24.10.1977
Neðri deild: 7. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (143)
46. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna
Fram. (Ólafur G. Einarsson):
Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað frv., eins og fram kemur á þskj. 49, og mælir n. einróma með samþykkt frv. Hæstv. forsrh. mælti fyrr í dag fyrir þessu frv. og er ekki ástæða til að fara mörgum fleiri orðum um málið en hann gerði og fram koma í grg.
Breytingin frá gildandi lögum felst í 1. gr. frv., þar sem 2. mgr. er ný og fjallar um heimild til að fresta dómsuppkvaðningu Kjaradóms fram yfir 1. nóv., en til þess tíma gildir núverandi samningur milli BHM og ríkisins. Ósk um slíka frestun skal koma fram með minnst tveggja vikna fyrirvara, en í ákvæði til bráðabirgða í frv. er Kjaradómi heimilt að fresta dómsuppkvaðningu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. frv. um tveggja vikna frestinn.
Breytingin í 2. gr. frv., þ.e. breyting á 1. mgr. 17. gr. laganna, felst í því, að Kjaradómur kveði upp dóm eigi síðar en mánuði eftir lok uppsagnarfrests, og síðan kemur nýmælið: „eða gerð aðalkjarasamnings, hvort sem síðar reynist“.
Fleiri orð þarf ég ekki að hafa um málið, en ég ítreka orð hæstv. forsrh. að nauðsynlegt sé að afgreiða þetta frv. í dag.