24.10.1977
Neðri deild: 6. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (136)
29. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Oft er því haldið fram af þeim, sem meta lífsþægindin með veraldlegum og peningalegum mælikvarða, að litlu þjóðfélagi sé ofviða að halda uppi lista- og menningarstarfi með þjóðinni. Þessar raddir eru þó í miklum minni hl., þó svo að eðlilegt sé að gætt sé aðhalds og að menn sníði sér stakk eftir vexti á þessum vettvangi eins og annars staðar.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur starfað um árabil. Hún hefur löngum sannað ágæti sitt og er vissulega rós í hnappagat íslensks menningarlífs. Varla verður því um það deilt, að það sé nauðsynlegt að starfsemi hljómsveitarinnar styðjist við lög og að starf hennar sé mótað með þeim hætti betur en nú er.
Ég hygg því að flestir séu sammála um að til lagasetningar þurfi að koma, en ágreiningurinn sé fyrst og fremst um það, hvernig starfsemi hljómsveitarinnar skuli fjármögnuð.
Ég held að það sé ekki andstaða gegn starfsemi hljómsveitarinnar þó að vakin sé athygli á þeim mikla kostnaði, sem hlýst af henni, og ágreiningur komi upp um það, hvernig lögin skuli úr garði gerð. Ég skil því athugasemdir minni hl. þeirrar n., sem undirbjó þetta frv., á þann veg, að þar vilji menn fara að með gát. Og vissulega er það rétt, að í fámennu þjóðfélagi eins og okkar verðum við að gera okkur grein fyrir því, hversu merkilegt og skemmtilegt sem viðfangsefnið er, að við verðum að haga okkur í samræmi við efni og fjárráð þjóðarinnar.
Um leið og ég stend hér upp og lýsi stuðningi mínum við það, að lög séu sett um starfsemi hljómsveitarinnar, vil ég fagna því, að gert er ráð fyrir breytingu hvað snertir fjármögnun Sinfóníuhljómsveitarinnar á þann veg, að nú er ætlunin að fleiri sveitarfélög en Reykjavíkurborg ein taki þátt í kostnaði af hljómsveitinni. Það gefur auga leið að starfsemi hljómsveitarinnar, sem fram fer hér í Reykjavík, er í þágu fleiri en Reykvíkinga einna. Hljómleikana sækir væntanlega fólk af öllu þéttbýlinu og vonandi af öllu landinu. En vegna staðsetningar hljómleikanna má gera ráð fyrir því, að það sé auðveldara fyrir fólk héðan úr nágrannasveitarfélögunum að sækja þá, og því ekki óeðlilegt að viðkomandi sveitarfélög taki þátt í kostnaði við starfsemi hljómsveitarinnar. Ég fagna því þessari tillögu.
Ég vek athygli á því, að nú sem áður er gert ráð fyrir að Ríkisútvarpið taki þátt í kostnaði og rekstri hljómsveitarinnar, og er gert ráð fyrir því í frv., að hlutur útvarpsins sé 28%. Þetta eru veruleg fjárútlát fyrir Ríkisútvarpið, sem ég geri ráð fyrir að sú stofnun sjái í sjálfu sér ekki eftir, en er engu að síður nokkur baggi á þeirri stofnun. Og ég vil trúa því, að um leið og þetta frv. er tekið til athugunar séu jafnframt fjármál Ríkisútvarpsins tekin til endurskoðunar og tryggt að þeirri stofnun sé þetta ekki ofvaxið og að áfram sé nokkurt svigrúm hjá Ríkisútvarpinu til að halda uppi menningarstarfsemi þess þrátt fyrir lagasetningu um að 28% kostnaðar komi frá Ríkisútvarpinu.
Ég vil ekki að svo stöddu tjá mig eitt eða neitt um það, hvort það skuli bundið í lögum hversu margir fastráðnir hljóðfæraleikarar starfi hjá hljómsveitinni. Það má athuga vel, og ég tek undir það með síðasta ræðumanni, að það er í sjálfu sér ekki atriði sem fjvn. á að vera að taka ákvarðanir um. Slíkt hlýtur að vera utan verkahrings fjvn., að taka ákvörðun um hvort þeir séu 65 eða einum færri eða fleiri sem starfa hjá hljómsveitinni. Enda skil ég þessa athugasemd og þennan fyrirvara minni hl. n. á þann veg, að það sé verið að benda á að það þurfi að gæta hófs og gæta aðhalds þegar teknar eru ákvarðanir um hljómsveitina nú á næstunni.
Ég minni að lokum á, herra forseti, að hér í þinginu hefur lengi velkst án afgreiðslu frv. til l. um Þjóðleikhúsið, og þar sem hér er gert ráð fyrir því, að um samstarf sé að ræða milli þessara tveggja stofnana, þá tel ég nauðsynlegt og mjög áríðandi að það frv. fái afgreiðslu, um leið og þetta frv. er tekið til meðferðar, og reynt sé að hafa náið og gott samstarf þannig að þeir starfsmenn hljómsveitarinnar, sem fastráðnir verða í framtíðinni, komi að gagni og nýtist vel fyrir báðar þessar merku menningarstofnanir.