20.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)

1. mál, fjárlög 1978

Ragnar Arnalds:

Herra forseti Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að gera fjárlög almennt að umræðuefni, en læt mér nægja að fara örfáum orðum um nokkrar till, sem ég flyt á þskj. 286.

Í fyrsta lagi er þar um að ræða undirbúningsfjárveitingu vegna skólabyggingar í Varmahlíð. Um það mál er það eitt að segja, að ég sætti mig ekki við að framkvæmdir á þessum skólastað verði stöðvaðar nú um tveggja ára skeið vegna þess að þessi undirbúningsfjárveiting fáist ekki. Ég var að vonast til þess, að fjvn. féllist á að bæta þessu við, en það hefur ekki orðið. Þó hefði það vissulega mátt gerast með því að skera niður aðra þá fjárveitingu sem til þessa skólastaðar gengur, og ég sé mig því tel knúinn að flytja þessa brtt.

Í öðru lagi flytjum við Stefán Jónsson till um 20 millj, kr. fjárveitingu til fóðurverksmiðja í Hólminum í Skagafirði og aðrar 20 mill,;. til fóðurverksmiðju í Saltvík í Suður-Þingeyjarsýslu. Þegar 2, umr. fór fram lá það fyrir, að fjvn. var ekki reiðubúin að láta fjármagn til þessara framkvæmda. Það var meira að segja skýrt tekið fram í fjárlagafrv sjálfu, að framlög til þessara staða féllu nú niður, og fjvn. kom ekki með neina breytingu við 2. umr. á þessum lið aðra, en þá að bæta við um 7 millj. kr. til fóðurverksmiðju í Skaftafellssýslu. Nú hefur hins vegar fjvn., eftir að þessar till, okkar komu fram, gert þá bragarbót að veita 5 millj kr. til hvorrar verksmiðju. Er það virðingarvert, en verður þó að minni hyggju fyrst og fremst að teljast sýndarmennska, ætlað til þess að hafa þessar verksmiðjur einhvers staðar á blaði, því að við vitum að fyrir þetta fjármagn verður ekkert unnið. Hér er einungis um það að ræða, að menn geti sagt að þessar verksmiðjur séu þó þrátt fyrir allt einhvers staðar á blaði. Ég tel að lágmark þess, sem þurfi að veita til þessara mála, sé 20 millj. í hvora verksmiðju, ef þarna á að vera um raunverulegar framkvæmdir að ræða, og þess vegna gerum við till. um það. Í fyrra voru veittar 10 millj. kr. til hvorrar verksmiðju um sig.

Í þriðja lagi flyt ég till. um rannsókn á málminnihald gabbrónáma í Víðidalsfjalli. Komið hefur í ljós á undanförnum árum, að í Víðidal og Víðidalsfjalli er að finna mjög málmauðugt berg í miklu magni. Þetta hefur verið lítillega rannsakað á undanförnum tveimur árum, og flest bendir til þess að þarna geti verið um mjög verðmætar námur að ræða sem gætu orðið í fyrsta lagi grundvöllur arðvænlegrar námuvinnslu og svo hugsanlega enn frekari úrvinnslu þessa hráefnis. Í bréfi, sem Framkvæmdastofnun ríkisins ritaði iðnrn, í sumar, segir, með leyfi forseta:

„Þó að á þessu stigi sé ekkert hægt að fullyrða um vinnslumöguleika og þá efnahagslegu þýðingu gabbrósins í Víðidal, er vissulega eftir miklu að sækjast, ef niðurstöður rannsóknanna verða jákvæðar. Því óskar Framkvæmdastofnun ríkisins eftir samvinnu við iðnrn um framgang þessa máls. Með vísun til ályktunar Alþ. um rannsókn á notagildi íslenskra jarðefna frá 29. apríl s.l. förum við fyrir hönd Framkvæmdastofnunarinnar fram á, að iðnrn. afli sér heimildar í fjárl. næsta árs til greiðslu kostnaðar vegna framangreindra rannsókna. Mun Framkvæmdastofnunin þá leggja út fé fyrir kostnaðinum á þessu ári, en sjálfsagt virðist að hraða þessum rannsóknum. Þessi kostnaður er áætlaður 700 þús. kr. Tekið skal fram, að þá er ekki gert ráð fyrir fé til hagrænna eða tæknilegra rannsókna á vinnslu og framleiðslu, enda eðlilegt að niðurstöður frumrannsókna liggi fyrir áður.“

Hér er sem sagt um frumrannsóknir að ræða, sem taldar eru af þeim vísindamönnum, sem í hlut eiga, og sérfræðingum hjá Framkvæmdastofnun ríkisins mjög nauðsynlegar og sjálfsagðar. Því miður virðist að iðnrn, hafi gersamlega hundsað þessa ósk. A.m.k veit ég ekki til þess að iðnrn. hafi gert neinar ráðstafanir í þessa átt, og hef ég þó haft uppi spurnir um það. Legg ég því til að Alþ. veiti 900 þús. kr, í þessum tilgangi.

Í þriðja lagi flytjum við, ég og hv. þm. Helgi F. Seljan, till. um að Alþ. veiti 10 millj. kr. byggingarstyrk til Félags einstæðar foreldra. Félag einstæðra foreldra er að reisa hús fyrir þá einstæðu foreldra og börn þeirra sem verst stendur á fyrir hverju sinni. Hér er um stórmerkilegt framtak að ræða sem ég tel sjálfsagt að Alþ. styðji, og við flytjum því þessa tillögu.

