20.12.1977
Efri deild: 50. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (1372)

138. mál, löndun á loðnu til bræðslu

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haldið fund og fjallað um málið, 138. mál, um breyt. á l. nr. 97 27, des. 1973, með seinni breyt. frá 31. des, 1974, um löndun á loðnu til bræðslu. Hv. sjútvn. Nd. kvartaði undan því að hafa lítinn tíma til að athuga málið. Ég hygg að þessi n. geti sagt það sama eða jafnvel tekið ákveðnara til orða. N. ákvað þó að verða við tilmælum hæstv. sjútvrh. að afgreiða málið þótt fram kæmu hjá nm, ákveðnar óánægjuraddir með slíka málsmeðferð. Ég held að ég hafi orðið að segja öll þau ár, sem ég hef verið á þingi fyrir jólin, að slík meðferð mála er algjörlega óþolandi.

Meiri hl. n. hefur sem sagt samþ. að mæla með samþykkt frv. eins og það er komið frá Nd. með þeim breyt. sem þar hafa á orðið. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Ingiberg Hannesson, en Jón Árm. Héðinsson og Stefán Jónsson tóku ekki þátt í afgreiðslu þess eða m.ö.o. sátu hjá við afgreiðslu málsins.