21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
1. mál, fjárlög 1978
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Í trúnaðarskýrslu um svonefnt Víðishús segir, að allir gluggar, lagnir og einangrun séu að verulegu leyti ónýt. Augljóst er því, að miklu rökréttara er að reisa nýtt hús yfir menntmrn. Kaupin eru því fjarstæða og byggð á hættulegum grunni. Um þau má því segja:
Nú er bókað báknið kjurt,
bættur stuðningskassinn,
æskuvonin borin burt
og bótlúinn er rassinn.
Samtryggingin ríður ei við einteyming. Ég segi já.