. kemur fram á hv, Alþ., og þó hefur komið fram till. hér áður sem gengur í raun og veru lengra en þetta frv. gerir. Á árinu 1974, skömmu fyrir þingrof, var lagt fram á Alþ. frv. til l. um viðnám gegn verðbólgu og aðrar ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum. Það var þáv, ríkisstj. sem lagði þetta frv. fram, og hv. 2. þm. Austurl. var ráðh. í þeirri ríkisstj., eins og öllum er kunnugt. 16. gr. þessa frv. var á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú hefur lífeyrissjóður ekki gert um það samning við ríkisstj. að kaupa sérstök verðtryggð skuldabréf Byggingarsjóðs ríkisins eða Framkvæmdasjóðs Íslands fyrir 20% af ráðstöfunarfé sínu á árinu 1974. Skal hann þá skuldbundinn til þess að kaupa skuldabréf Framkvæmdasjóðs Íslands eða ríkissjóðs samkv. ákvæðum 13. gr. fyrir þá fjárhæð, sem á vantar að heildarverðbréfakaup af þeim eða samkv, ákvæðum 13. gr. nemi 35% af ráðstöfunarfé ársins.“

Síðan gerðist það, að ríkisstj. lagði til hér á hv. Alþ., að það yrði lögfest að lífeyrissjóðunum væri gert skylt að binda 35% af ráðstöfunarfé sínu og ráðstafa því til kaupa á verðtryggðum skuldabréfum.

Ég ítreka það, að hv, 2, þm. Austurl. var ráðh. í ríkisstj. og stóð að framlagningu þessa frv. hér á Alþ., þannig að mér sýnist að viðhorf hans í þessu efni hafi tekið nokkrum breytingum frá lifað hann var í þeirri ríkisstj.

Það kom fram í máli hv. 2, þm. Austurl., að gert væri ráð fyrir að gera breytingu á því fyrirkomulagi, að viðskiptabankarnir láni Framkvæmdasjóði Íslands á næsta ári sem svarar 10% af innlánsaukningu bankanna. Það er gert ráð fyrir því að breyta þessu í þá átt, að viðskiptabankarnir láni aðeins 5%, en þó ekki minna en 1200 millj. kr. Ástæðan fyrir þessari breytingu er einfaldlega sú, að ráðstöfunarfé innlánsstofnana hefur stórkostlega minnkað hlutfallslega á seinustu árum. Á árunum 1971–1976 varð á þessu grundvallarbreyting, Árið 1971 mun ráðstöfunarfé innlánsstofnana hafa numið um 40% af þjóðarframleiðslunni, en á árinu 1976 er það komið niður í 23%. Þetta hefur minnkað um 17%, og það er vandalaust að reikna út hvað væri miklu meira fé til ráðstöfunar hjá innlánsstofnunum ef engin breyting hefði orðið á í þessum efnum síðan 1971. Ég hygg að ráðstöfunarféð væri a.m.k. ekki undir 40 milljörðum meira en það er nú. Þetta hefur auðvitað valdið því, að viðskiptabankarnir eiga sífellt erfiðara með að greiða fyrir atvinnuvegunum í landinu með rekstrarfé, og þess vegna er það, að ríkisstj. (tefur ákveðið í lánsfjáráætlun að breyta hér til, auka nokkuð svigrúm viðskiptabankanna til þess að leggja af mörkum meira rekstrarfé til atvinnuveganna. Þess vegna er það, að ætlunin er að minnka þessi lán úr 10% niður í 5%.

Þá gerði hv. þm. nokkrar aths. við það, að hann vildi ekki styðja heimildir eða lánafyrirætlanir varðandi Járnblendifélagið. Ég get ekki stillt mig um, fyrst hv, þm, minntist á þetta, að segja það sem mína skoðun, að sá veldur venjulega miklu sem upphafinu veldur. Það hefur komið fram oftsinnis hér á Alþ., hvaða aðili var upphafsaðill að járnblendimálinu hér í landinu. Það var Alþb. Þetta er bréfið og það bréf hefur verið lesið upp hér á Alþ. og það hefur verið lesið upp í útvarpi yfir þjóðinni. Í þessu bréfi kemur einmitt glögglega fram, að það var ráðh. Alþb. sem á sinum tíma barðist fyrir járnblendimálinu. Ég ætla — með leyfi hæstv. forseta — að lesa hér upp niðurlag þessa bréfs, sem var frá hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni, sem þá var iðnrh., og var til Mr. J.C. Malone, vicepresident, Union Carbide Corporation í New York:

„Ég hef lagt texta þessa bréfs fyrir ríkisstj. og þingflokka Sjálfstfl. og Alþfl. Allir þessir aðilar hafa lýst yfir fylgi við skoðanir þær, sem þar koma fram, þar með talin skuldbinding um að séð verði um lagalega hlið málsins eins fljótt og unnt er til þess að áætluninni verði hrundið af stað“ — þ.e.a.s. áætluninni um byggingu málmblendiverksmiðjunnar. „Flokkur minn hefur ekki enn tekið afstöðu til áætlunarinnar í meginatriðum, en fellst á að miðað sé að því að staðfestingarlögin verði lögð fyrir Alþingi í byrjun næsta þings til þess að endanleg ákvörðun verði þá tekin.

Það er álit mitt, að þér getið reitt yður á, að hugsanlegar breytingar á stjórnmálum á Íslandi á þeim tíma þar til Alþ. tekur endanlega ákvörðun mun ekki hafa áhrif á þessi sjónarmið.

Það er einlæg von mín, að bréf þetta geri okkur kleift að halda samvinnunni áfram og áætluninni, sem að mínu viti er svo mikilvæg fyrir iðnþróun lands míns, verði lokið sem fyrst.“

En ég held að hurðirnar í stjórnarráðinu hafi ekki fyrr verið lokaðar á hæla hv. 2. þm. Austurl. en hann tók heljarstökk í þessu máli og flokkur hans, og allt snýr nú niður sem áður sneri upp.