21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)

1. mál, fjárlög 1978

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Þegar hv. 3. þm. Reykv. mælti fyrir brtt. þessari lét hann þess getið, að hún væri shlj. till.

Orkuráðs til fjárlagagerðar fyrir árið 1978, og tók jafnframt fram, að ég hefði verið hvatamaður að till. þessari sem formaður Orkuráðs. Þetta er rétt. Tillögugerð Orkuráðs mótaðist ekki síst af því, að gert var ráð fyrir verulegum fjárhæðum til styrkingar rafdreifikerfis í sveitum og til hitaveituframkvæmda. Hér er um mikilvæg verkefni að ræða, sem Orkusjóður hefur þó fyrst látið til sín taka á árinu 1977 eða í ár. Þannig hafði Orkusjóður ekkert fjármagn til ráðstöfunar í þessar þarfir þegar hv. 3. þm. Reykv. var æðsti maður orkumála í landinu. Ekki væni ég samt hv. 3. þm. Reykv. um að hann hafi verið áhugalaus um mál þessi þegar hann var ráðh. Sjálfsagt hafa verið takmörk fyrir því, hvað framkvæmanlegt var. Enn er slíkum takmörkunum fyrir að fara, þó að mikill munur sé á því að gera ekki neitt í málinu og því sem fjárlagafrv. gerir nú ráð fyrir til framkvæmda við styrkingu rafdreifikerfis í sveitum og til hitaveituframkvæmda. Gerir það gæfumuninn, og segi ég því nei.