21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (1421)

1. mál, fjárlög 1978

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Till. sú, er hér um ræðir, er þess háttar að gjarnan hefði ég viljað greiða henni atkv. Hún er borin fram af þm. Sjálfstfl. þrátt fyrir það þótt fulltrúar flokksins í menntmn. hafi tekið ábyrgð á till. á þskj. 260. Hv. þm., tillögumaður, nýtur þeirrar sérstöðu að vera í yfirlýstri ósátt í flokki sínum. Nú hafa fulltrúar Alþb., er starfa í n. þeirri, skilað till. sinni um listamennina 12 á þskj. 260 og bera ábyrgð á þeirri till. Og þar sem ég sit nú í sátt í flokki mínum, sem ber að mínu viti ábyrgð á till. á þskj. 260, þá segi ég nei.