24.01.1978
Sameinað þing: 38. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1469)

331. mál, landshafnir

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 107 er fsp. frá hv. 9. landsk. um landshafnir. Ég leyfi mér að vona að hæstv. forseti hafi ekki við það að athuga, þó að út frá réttu formi sé brugðið og ég víki aðeins að upphafi landshafna, áður en ég svara fsp., og tel mig hafa það leyfi, ef ekki verður aths. við það gerð af hæstv. forseta.

Áður en þessari spurningu er svarað er rétt að rekja í stuttu máli forsögu landshafnanna, en þær eru nú 3 af 70 höfnum alls sem til hafna er hægt að telja. Þessar þrjár landshafnir eru Keflavík Njarðvík, Rif á Snæfellsnesi og Þorlákshöfn. Gildandi lög um þær eru nr. 23/1955 um landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi, nr. 31/1951, um landshöfn í Rifi á Snæfellsnesi, og nr. 61/1966, um landshöfn í Þorlákshöfn. Lögin um landshöfn í Keflavík og Njarðvík voru upphaflega sett árið 1946 og landshafnahugmyndin er þannig meira en 30 ára gömul.

Þegar lögin um landshöfn í Keflavík — Njarðvík voru samþykkt voru höfuðrökin fyrir því, að engin lokuð fiskihöfn væri til á Reykjanesi, þaðan væri hins vegar allskammt á góð fiskimið og þangað sækti fjöldi aðkomubáta, ekki væri hægt að ætlast til að eitt sveitarfélag stæði þannig undir hafnargerðarkostnaði að verulegu leyti við höfn sem þjónaði fleiri stöðum. Það kom og til. að á þessum tímum greiddi ríkissjóður minna til almennrar hafnargerðar en nú er, eða um 40%, samkv. lögum sem samþykkt voru sama ár og fyrstu landshafnalögin, en áður hafði ríkissjóðsframlagið verið enn lægra. Hugmyndin um landshöfn við sunnanverðan Faxaflóa var þó í raun og veru eldri og mun fyrst hafa verið rædd á Alþ. 1938 eða 1939. Hún var ekki heldur einskorðuð við þennan landshluta einan, heldur komu einnig fram till. um og eftir 1945 um landshöfn á Snæfellsnesi, Þórshöfn og Höfn í Hornafirði. Þær till. náðu ekki fram að ganga. Sýnir það að þm. voru nokkuð hikandi við að fara þessa leið. Voru hugmyndir um landshafnir á Þórshöfn og Höfn í Hornafirði þar með úr sögunni. Hins vegar var frv, um landshöfn í Rifi samþykkt á Alþ. 1951 og að miklu leyti með svipuðum rökum og áður um Keflavík-Njarðvík. Frv. til I. um landshöfn í Þorlákshöfn kom svo fram á 86. löggjafarþingi, 1965–1966, og var samþ. þá. Rökin voru að nokkru leyti hin sömu og áður, en þó að hluta til önnur og skal það ekki rakið frekar.

Á aðalfundi Hafnasambands sveitarfélaga fyrir rúmlega einu ári var þetta mál mikið til umr. og skorað á yfirvöld að endurskoða lög um landshafnir með það fyrir augum að afnema þau og láta almennu hafnalögin gilda um landshafnirnar sem aðrar hafnir. Hefur málið síðan verið til gaumgæfilegrar athugunar í samgrn. Hins vegar eru á því ýmsar hliðar sem gera það að verkum, að ekki er hægt að svara spurningum hv, alþm. einfaldlega með jái eða neii. Hins vegar get ég fullvissað hv. alþm. um að könnun rn. verður haldið áfram og niðurstaða hennar verður gerð kunn þegar hún liggur fullkomlega fyrir.

Með þessum hætti tel ég mig hafa svarað 1. lið þessarar fsp. frá hv. 9. landsk. Ég geri ekki ráð fyrir, að frv. til breytinga á þessum lögum verði lagt fram á þessu þingi.

2. liður fsp. er: „Hver hafa verið framlög ríkisins til hinna þriggja landshafna frá upphafi?“ Því er til að svara, að bein framlög ríkissjóðs til landshafnanna þriggja hafa samtals numið rúmlega 1649 millj. kr. Þar af er langmest til Þorlákshafnar, 1386 millj. kr. Auk þess hefur ríkissjóður greitt afborganir og vexti af lánum til landshafnanna. Nema þær greiðslur samtals 711 millj, kr. Nema þá framlög ríkissjóðs til landshafnanna alls 2 milljörðum 360 millj. kr. eða sem nærst 600–700 millj. kr. umfram það, sem væri, ef þessar framkvæmdir nytu 75% framlags eins og almennar hafnarframkvæmdir. Þessar tölur eru miðaðar við s.l. áramót, en þá námu skuldir landshafnanna til langs tíma 128 millj. kr. að nafnverði, en það jafngildir með vísitöluuppfærslu 387 millj. kr., einnig miðað við síðustu áramót.

3. liður fsp. er: „Hver hafa verið, á sama tíma, framlög ríkisins til almennra hafna á landinu?“ Upplýsingar um þetta atriði er að sjálfsögðu að finna í árlegum ríkisreikningum. Hef ég ekki séð ástæðu til að láta vinna þær tölur upp, enda vandséð hvernig þær snerta kjarnann í þessari fsp., sem fram kemur í fyrstu spurningunni. Um svar við þessari spurningu vísast því til ríkisreikninga þessi tímabil sem um er spurt. Ég sé því ekki ástæðu til að hafa þetta svar mitt lengra.