20.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1664 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)
1. mál, fjárlög 1978
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Einhvern veginn hittist svo á, að klukkan er alltaf farin að nálgast miðnætti þegar ég fæ að segja eitthvað. Þess vegna held ég að ástæðulaust sé að hafa þetta mjög langt mál. En mér finnst vera nauðsynlegt að segja nokkur orð, þó ekki væri nema í tilefni af þeim brtt. sem ég hef lagt fram.
Ég flutti litla brtt, við 2. umr. um að skuldagreiðsla ríkisins vegna sjúkrahússins í Vestmannaeyjum hækkaði úr 20 millj. í 50, þ.e.a.s. að skuldin yrði greidd á tveimur árum, en ekki fimm. Ég tók þessa brtt. aftur til 3. umr. í trausti þess, að úr þessu yrði bætt þar sem að mínum dómi var um mikið ranglæti að ræða að láta peningana brenna upp í verðbólgubálinu sem Vestmannaeyjakaupstaður hafði lagt út fyrir þó nokkrum árum. Hins vegar hefur nú í raun verið bætt úr þessu með því, að hæstv. fjmrh. hefur lýst því yfir að skuldin verði greidd upp á tveimur árum, og er þá tilgangi míns tillöguflutnings náð. Mun ég þess vegna draga þessa brtt. II á þskj. 165 til baka.
En í tilefni af því, að ég minntist á yfirlýsingu hæstv. fjmrh., þá mátti finna í henni fleira sem varðar ekki aðeins mitt kjördæmi, heldur einnig almannaheill í landinu. Hann nefndi einnig að ríkisstj. mundi athuga málefni Stokkseyringa og málefni annarra byggða á Suðurlandi sem urðu fyrir stórfelldu tjóni af völdum ofsaveðurs og flóða nú fyrir stuttu. Hæstv. ráðh. orðaði það svo, að ríkisstj. mundi taka þessi mál til athugunar og aðgerða, ég vil leggja áherslu á það. Ég get ekki skilið þetta orðalag hæstv. ráðh, öðruvísi en svo, að ríkisstj. ætli að hlaupa undir bagga með þeim — og þá fyrst og fremst Stokkseyringum — sem verst urðu úti í þessum náttúruhamförum með því að styðja þá við að leysa sín mál, þar sem bætur viðlagatrygginga og annarra bætenda ná ekki til. Ég á þar ekki síst og kannske fyrst og fremst við sveitarfélagið, sem er síður en svo vei statt sveitarfélag, en einnig einstaklinga sem kunna að fara illa út úr þessu tjóni af völdum ofveðursins. Og ég vil spyrja hv. alþm.: Hvernig er hægt að skilja orðin „og aðgerða“ öðruvísi en ríkisstj. ætli að leggja þarna eitthvað af mörkum? Engum dettur í hug að aðgerðir hæstv. ríkisstj. verði fólgnar í því, að þeir tipli þarna austur frá og fari að tina grjót af götum, það dettur engum lifandi manni í hug. Þeirra aðgerðir geta varla verið fólgnar í öðru en því að leggja fram þá fjármuni sem þarf til. Þennan skilning lagði hv. 1. þm. Suðurl., Ingólfur Jónsson, einnig í þessi orð hæstv. ráðh., og ég vil leyfa mér að fullyrða að afar erfitt sé að leggja nokkurn annan skilning í þessi orð, ekki síst orðin „og aðgerða“, en þennan, að ríkisstj. ætli að leggja þarna eitthvað af mörkum til þess að bæta þessu fólki sem orðið hefur fyrir alvarlegu tjóni.
