21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1707 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)
137. mál, frestun á fundum Alþingis
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Varðandi ummæli síðasta ræðumanns, hv. 5. þm. Vestf., vil ég aðeins láta það koma fram, að þáltill. sem nú er til umr., var útbýtt fyrr en ég ætlaðist til, þannig að ekki varð úr því formlega samráði sem hv. þm. kvartaði yfir að hefði ekki átt sér stað, Í því efni vil ég þó aðeins láta það koma fram, að venju samkv. var ekki um margar dagsetningar að ræða þegar ákveða skyldi hvenær Alþ. skyldi koma aftur saman. Ég hygg að engum hv. alþm. hafi dottið í hug dagsetning fyrr en um miðjan janúarmánuð og engum hv, alþm. hafi dottið í hug dagsetning seinna en um mánaðamótin jan.– febr., þannig að við erum hér að deila um keisarans skegg. Raunar vil ég ekki telja hér um deilur að ræða. Menn verða e.t.v. að finna sér eitthvert ágreiningsefni og þetta er þá eins gott og hvað annað.
Ég vil vísa því á bug, að ríkisstj. hafi ekki verið tilbúin hvenær sem er að ræða efnahagsmálin almennt. Stjórnarandstaðan getur óskað eftir því, að ákveðin mál séu tekin til meðferðar hér á þingi, bæði með flutningi till. svo og með því að óska eftir skýrslum og grg. Þess vegna er það vanræksla stjórnarandstöðunnar sjálfrar sem um er að kenna, ef hér hafa ekki verið almennar efnahagsumr. En það eru nú ekki liðnir nema um það bil tveir mánuðir og tæplega það síðan ég flutti stefnuræðu mína fyrir hönd ríkisstj. og þá fóru að vissu marki fram almennar efnahagsumr. Og í raun má segja að í mörgum þeim málum, sem Alþ. hefur haft til meðferðar, hafi farið fram almennar umr, um efnahagsmál.
Ég held að of mikið sé úr því gert, hvaða vald ríkisstj, hafi varðandi útgáfu brbrl., eftir því hvort um formlega frestun á fundum Alþ. með samþykki Alþ. sjálfs er að ræða eða ekki. En víkjum því efni til hliðar, Ég lýsi því hér yfir, að ríkisstj. mun að sjálfsögðu, ef nauðsyn krefur, gefa út brbrl. Heimild ríkisstj. til útgáfu brbl. er bundin í stjórnarskránni við það, að um brýna nauðsyn sé að ræða, og innan þess ramma mun ríkisstj. beita því valdi sínu, Ríkisstj, mun að sjálfsögðu hafa samráð við þá aðila sem málið skiptir í það og það sinnið, en fyrir fram get ég ekki gefið neinar yfirlýsingar sem ég á e.t.v. á hættu að verði síðan metnar sem loforð eða fyrirheit, því að sú krafa, sem hér hefur verið sett fram um ótilgreinda aðila, getur verið svo víðtæk að ekki sé unnt að fullnægja henni.
Ég vil líka benda á það, að mér finnst í máli stjórnarandstæðinga felast ákveðin traustsyfirlýsing á ríkisstj. Um leið og þeir mála vandann mjög dökkum litum, þá er eins og vandinn verði í raun og veru leystur að mánuði liðnum, ríkisstj. verði svo snögg í snúningum, að þegar þing komi saman aftur, þá sé vandinn leystur og Alþ. hafi ekkert að gera og verði að horfast í augu við gerðan hlut. Ég skal hvorki draga úr lýsingum stjórnarandstæðinga á alvöru vandans né telja hann meiri en hér hefur verið tíundað, en ég held samt sem áður að lengri tíma taki að fjalla um þessi mál en ríkisstj. hefur í þinghléi, þótt þinghléið muni af ríkisstj. hálfu verða notað til þess vissulega. Og það er ekki svo, að þessir þrír hv. formenn stjórnarandstöðuflokkanna á þingi þurfi að kvarta yfir atvinnuleysi eða aðgerðaleysi í þinghléinu eða afskiptaleysi af vandamálum þjóðfélagsins. Þeir eiga allir sæti í svokallaðri verðbólgunefnd sem einmitt er ætlað að starfa áfram á næstu vikum og ljúka störfum í næsta mánuði, þannig að þeir munu þar hafa tækifæri til að leggja á ráðin hvernig eigi að snúast við þeim vandamálum sem þeir nefndu að væru fyrir hendi.
