19.12.1977
Neðri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (1283)
90. mál, iðjuþjálfun
Frsm. (Sigurlaug Bjarnadóttir):
Herra forseti. Þetta frv til l. um iðjuþjálfun á þskj. 104 fjallar um starf iðjuþjálfa, sem nú sækja um löghelgun á starfi sínu, sem er að meginefni þáttur í hvers konar endurhæfingu andlega eða líkamlega sjúkra manna, starfsþjálfun og aðstoð við fólk til að verða sjálfbjarga þótt sjúkt hafi verið. Frv. hlaut mjög eindregnar undirtektir nefndarinnar. Það er komið frá Ed. án þess að nokkrar aths. væru við það gerðar. Leggur n. til að það verði samþykkt óbreytt. Jón Skaftason, formaður n. var enn fjarstaddur, staddur erlendis.