Vegna þessa tjóns og umr. um það og það ástand sem orðið hefur vegna þessara hamfara, þá tel ég rétt — og ekki aðeins rétt heldur skylt — að nefna það hér og leggja á það áherslu og taka skýrt fram, að íbúar Stokkseyrar voru í miklum vanda áður en þessi ósköp dundu yfir þá. Sá vandi var ekki af neinum venjulegum náttúruhamförum. Það var vandamál atvinnutækjanna í plássinu sem höfðu stöðvast vegna rekstrarörðugleika. Til þess að gera grein fyrir ástæðum þeirra rekstrarörðugleika væri kannske hægt að halda hér langa tölu, en það hefur verið gert af öðrum. Á Stokkseyri var almennt atvinnuleysi, því að langstærsta atvinnutækinu í byggðarlaginu, frystihúsinu, hafði verið lokað vegna mikilla rekstrarerfiðleika fiskvinnslu og hráefnisöflunar. Svo aumt var ástandið orðið, að þeir gátu ekki einu sinni tekið við aflanum af eigin togara, því að fiskvinnslan gat ekki greitt fyrir hráefnið, og afla þessa togara, sem aflað hefur hráefnis fyrir fiskvinnslustöðvar á Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfossi, var landað á Vestfjörðum og alls staðar annars staðar en þarna, vegna þess að frystihúsið var stöðvað. Fólkið var atvinnulaust og það er auðvitað óþolandi að verkafólkið á þessum stað missi sinn helgasta rétt, þ.e.a.s. réttinn til þess að hafa vinnu. Það á sérstaklega við um þennan stað, vegna þess að ég held að óviða á landinu sé eins mikið dugnaðarfólk og þarna, þó sérstaklega hvað þarna eru harðir sjósóknarar, þar sem þeir hafa þurft að sækja sjóinn frá næstum hafnlausri strönd. Þeir, sem hafa komið þarna austur á suðurströndina og séð hvernig er að þurfa að taka þarna land og flytja feng að landi við hafnarskilyrði þar, oft í vondum veðrum, sjá að þarna dugir ekki annað en hafa alveg sérstaka hörkumenn. Þeir hafa einnig sýnt að þeir eru ekki aðeins mjög harðir í sjósókn sinni við þessi erfiðu skilyrði, heldur hafa þeir reynst mjög miklir aflamenn og verið jafnan í fremstu röð í þeim efnum. Ég vil þess vegna, með tilliti til þess sem ég sagði áðan og vísaði há til hæstv. fjmrh., leyfa mér að skora á yfirvöld að taka ekki aðeins þátt í tjóni þeirra vegna flóðsins, heldur líka að greiða myndarlega úr þeim erfiðleikum, sem þeir eiga við að glíma í rekstri atvinnutækja sinna, og gera það strax.
Þessir atburðir allir vekja óneitanlega ýmsar spurningar, eins og t, d. þá, hvað hægt sé að gera til þess að koma í veg fyrir að bátar þeirra stórskemmist hvað eftir annað í miklum flóðum. Og það er ekki aðeins í mestu flóðum sem þeir verða fyrir slíku tjóni, heldur skeður þetta alloft. Það eru ekki nema tvö ár liðin frá því að þarna varð nokkurt tjón og þá meira á Eyrarbakka. En vandamál þessara byggðarlaga, ekki aðeins þessi vandamál, heldur einnig þau sem snerta fiskvinnsluna og alla aðstöðu til atvinnurekstrar. verða miklu auðleystari og ég vil leyfa mér að fullyrða að þau geta leysts með því að ráðist verði í það verkefni að koma á brú yfir Ölfusá hjá Óseyrarnesi. Sannleikurinn er sá, að þessi brú er auðvitað skyld öðrum þeim brúm sem lagðar eru yfir ár til þess að greiða fyrir almennri umferð, meira að segja skyld þeirri stóru og miklu brú sem nú er í smiðum uppi í Borgarfirði. En þetta er ekki aðeins slík brú. Þetta er brú sem jafngildir hafnargerð og það ekki á einum stað, heldur tveimur. Miðað við það verð, sem gefið var upp og áætlað var hvað þessi brú kostaði á sínum tíma, tel ég að þarna sé um hina ódýrustu hafnarframkvæmd að ræða sem um getur.
Vegna þess að ég hef minnst á þetta vil ég enn einu sinni skora á viðkomandi hæstv. ráðh., hæstv. samgrh., að reyna að ýta þessu máli áfram. Hann hefur sýnt því nokkurn skilning, en við keyrum nú ekki á skilningnum yfir ána þótt nauðsynlegur sé að sjálfsögðu. Við Sunnlendingar leggjum á það áherslu, að hann komi hér í ræðustól á hv. Alþ. og gefi yfirlýsingu um að hann ætli að hafa þetta verk næsta stórverkefni í brúaframkvæmdum í landinu og það eigi ekki að dragast þangað til hann hefur lokið við að mála sína fallegu, stóru og miklu Borgarfjarðarbrú. Ég vil alls ekki draga úr því, að það sé nauðsynlegt verk líka, síður en svo. En þessi vandamál, sem við höfum hér minnst á, eru úr sögunni um leið og brúin er komin. Þá geta Stokkseyringar og Eyrbekkingar haft sín skip í Þorlákshöfn, sem er sem betur fer orðin allgóð höfn, eins góð og búast mátti við á þessum stað, og geta notað hana til þess að landa og eiga þá ekki eftir að keyra 100 km fram og til baka með afla og afurðir eins og þeir hafa þurft að gera mörg undanfarin ár, því að sannleikurinn er sá, að þeir hafa þurft að aka með allan aflann, sumpart á mjög vondum vegum, um 50 km leið aðra leiðina, og það meira en 3/4 af öllum sínum afla.
