24.10.1977
Neðri deild: 6. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (137)
29. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður um þetta mál. Ég vil þó fyrst segja það, að mér þykir það galli á þessari umr., að hv. þm. Pálmi Jónsson, sem skrifar undir með fyrirvara varðandi þetta frv. og er einn af þeim mönnum, sem í n. voru, skuli ekki geta verið viðstaddur þegar umr, fer fram, eða öllu heldur að málið skyldi verða tekið fyrir að honum fjarstöddum. Það hefði vissulega verið æskilegra að hann hefði átt þess kost að gera hér grein fyrir viðhorfum sínum og þeirra félaga sem skrifa undir fylgiskjal II á bls. 11 í þessu frv. En nóg um það.
Ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar, að það sé sjálfsagt mál að það verði ákveðið við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni, hversu miklum fjármunum verði varíð til rekstrar Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ég geri það á svipuðum grundvelli og ég hygg að hv. þm. Pálmi Jónsson og Örn Marinósson, sem skrifa undir þetta fskj., hafi geri. Ég er sem sagt á töluvert öndverðum meiði við skoðun hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasonar. Ég hygg nefnilega að það sé hægt að reka allmyndarlega sinfóníuhljómsveit þó að það sé gert með tiltölulega fáum einstaklingum. Nú hef ég að sjálfsögðu ekki mikla menntun til að dæma um slíkt, aðrir mér færari þar um, en eigi að síður er ég þeirrar skoðunar að það sé hægt að standa myndarlega að verki í flutningi hljómlistar þó að tiltölulega fáir einstaklingar séu þar með. Að vísu reynir þá meira á hvern einstakling og menn fá þá þeim mun frekar að spreyta sig á því, hversu getan er í raun og veru mikil hjá hverjum og einum. Við þurfum líka á því að halda, að hver og einn einstaklingur fái að spreyta sig, fái útrás, ekki síður á sviði lista en á öðrum sviðum í okkar þjóðfélagi. Ég segi þetta ekki á nokkurn hátt vegna þess að ég sé andvígur rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, síður en svo. Hér er um mikið menningarfyrirtæki að ræða.
En þá kem ég að því sem hv. þm. Jónas Árnason gerði fyrst og fremst að umtalsefni áðan. Það er ekki oft sem það kemur fyrir, að hv. þm. tala á þann veg að það liggur við að maður tárist af hrifningu. En það vildi nú svo til með þennan hv. þm, að hann talaði í þeim dúr. Hér er auðvitað á ferðinni alveg þaulkunnugur einstaklingur í þessum efnum, að því er varðar listir almennt, og ég er þess vegna ekkert hissa á því, þó að hans ræða væri með slíkum ágætum eins og raunbar vitni.
Ég tek fyllilega undir það, að það þurfi að stuðla að menningarlífi á þessu sviði í sambandi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og almennt menningarlíf í landinu. En ég tek undir það, sem hv. þm. Jónas Árnason sagði, að við mismunum herfilega í sambandi við stuðning ríkisvaldsins við listir. Hann bar hér saman tölur, sem hugsanlega mundu verða á fjárlögum ársins 1978 annars vegar til rekstrar Sinfóníuhljómsveitarinnar og hins vegar til leiklistar í landinu, annarrar en t.d. í Þjóðleikhússins og þeirra sem eru með fasta styrki. Hér er geysilega mikill munur á upphæðum til þessara listgreina. Og það er því miður með sinfóníuhljómsveitina eins og Þjóðleikhúsið, að starfsemi þessara aðila hefur haft a.m.k. og mér sýnist allt benda til þess að hún kunni að hafa í næstu framtíð fyrst og fremst áhrif hér á þéttbýlissvæðinu. Það er, að ég held orðið miklu minna um það t.d., að Þjóðleikhúsið fari í leikferðalög út á landsbyggðina, heldur en var á tímabili. Það er orðið miklu meira um það, að stórir hópar fólks úti á landsbyggðinni þurfi að taka sig upp með ærnum kostnaði til þess að fá að njóta þessarar listar hér í Þjóðleikhúsinu, sem landsmenn almennt standa undir að er starfrækt. Og sama er að segja um sinfóníuhljómsveitina, bað