19.12.1977
Neðri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)

91. mál, matvælarannsóknir ríkisins

Frsm. (Sigurlaug Bjarnadóttir):

Herra forseti. Heilbr: og trn, hefur fjallað um þetta mál, frv. um matvælarannsóknir ríkisins. Hér er um að ræða nýja stofnun, en meginverkefni hennar verður að annast matvæla-, efna- og örveirufræðilegar rannsóknir á hvers konar matvælum og neysluvörum vegna heilbrigðiseftirlits í landinu.

Í meðförum Ed. var gerð á þessu máli smávægileg breyting á 6. gr. frv. sem hnígur í þá átt, að komi upp ágreiningsmál í sambandi við starfsemi stofnunarinnar skuli ágreiningi vísað til ráðh. til fullnaðarúrskurðar.

Heilbr: og trn. Nd. var sammála um að mæla með samþykkt frv. óbreytts frá því sem það kom frá Nd. Fjarstaddur afgreiðslu málsins var hv. formaður n., Jón Skaftason, sem dvelst erlendis.