Herra forseti. Ég get þá látið lokið því að tala um þessa brtt., þetta ástand sem ég minntist á þar á eftir, en ég tel nauðsynlegt að segja örfá orð um aðra brtt. sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 283 ásamt hv. þm. Benedikt Gröndal og Karvel Pálmasyni. Sú till. er svo hljóðandi:
„Við 4. gr. Landhelgisgæsla 20 Laun.
Fyrir „311 millj. 225 þús. kemur 864 millj. 814 þús.“
Nú er það auðséð þeim sem les þessa línu í brtt. minni, að niðurstöðutalan er lægri en í frv. Mætti því halda að ég væri að leggja til að þessi liður lækkaði, þar sem 864 millj. eru enn lægri en 911, hvernig svo sem það verður í framtíðinni. En þannig stendur á þessu, það er sú einfalda skýring, að lagt hefur verið til í brtt. frá hv. fjvn. að Albert verði lagður niður, hann verði felldur niður úr fjárlagafrv. Þetta þótti mönnum að vísu misgott, því að hann hefur komið að þó nokkru gagni þótt lítill sé. Hins vegar er hann náttúrlega orðinn allaldraður, ef má segja svo, og ekki í því standi eða þeirri æfingu sem hann var í við þau skilyrði þegar hann þótti góður til þessa brúks, Eru nú gerðar miklu meiri kröfur en í þá daga, enda landhelgin stækkuð út í miklu umfangsmeiri mörk en áður var. En með því að rekstri Alberts verði hætt hlýtur að sparast talsvert af því fé sem í hann fór. Ég hef leitað mér upplýsinga og hef fengið upplýsingar um að launaliðurinn, sem Albert snerti, hafi verið 76 millj. 411 þús. kr. Þar með hlýtur kostnaður við hann að dragast frá heildarniðurstöðutölunni. Síðan legg ég til, að teknar verði inn 30 millj. til þess að greiða varðskipsmönnum 10% launauppbót. Þessa 10% launauppbót hafa varðskipsmenn haft síðan í sept. 1972. Hún átti hins vegar ekki að standa lengur en út nóvembermánuð s.l. Það á sem sagt að taka af þeim þessa 10% launauppbót, sem er áhættuþóknun.
Nú er það svo, að varðskipsmenn taka kaup eins og aðrir farmenn. Þeir gera sína samninga auðvitað um leið og þeir. Það voru gerðir samningar við þá 1. ágúst nú á þessu ári og þá höfðu þeir þessi 10%. En núna, mörgum mánuðum eftir að samningar eru gerðir, er ákveðið að taka af þeim þessa launauppbót. Kannske má segja sem svo, að þeir séu ekki eins harkalega í eldlínunni og var meðan á svokölluðum þorskastríðum stóð. En ég vil vekja athygli á því, að þeir eru með þessu settir skör lægra en aðrir farmenn, því að þegar venjulegir farmenn á venjulegum farskipum flytja hættuleg efni, eins og olíu, bensín, sprengiefni og annað þess konar, þá fá þeir áhættuþóknun ofan á kaup sitt. En skyldu varðskipsmenn ekki vera með býsna hættulega farma stundum? Þeir eru alltaf með sprengiefni um borð, sprengikúlur, bensín fyrir þyrlur, svo að nokkuð sé nefnt, auk þess sem varðskipsmenn stunda miklu hættulegri störf en almennir farmenn gera. Það má hverjum manni vera ljóst. Ekki þarf annað en að lesa upp þau verkefni eða einhvern hluta af þeim verkefnum sem varðskipsmenn hafa með höndum samkv. lögum sem voru sett árið 1967 um Landhelgisgæslu Íslands. Þar segir m.a., að þeir skuli hafa með höndum almenna löggæslu á hafinu umhverfis Ísland jafnt innan sem utan landhelgi, veita hjálp við björgun manna úr sjávarháska eða á landi svo og annast aðkallandi sjúkraflutninga og