21.12.1977
Neðri deild: 46. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)
Þingfrestun
Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):
Þar sem þetta er seinasti fundur hv. þd. fyrir jól vil ég þakka hv. þdm. fyrir ágætt samstarf við mig það sem af er þessu þingi og ég vil þakka þeim þolinmæði við mig sem þingdeildarforsets. Jafnframt þakka ég skrifstofustjóra Alþingis, starfsliði þess öllu og þingfréttamönnum ágæt störf. Ég óska hv. þdm., skrifstofustjóra og starfsliði, svo og þingfréttamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þeim, sem fara um langan veg til heimila sinna, óska ég góðrar heimferðar, og ég læt í ljós þá von, að við hittumst hér öll heil til starfa á Alþingi á hinu nýja ári.