24.01.1978
Sameinað þing: 38. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (1481)

333. mál, starfsemi Hafrannsóknarstofnunar

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Svar við fyrsta lið fsp. hv. fyrirspyrjanda er að kaupverð Baldurs var 324120 654 kr.

Í sambandi við b-lið er sama svar og var við 5. og 6. lið í fsp. Péturs Sigurðssonar. Ég sé ekki ástæðu til að vera að endurtaka það.

Svar við c-lið: Skipið fór til viðgerðar í Hafnarfirði 4. jan. 1977 og var afhent sjútvn. 24 maí s.l. Síðan hefur það legið í Hafnarfjarðarhöfn. Það er ekki fyrr en eftir þann tíma, að Hafrannsóknastofnunin sendi frá sér tillögur um breytingar á skipinu — tillögur sem mér fannst fela í sér mjög háa upphæð. Ég taldi rétt í samráði við ráðuneytisstjóra og deildarstjóra í rn. að láta þessar tillögur fara til sérfræðinga, og það varð að ráði hjá okkur að velja fyrirtækið Skipatækni hf., sem fór yfir þessar tillögur allar.

Svar við d-lið: Útlagður kostnaður við skipið síðan 24. maí nemur 6.6 millj. kr., sem eru aðallega laun vélstjóra, vaktmanna og ýmis launatengd gjöld. Auk þess liggja fyrir reikningar vegna hafnargjalda frá 1. júní til 1. des. að upphæð 689 þús. kr. Ósamið var um greiðslu þeirra fyrir áramót, en þá var ég tilbúinn með þetta svar þó að það hafi ekki komist hér til umr. fyrr.

Í sambandi við e-lið fsp. verða aðalverkefni þessa skips á árinu 1918 eftirfarandi: Botnfiskaleit og veiðitilraunir: karfi, ufsi, grálúða, langhali, gulllax og auk þess kolmunni. Veiðarfæratilraunir, t.d. áhrif möskvastærðar, prófanir á ýmsum hleragerðum o.fl., almennar fiskirannsóknir, einkum á þorskfiskum og framangreindum tegundum. Nákvæm áætlun um starfsemi skipsins átti að vera tilbúin um áramót, en er ekki. Hins vegar, eins og kom fram í svari við fyrri fsp., er búist við því að viðgerðaráætlun standist og skipið verði tilbúíð um miðjan maímánuð.

Ég fyrir mitt leyti er ekki fær um að svara því, hvort það hefði mátt gera við vindur skipsins, en þær reyndust vera í ólagi. Það var talið af þessum trúnaðarmönnum, skipaverkfræðingum, að heppilegt væri að verða við tillögum þeirra hafrannsóknamanna að skipta um spil. Hins vegar varð nokkur breyting til kostnaðarauka við það, að ákveðin var viðbygging við brú til að mæta íbúðarþörf fiskifræðinga og rannsóknarmanna svo og rannsóknarstofu. Upphaflega var ráðgert að leysa þessa þörf með því að minnka nokkuð íbúðir stýrimanna og vélstjóra. En stéttarfélögum þessara manna barst fljótt vitneskja um þessa ráðagerð og mótmæltu þeir mjög ákveðið því, að verið væri að minnka íbúðir manna á þessu skipi umfram það sem væri á almennum togurum. Og félögin komu þeim skilaboðum á framfæri, að ef úr þessu yrði mundi það verða illa séð af þeim og jafnvel geta orðið til þess að neitað yrði að skrá á skipið þegar þar að kæmi. Þegar ég frétti þetta óskaði ég eftir því, að þessi áætlun yrði tekin sérstaklega til meðferðar. Í fyrstu áætlun, sem gerð var um kostnað við þessar breytingar í maímánuði s.l., var áætlað að fyrirhuguð breyting á íbúðum mundi kosta 3,5 millj. kr., en viðbótarrýmið 10.5 millj. kr. eða 7 millj. kr. meira. Miðað við verðlag í nóv. má ætla að sambærilegar tölur hafi verið: viðbótarrými rúmar 14 millj. og breyting íbúða tæpar 4.7 millj., mismunur um 9.4 millj. kr. Getur svo hver og einn gert það upp við sig, hvort heppilegra hefði verið að fara fyrri leiðina og eiga — ekki á hættu, heldur vísan ófrið og erfiðleika í samskiptum við stéttarfélög yfirmanna, eða að leggja í þennan aukna kostnað sem óneitanlega er talsverður, en hefur þó óhjákvæmilega í för með sér betri aðbúnað skipverja og rannsóknarmanna og betri aðstöðu til rannsóknarstarfsemi um borð í skipinu.

Að lokum vil ég aðeins minna á það, að þegar þetta skip var keypt á sinum tíma að ráði og með meðmælum Hafrannsóknastofnunarinnar, þá gerðu menn það sér ljóst og sömuleiðis við í rn., að það þyrfti að gera á því allverulegar breytingar, sem þá var ekki ráðist í vegna þess að Landhelgisgæslan tók skipið — að vísu með fullkomnu samþykki sjútvrn. — vegna þarfar fyrir það við að verja íslenska landhelgi. Þess vegna eru auðvitað þessar viðgerðir og þessar tölur miklu hærri en ella hefði orðið. Fjármagnið til að standa straum af þessu er tekið að láni að verulegu leyti, en þó hefur Fiskimálasjóður styrkt nokkuð, m.a. með að mig minnir 10 millj, kr. á fyrra ári og 10 millj. kr. styrk á þessu ári, en ca. 170 millj, kr, lán hefur verið tekið hjá Seðlabanka Íslands, sem auðvitað kemur til greiðslu eftir því sem um er samið á fjárl., eins og hv. fyrirspyrjandi gat réttilega til um.