bjarga bátum og aðstoða báta eða skip sem kunna að vera strönduð eða eiga í erfiðleikum á sjó við Ísland. Skyldi það ekki vera býsna miklu hættulegra en að sigla í rólegheitum á lokuðu fragtskipi í strandsiglingum frá Íslandi til Evrópu? Svona mætti auðvitað lengi telja. Þeir hafa einnig það hlutverk að veita afskekktum stöðum og byggðarlögum hjálp. Þeir flytja nauðsynjar og alls kyns hluti út í vita landsins við hættulegar aðstæður. Og einn liðurinn er svo hljóðandi, sem ég leyfi mér að lesa orðréttan, með leyfi forseta: „Að tilkynna, fjarlægja eða gera skaðlaus reköld, tundurdufl, sprengjur eða aðra hluti, sem sjófarendum eða almenningi getur stafað hætta af“ og „aðstoða við framkvæmd almannavarna, almennrar löggæslu, lækna-, toll- og vitaþjónustu“ o.s.frv. Verkefnin eru hér talin miklu fleiri, en auðséð er af þessari upptalningu, þó að hún sé ekki lengri, að þeir stunda hættuleg störf, miklu hættulegri en farmenn almennt hafa með höndum. Ég vil endurtaka það, að þegar farmenn flytja hættulega vöru, eins og varðskipsmenn eru alltaf með um borð í sínum skipum, þá fá þeir áhættuþóknun, þessa áhættuþóknun á að taka af varðskipsmönnum nú. Mér finnst það algerlega ástæðulaust.
Ég hef hér í höndum plögg um alla sögu þessa máls, en ég lofaði að hafa þetta mál stutt og vil ekki tefja tímann með því að lesa það allt saman upp. Ég vil þó leyfa mér — með leyfi forseta — að lesa hér örfá orð úr þessari grg. Þar segir frá því, þegar þeir fengu þessa uppbót fyrst 5. sept. 1972. Lokagrein hennar er svo hljóðandi, með leyfi forseta: „Þessi launagreiðsla hefur haldist síðan. En 26. ágúst s.l. barst fjármálastjóra Skipaútgerðar ríkisins bréf frá dómsmrn. þess efnis, að margnefnd 10% launauppbót skuli felld niður frá 1. ágúst 1977.“ Það var mánuði eftir að þeir skrifuðu undir nýja kjarasamninga. Hefðu þeir nú ekki átt að fá að vita þetta fyrr, svo að þeir gætu tekið mið af því þegar þeir gerðu sína samninga? Þarna er farið aftan að mönnum og aftan að hlutunum líka, og finnst mér satt að segja ekki gott framtak af mönnum að leggja sig í lima við að fara aftan að hlutunum. 6. sept. barst síðan forstjóra Landhelgisgæslunnar annað bréf frá dómsmrn. þess efnis, að 10% launauppbótin skuli haldast til loka nóvembermánaðar, og færð rök fyrir því, að þá renni út samningar við Vestur-Þjóðverja. Og þá segir hér: „Má vera að ráðh. finnist þá fullgreidd þau störf sem starfsmenn Landhelgisgæslunnar unnu við útfærslu landhelginnar í 200 mílur. En starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa alltaf litið á þessa greiðslu sem viðurkenningu á sérstöðu þeirra í starfi.“
Herra forseti. Ég vil aðeins að lokum segja það, að hér er ekki farið af sanngirni með launakjör varðskipsmanna, vegna þess að þeir eru þarna verr settir en aðrir farmenn þegar eins stendur á um þann farm sem er í skipi þeirra. Ég vil einnig leggja á það áherslu, að með því að nú er verið að draga úr rekstri hjá Landhelgisgæslunni með því að Leggja niður eitt varðskipanna, þá ætti Landhelgisgæslan að hafa nokkuð rúmt um til að geta tekið þessa upphæð og gæti raunar tekið meira til þess að varðskipsmenn fái þessa sjálfsögðu launauppbót sem þeir hafa haft nú um allmörg ár.