21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1432)
1. mál, fjárlög 1978
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Það er yfirlýst stefna meiri hl, fjvn. og hæstv. ríkisstj. að gætt skuli aðhalds um opinberar framkvæmdir á næsta ári. Það hefur leitt til þess, að ekki hefur verið hægt að verða við öllum ýtrustu kröfum sveitarfélaga og opinberra stofnana um auknar fjárveitingar og framkvæmdir. Þetta á einnig við um Reykjavík. Ég hef fullreynt í fjvn., að ekki er hægt að ná fram hærri fjárveitingu að þessu sinni til þessara verkefna en till. n. gera ráð fyrir. Ég vek athygli á því, að þessar till. fela í sér a.m.k, jafnmikla hækkun og allar till. sem fjvn, flytur sameiginlega, að frádregnum óhjákvæmilegum leiðréttingum. Úr því að ekki koma fram lækkunartill. á móti þessum hækkunartill., þá segi ég nei.