20.12.1977
Efri deild: 50. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)

132. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1978

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég skal leitast við að lengja ekki þessar umr. Sú grein frv. til I. sem á dagskrá er og mestum deilum hefur valdið er 3. gr., er kveður annars vegar á um það, að lífeyrissjóðum sé skylt að verðtryggja 40% af ráðstöfunarfé sínu með kaupum á verðtryggðum bréfum frá stofnlána- og fjárfestingarlánasjóðum, og hins vegar er ákvæði í þessari lagagrein um það, hvernig andvirðinu er fellur í hlut fjmrn. eða ríkissjóðs, skuli skipt, þ.e.a.s. á milli Byggingarsjóðs annars vegar og Framkvæmdasjóðs eða atvinnuvegasjóðanna hins vegar.

Hvað fyrra atriðið snertir, þá hefur hér komið fram, að það er eðlileg krafa af hálfu ríkisvaldsins að sjóðirnir séu ávaxtaðir með þeim hætti sem forsvaranlegur er. Þessum sjóðum er ætlað ákveðið hlutverk. Þeim er veitt lagavernd. Það er rétt, sem kom hér fram í máli 12. þm. Reykv., að lög gilda um þessa sjóði og því er ekki óeðlilegt að ávöxtun þeirra sé að einhverju háð lagaákvæðum. Ég vil líka láta það koma hér fram, að það getur engan veginn verið ríkisvaldinu óviðkomandi hvort og hvernig þessir sjóðir eru færir að gegna hlutverki sínu, að greiða meðlimum sínum lífeyri þegar starfsferli þeirra er lokið, hvort sem það er vegna aldurs eða heilsubrests.

Okkur er kunnugt um það, alþm., að því lakar settir sem lífeyrissjóðsfélagar eru þegar starfsferli er lokið, því hærri kröfur eru gerðar til ríkisins og ríkissjóðs. Og ríkissjóður getur ekki hlaupið í skarð, sem myndast hefur vegna þess að lífeyrissjóðirnir eru ekki þess umkomnir að greiða sæmilegan lífeyri, með öðrum hætti en að skattleggja alla landsmenn, einstaklinga og atvinnureksturinn í landinu. Þannig er það mikil skammsýni af fulltrúum launþega og atvinnurekenda að gera sér ekki grein fyrir þessum tilgangi laganna, og trúi ég ekki öðru en þeir muni gera það þegar þeir hugleiða málin betur.

Ég nefni og, eins og hér hefur komið fram, þann mismun sem er á réttarstöðu manna eftir því hvort þeir eru starfsmenn hins opinbera og félagar í verðtryggðum eða óverðtryggðum sjóðum. Við erum hér að fjalla um frv. til fjárl., þar sem gert er ráð fyrir því að úr ríkissjóði séu greiddir beint til þess að bæta fjárvöntun lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna 2 milljarðar kr. sem við leggjum á sem skatt á alla landsmenn. Með aukinni verðtryggingu, með betri ávöxtun lífeyrissjóðanna almennt í landinu og þ. á m. lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna minnka þessar fjárskuldbindingar og þegar tímar líða fram er unnt að lækka skattheimtuna í kjölfarið. Þessu hygg ég að við ættum að geta gert okkur grein fyrir.

Áður en ég skil við fyrra atriðið vil ég aðeins láta það koma hér fram að samkv. orðanna hljóðan í lagagreininni hvílir sú skylda á lífeyrissjóðum að verja a.m.k. 40% af ráðstöfunarfé sínu í kaup á verðtryggðum skuldabréfum frá stofnlána- og fjárfestingarlánasjóðum. Síðan verður það samningsatriði af hálfu ríkisvaldsins að hve miklu leyti skuldabréf ríkissjóðs eða Framkvæmdasjóðs eða Byggingarsjóðs verða keypt. Það er samningsatriði milli ríkisvaldsins, hins opinbera, annars vegar og sjóðanna, þannig að kvöðin, skyldan sem lögð er á lífeyrissjóðina í landinu byggist á ávöxtun þeirra með vissum hætti, sem gerð er til þess að auðvelda þeim að ná tilgangi sínum með starfsemi sinni.

Hitt atriðið snertir skiptingu fjármagnsins er ríkissjóður fær með sölu á ríkisskuldabréfum, ýmist Byggingarsjóðsbréfum eða Framkvæmdasjóðsbréfum, hvernig andvirðinu verður varið og skipt á milli Byggingarsjóðs og atvinnuvegasjóðanna. Ef við eigum að hafa stjórn á fjárfestingunni í landinu verður þessi skipting að vera í samræmi við þá lánsfjáráætlun sem ríkisstj. hefur lagt fram. Þar er gert ráð fyrir, eins og áður hefur komið fram, að fjárfesting til atvinnuveganna sé minnkuð um 2–3%, en aukin til húsbygginga um 6%. Í þessu felst ekki takmörkun á íbúðabyggingum í landinu, heldur býst ég fremur við þeirri gagnrýni, að gert sé ráð fyrir magnaukningu í íbúðabyggingum, en magnminnkun í fjárfestingu atvinnuveganna.

Ég vil svo aðeins að lokum láta það koma fram, vegna þess að bréf formanna samtaka verslunarinnar til mín, dagsett 20. des., var lesið upp á Alþ. án þess að í eintaki því, sem mér er sent, sé þess getið að aðrir hafi það undir höndum, — ég geri engar athugasemdir við það út af fyrir sig, — en það hefði af sendanda hálfu verið kurteisi að geta þess, að samrit hafi verið sent o.s.frv. En látum það kyrrt liggja, enda aukaatriði. En að gefnu tilefni þessa bréfs kom mér mjög ókunnuglega fyrir sjónir það sem sagt er þar um viðskipti sjóðanna við Seðlabanka Íslands og viðskrh. því hef ég spurt bankastjóra Seðlabanka Íslands, dr. Jóhannes Nordal, hvort það sé á rökum byggt sem í bréfinu segir um viðskiptin við Seðlabankann og samskipti sjóðanna við Seðlabankann, og sömuleiðis hef ég innt viðskrh. eftir hinu sama. Og það verður að segjast eins og er, að það fór eins fyrir þeim og mér, að þeir könnuðust ekki við það sem í þessu bréfi segir um samskipti sjóðanna við Seðlabankann eða viðskrh. Ég vonast til þess, að ég hafi tækifæri til að ræða við þessa ágætu formenn verslunarsamtakanna og ganga úr skugga um, hvað þeir eiga við með þessu bréfi, og leiðrétta þann misskilning sem sýnist bersýnilega vera hér á ferðinni.

Aðalatriðið í þessu máli er að við erum að takmarka fjárfestinguna í landinu við innlendan sparnað. Við erum að koma í veg fyrir að erlendar lántökur aukist fram yfir það sem svarar til afborgana af erlendum lánum og bættrar gjaldeyrisstöðu. Það meginmarkmið næst ekki nema með samþykkt þessara laga.