25.01.1978
Neðri deild: 47. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)
134. mál, lífeyrissjóður sjómanna
Flm. (Pétur Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Skömmu fyrir þinglok síðasta þings var samþ. hér á hv. þingi þál. um endurskoðun lánareglna Lífeyrissjóðs sjómanna.
Till. þessi, sem flutt var af hv. þm. Geir Gunnarssyni, hv. 11. landsk. þm., hlaut fljóta og góða afgreiðslu hér í þinginu, en með leyfi forseta hljóðar þál. á þessa leið:
„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að reglum Lífeyrissjóðs sjómanna um úthlutun íbúðarlána verði breytt á þann veg varðandi lánsupphæðir, verðtryggingu o.fl., að þær verði ekki óhagstæðari en um er að ræða hjá lífeyrissjóðum í Sambandi almennra lífeyrissjóða.“
Sá munur, sem er á gildandi lögum um Lífeyrissjóð sjómanna og þeim reglum sem gilda hjá hinum almennu sjóðum, er sá, að í lögum um Lífeyrissjóð sjómanna er þess krafist, að íbúðarlán séu með fyrsta veðrétti sé ekki um ríkisábyrgð að ræða. En hins vegar eru hinir almennu lífeyrissjóðir með ákvæði um það, að verðtrygging íbúðarlána megi nema allt að 50% af matsverði eignar, brunabótamati eða sérstöku mati. Það, sem lagt er til í því frv. sem hér er til umr., er að breyta ákvæðum þessara laga á þann veg að rýmka þau og flytja þau í átt til þess sem gildir nú hjá hinum almennu lífeyrissjóðum. Að sjálfsögðu verður hagsmuna sjóðsins gætt til fullnustu og ekki síður að mínu mati. Þetta mun hins vegar greiða fyrir því, að aðilar sjóðsins, sem eiga þann rétt sem hefur skapast 11iá lífeyrissjóðum, sem hafa umframfé til lána til félagsmanna sinna og reyndar nú orðið til annarra einnig, það mun flýta fyrir og veita þeim aukið hagræði í viðskiptum sínum við sjóðinn.
Hins vegar mætti tala lengra mál um aðrar breytingar sem gera þyrfti á lögunum um þennan sjóð, en það skal ekki gert nú, heldur mál þetta einangrað til þess að því megi flýta ef hv. þd. sýnist að þetta mál eigi fram að ganga. En það skal tekið fram, að um þessar breytingar er fullt samkomulag í stjórn sjóðsins og frv. er flutt að ósk nokkurra stjórnarmanna.
Það eru, eins og ég tók fram, æskilegar fleiri breytingar ekki aðeins á lögunum, heldur og reglugerð þessa sjóðs. En stjórn sjóðsins mun hafa frekari breytingar til athugunar við þá endurskoðun sem stendur yfir um þessi ákvæði.
Ég vil, þegar þessari umr. er lokið, virðulegi forseti, leggja til að málinu verði vísað til félmn. og 2, umr. Ég vænti þess, að það sé félmn. sem fjallar um þetta og skyld mál.