er tiltölulega afmarkað svæði hér á þéttbýlinu sunnanlands sem hún þjónar fyrst og fremst. Menn segja kannske: Það er útvarpað frá hljómleikum í Ríkisútvarpinu. En það er alls ekki nóg, ekki að mínu viti. Það er ekkert sambærilegt að heyra flutning hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands í gegnum Ríkisútvarpið eða geta verið í hljómleikasalnum á þeim tíma sem hljómleikarnir standa yfir. Það er æðimikill munur á þessu. Það er æðimikill munur á því líka að heyra leikrit flutt í gegnum útvarp eða geta verið í sal þar sem leikritið er flutt. Mér kemur því í hug, meðan ekki eru til þess aðstæður að þessar tvær menningarstofnanir landsins geti verið meira úti á á meðal fólksins á landsbyggðinni, hvort það sé í raun og veru gersamlega útilokað t.d. að sjónvarpa frá hljómleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað slagið. Ég hef enga trú á því, að það séu svo miklir annmarkar í þeim efnum að það eigi ekki að vera framkvæmanlegt. Ég minnist þess að vísu, að fyrir nokkrum árum, líklega 2–3 árum, spurðist ég fyrir um það hér á Alþ., hvers vegna ekki væri sjónvarpað frá leiksýningum t.d. í Þjóðleikhúsinu. Hæstv. menntmrh. upplýsti okkur um það, að á því væru svo miklir tæknilegir annmarkar að slíkt væri í raun og veru óframkvæmanlegt. Ég er ekki trúaður á að þetta sé svo. Ég held að það hljóti með nútímatækni að vera hægt að sjónvarpa bæði frá leiksýningum í Þjóðleikhúsinu og eins frá hljómleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þannig að þessi ágæta list berist eins vel og hægt er til þess fólks sem hennar vill njóta. Og það væri vissulega þess virði, að það væru athugaðir í því möguleikar og það gaumgæfilega, hvað það er í raun og veru tæknilega séð sem talið er koma í veg fyrir að hægt sé að sjónvarpa í þessum tilfellum beint.
Ég tek sem sagt undir það, að vissulega þarf af ríkisins hálfu að standa dyggilega við bakið á þessari menningarstarfsemi. En það má ekki gera það á þann hátt að það verði á kostnað annarra lista. Ég get alveg tekið undir það, sem hv. þm. Ingvar Gíslason sagði um að stuðningur af hálfu ríkisins við listastarfsemi þyrfti að vera miklu meiri en hann er, og hann þarf verulega að aukast, sá styrkur sem hefur verið veittur til almennrar leiklistarstarfsemi í landinu. Hún er vel þess virði, sú starfsemi sem þar er innt af hendi, að vel sé við bakið á henni stutt.
Um það, sem hv. þm. Ingvar Gíslason kom hér inn á líka, að það færi í raun og veru allt á annan endann hér ef væri farið að tala um listir hér á hinu háa Alþ., ekkert annað væri talið sjálfsagt hér en daglegt þref um kaup og kjör, þá veit ég ekki til þess, að það hafi nokkurn tíma staðið á alþm. almennt að ræða um listir. Þessum hv. þm. er í lófa lagið hvenær sem er að koma á framfæri umbótum í þessum efnum, ef hann telur að hér sé illa að verki verið.
Hv. þm. Ingvar Gíslason sagði líka, að hann teldi fáránlegt að fjvn. ákvæði tölu hljómsveitarmanna. Ég er ekki sömu skoðunar í þessum efnum. Ég tel það eðlilegt. Ég tel að það sé eðlilegt, að fjvn. ákveði hverju sinni við gerð fjárl. hversu miklum fjármunum verði þarna varið og þá um leið hversu margir einstaklingar skipi sinfóníuhljómsveitina. Ég held að þetta sé ekki fyrir utan verkahring fjvn., síður en svo. Ég held að það færi miklu betur á því, að fjvn. gerði meira að því að fylgjast með hvernig fjármunum er í raun og veru varið í þeim tilvikum sem hún er að ákvarða og Alþ. að ákvarða fjárveitingar til hinna ýmsu verkefna. Ég held að það sé miklu meiri þörf á að auka þetta heldur en að draga úr.
Ég vil svo að lokum aðeins ítreka það, að ég er þeirrar skoðunar, að það eigi ekki að ákveða í lögum tölu hljómsveitarmanna, það eigi að vera háð ákvörðun fjvn. og Alþ. við gerð hverra fjárl, hversu miklum fjármunum er varíð til þessara hluta.