21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (1440)

1. mál, fjárlög 1978

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég tel skýrslur, sem lagðar hafa verið fram um þessi húsakaup, sýna að umrætt hús sé afar óhentugt sem skrifstotuhúsnæði og kostnaður við breytingar og lagfæringar muni verða óhemjulegur. Skynsamlegra virðist því að leysa húsnæðismál menntmrn. með öðrum hætti. Með hliðsjón af þessu og með tilliti til stöðu ríkissjóðs í dag tel ég þessa fjárfestingu ótímabæra og greiði því ekki atkv.