Í fimmta lagi flytjum við, hv. þm. Helgi F. Seljan og ég, till. um að til Orlofssjóðs húsmæðra verði veittar 10 millj. kr., en eins og kunnugt er var fellt niður framlag ríkisins til þessara mála á árinu 1975 og sveitarfélögunum einum ætlað að veita fé til þessara mála. Það, fer hins vegar ekki milli mála og hefur bersýnilega komið í ljós af reynslunni, að hér var stigið óheillaspor og starfsemi orlofsins er jafnt og þétt að leggjast niður vegna þess að sveitarfélögin hafa ekki sýnt þessari starfsemi nægilega ræktarsemi. Í ályktun landsráðstefnu húsmæðra um þetta mál segir að ráðstefnan vilji benda á að orlof húsmæðra sé í eðli sínu alls ekki sveitarstjórnarmálefni, enda séu framkvæmdir þess hvergi í höndum sveitarstjórna og hafi aldrei verið, framkvæmdir séu í höndum orlofsnefnda sem kosnar séu af héraðssamböndum innan Kvenfélagasambands Íslands og þær starfi sjálfstætt, en séu ólaunaðar. Með þessu er sem sagt á það bent, að með því að þessi stafsemi sé færð í hendur sveitarstjórnanna verði hætta á því, vegna þess að þær hafa aldrei haft neitt með þetta mál að gera, að það leggist algerlega niður. Við flm. teljum að illa væri komið, ef svo færi, og leggjum því til að veittar verði 10 millj. kr. til þessarar starfsemi.

Áður en ég hverf úr ræðustól vil ég svo að lokum fara örfáum orðum um till. sem hv þm. Albert Guðmundsson var að enda við að mæla hér fyrir, en þar er um að ræða till. um fjölgun þeirra sem hljóta heiðurslaun að þessu sinni. Ég vil minna á það, að í þessu efni eru og hafa verið tvær leiðir til. Önnur leiðin er sú, að við þm. gerum till. um það hver fyrir sig hér í þinginu, hver eigi að hljóta heiðurslaun listamanna, og síðan gerum við út um það í atkvgr. hverju sinni. Hin leiðin er að fela einhverjum ákveðnum nefndum, og þá væntanlega menntam., að útkljá þessi mál. Þannig hefur verið farið að. Við höfum farið þessa síðarnefndu leið nú í allmörg undanfarin ár, og enda þótt margir okkar þm, hafi oft verið mjög óánægðir með þá niðurstöðu sem fengist hefur, oft mjög óánægðir og við höfum lent þar í minni hl., þá hefur það ekki gerst fram að þessu, að menn kæmu með brtt., legðu til að einhverjir aðrir fengju þessi heiðurslaun og efndu þannig til opinbers uppboðs hér í þingsölum um verðleika listamanna, en það væri harla ósmekklegt. Ég er sammála hv. þm. Albert Guðmundssyni, að vel hefði komið til greina að fjölga í hópi þeirra sem hljóta heiðurslaun listamanna, og satt best að segja var það till. okkar Svövu Jakobsdóttur við meðferð málsins í n. Við vildum að sá möguleiki yrði athugaður, hvort ekki væri fullkomlega eðlilegt og raunhæft að fjölga þeim sem fengju þessi heiðurslaun. En sú skoðun átti ekki upp á pallborðið hjá meiri hl. n. Það lá því fyrir að aðeins mundi einn bætast við. Við hv. þm. Svava Jakobsdóttir tókum síðan þátt í allmörgum atkvgr, sem fram fóru til að velja þann sem þarna bættist við, og ég segi það fyrir mig að ég tel mig bundinn eftir þessa málsmeðferð í menntmn. af þeirri niðurstöðu sem fékkst, enda þótt ég sé hins vegar þeirrar skoðunar, að þeir menn, sem gerðar hafa verið till. um að hljóti heiðurslaun listamanna, búi allir yfir þeim verðleikum að þeir eigi skilið að fá heiðurslaun. Ég held að það gildi um þá alla, að þeir hafi verið nefndir við umr. í n. og hafi átt þar nokkru fylgi að fagna. En ég tel, að þó að ég geti ekki staðið í því að fara að taka þátt í atkvgr. hér í þingsölum um þetta efni, þá fetist ekki á nokkurn hátt í því, að ég sé því andvígur að þessum mönnum sé bætt í tölu þeirra sem heiðurslaun hljóta. Von mín er sú að það geti orðið á næsta ári eða næstu árum. En miðað við það, hvaða vinnubrögð hafa verið viðhöfð við undirbúning þessarar till., og miðað við þá von mína og ósk, að þau vinnubrögð verði áfram í heiðri höfð, þá treysti ég mér ekki til að taka þátt í afgreiðslu þessara brtt. sem fram eru komnar. Ég vænti þess sem sagt mjög eindregið að við höldum vinnubrögðum af sama tagi áfram, Ég tel að þær brtt. aðrar, sem fram eru komnar, séu til þess fallnar að stuðla að því, að frá þessari venju, sem hafði skapast, verði algerlega horfið, en það tel ég vera mjög til hins verra.

Ég vil hins vegar bæta því við, að ég tel að til greina kæmi að við 2 umr. fjárl. lægju fyrir till, um hversu marga ætti að velja og Alþ. ákvæði fyrir fram hvað þeir yrðu margir sem í þessum hópi yrðu, ákvæði það við 2, umr., en gæfi síða3i menntmn, Ed. og Nd. tækifæri til þess milli 2. og 3. umr. að velja þá, sem þennan hóp ættu að fylla. Ég tel að í raun og veru sé alveg fráleitt að ætla að ákveða á sama tíma, hve margir fylli þennan hóp og hverjir það eigi að vera, vegna þess að það leiðir að sjálfsögðu aðeins til þess, að brtt, fela ævinlega í sér fjölgun. Yrði vafalaust um að ræða mjög öra fjölgun í þessum hópi á næstu árum ef menn ætluðu að taka upp þessi hin nýju vinnubrögð.