Það er spurt, hverjar hugmyndir ríkisstj. um lausn á vandamálunum séu. Ég hygg að það sé allt of langt mál til þess að hefja það hér að greina frá helstu hugmyndum sem fram hafa komið í umr. innan ríkisstj, um þessi efni. Þess vegna hef ég ekki máls á því. En hitt vil ég láta koma fram, að hv. þm. og hv. formenn stjórnarandstöðuflokka hljóta að gera sér grein fyrir því, að lausn á vandamálunum fæst ekki með því að gengið verði algerlega að kröfum hvers og eins hagsmunahóps í þjóðfélaginu. Það er ekki unnt að leysa vandamálin með þeim hætti. Ég hygg að allir hv. þm. geri sér grein fyrir því, að okkar hlutverk er að taka umkvartanir, ábendingar einstakra hagsmunahópa og stétta til gaumgæfilegrar meðferðar og síðan að leitast við að fella þessar kröfur og ábendingar að þjóðarhagsmunum í heild. Með því móti einu verður vandi þjóðarinnar leystur.
Ég veit að hv. 2. þm. Austurl., Lúðvík Jósepsson, gerir sér t.d. grein fyrir að það er ekki einfalt mál að fella niður söluskatt af kjötvörum, eins og hann gat um áðan. Við höfum vitnisburð annars hv, þm., hv. 3. landsk, þm., Magnúsar T. Ólafssonar, um það, að þegar hv 2. þm. Austurl. var í ríkisstj. var ekki að athuguðu máli talið unnt að koma þessu í framkvæmd, Ég veit líka að ég á ekki að skilja hv. 2. þm. Austurl. þannig, þegar hann talar um stöðvun alls fiskiskipaflotans upp úr áramótunum, að hann sé að hóta því fyrir hönd sjávarútvegsins að svo muni fara. En það er athyglisvert, að hann er sá fyrsti sem nefnir það á nafn. Enginn formælenda sjávarútvegsins hefur enn sem komið er rætt nm þann möguleika. En ég ítreka og endurtek: Ég ætla ekki hv. 2. þm. Austurl. það, að hann rói undir slíkum hugmyndum, Þetta segi ég sem dæmi um það, að hér er hvorki staður né stund til að ræða almennt um þessi vandamál sem við okkur blasa.
Ég vil þó láta það koma fram, að hv. Alþ. og ríkisstj. hafa fjallað um þessi vandamál við afgreiðslu fjárl. og umfjöllun lánsfjáráætlunar. Afgreiðsla fjári. og lánsfjáráætlunar er forsenda þess, að unnt verði að taka á öðrum vandamálum. Á þessum sviðum, sviðum fjármála ríkisins og peningamála hefur Alþ. og ríkisstj. einkum vald til þess að marka stefnuna og ákveða í hvaða farveg þróun eigi helst að falla. Það er þess vegna ekki svo, að hv. Alþ. hafi ekki fjallað um þessi vandamál. Kom það t.d. gleggst fram í ræðu hv. 9. þm. Reykv., þegar hann taldi að fjárfestingarmál væru einu af grundvallarþáttum í lausn þess vanda sem við blasti. Það er einmitt stefnumörkun í þeim efnum sem við höfum fjallað um undanfarið, það er um heildarfjárfestinguna í landinu, það er um fjármögnun þeirrar fjárfestingar og þá stefnumótun ríkisstj., að eigi skuli aukið við erlendar lántökur umfram það sem þörf er á erlendum lántökum til afhorgana af eldri skuldum og til að bæta gjaldeyrisstöðuna. Um allt þetta höfum við rætt, og við munum nú í þinghléi hver um sig og á mismunandi sviðum hafa tækifæri til þess, hv. þm., að gera okkur grein fyrir vandamálum atvinnuveganna sérstaklega.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að unnt er að ætlast til þess, bæði af þm. stjórnarflokkanna og þm. stjórnarandstöðuflokkanna, að málin verði hér til meðferðar að loknu þinghléi, að svo miklu leyti sem atbeina Alþ. er þörf stjórnskipulega séð. Ég held að sá ótti sé algerlega ástæðulaus, að búið verði að leysa öll vandamál að mánuði liðnum eða hv. þm, horfist aðeins í augu við gerðan hlut án þess að fá nokkru ráðið um breytingar.