26.01.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (1501)
68. mál, öryggisbúnaður smábáta
Flm. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Á þskj. 77 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um öryggisbúnað smábáta. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að þegar verði settar reglur um öryggisbúnað og eftirlit með opnum smábátum.“
Engar lágmarkskröfur hafa enn verið gerðar af hálfu opinberra aðila um flothæfni og öryggisbúnað þeirra báta sem eru 6 m langir milli stafna eða styttri. Skip og bátar, sem eru ofan þeirra stærðarmarka, eru á hinn bóginn skoðunarskyld samkvæmt lögum um Siglingamálastofnun ríkisins. Bátar af þeirri stærð, sem ekki eru skoðunarskyldir, hafa alla tíð verið notaðir á sjó, ám og vötnum í margvíslegum tilgangi. Lengst af hefur sú notkun verið bundin lífsbaráttu þjóðarinnar bæði á sviði samgangna og varðandi öflun lífsviðurværis. Þessi notkun smábáta er við lýði enn í dag, en að öðru leyti virðist notkun bátanna fara vaxandi hin síðustu ár, ekki síst á þann veg, að þeir eru notaðir sem leiktæki, gjarnan með mjög kraftmiklum vélum. Þannig tíðkast nú stofnun sérstakra siglingaklúbba á vegum ungs fólks þar sem smábátar eru notaðir, og má búast við að slík starfsemi fari vaxandi. Á sama tíma hefur það gerst, að trébátum fer fækkandi, en plastbátar koma í staðinn. Mér hafa sagt reyndir sjómenn, að fullfrískum manni sé naumast bráð hætta búin þótt hann hvolfi undir sér trébát á óstæðu vatni. Því veldur hve auðvelt er að ná taki á bátnum, snúa honum eða a.m.k. komast á kjöl. Þessu virðist nokkuð á annan veg farið með plastbáta. Plastbátar eru þægilegir í notkun. Þeir eru léttir og meðfærilegir, en þeir eru vikir í hreyfingum. hálir þegar þeir blotna og afsleppir ef út af ber. Maður, sem hvolfir undir sér plastbát eða fer útbyrðis af öðrum orsökum, er talinn eiga í nokkrum erfiðleikum með að n.í taki á flughálum og afsleppum borðstokkum platbátsins, en þeir eru sjaldnast til þess laraðir að hægt sé að ná þar öruggum tökum.
Á undanförnum árum hafa orðið hörmuleg slys hvað eftir annað á smábátum bæði á sjó og vötnum. Samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélags Íslands hafa á síðustu 10 árum, eða frá 1968–1977, orðið 38 dauðaslys á óskoðunarskyldum bátum hæði á sjó og vötnum. Þetta er hörmuleg niðurstaða og er ástæða til að leita leiða til að bregðast við þessu betur en gert hefur verið til þessa. Þrátt fyrir þessa tölu, sem nær 4 dauðaslysum á ári að meðaltali, hafa þó margir bjargast og sumir næsta nauðulega þegar óhöpp hafa orðið. Ætla má að slysin hefðu orðið færri og óhöppin ekki eins alvarleg ef meira öryggis hefði verið gætt í búnaði bátanna. Skal þó síður en svo gert litið úr þeim þætti sem lýtur að öryggisbúnaði bátverja sjálfra.
Þessi atriði hafa orðið mörgum ærið umhugsunarefni á undanförnum árum. Þau hafa t.d. hvað eftir annað komið til umræðu á þingum Slysavarnafélags Íslands. Á 17. landsþingi Slysavarnafélagsins var m.a. samþykkt svofelld ályktun:
„17. landsþing Slysavarnafélags Íslands, haldið í Reykjavík 30. apríl — 2. maí 1976, ítrekar fyrri áskoranir sínar til stjórnvalda um setningu sérstakrar reglugerðar fyrir opna smábáta, 6 m og styttri. Þingið telur þetta mál hafa dregist úr hömlu og óskar tafarlausra aðgerða í því.“
Tillögunni fylgdi svofelld greinargerð:
„Á undanförnum árum hafa mörg slys orðið á sjó og vötnum þar sem rekja hefur mátt orsakir þeirra til þess, að öryggi hátanna hefur verið ábótavant, enda af opinberri hálfu engar kröfur gerðar til flothæfni þeirra, traustleika eða búnaðar. Þarf því nauðsynlega að setja reglur þar um. Aukin smábátaeign gerir málið enn brýnna, þannig að vart er sæmandi annað en að settar verði reglur um slíka báta og notkun þeirra, eins og farið er að gera í nágrannalöndum okkar“
Ályktun þessi var samþ, samhljóða.
Í ýmsum tilvikum hefur að þessum málum verið vikið hjá Slysavarnafélagi Íslands í fleiri ályktunum en þessari, m.a. á þá lund að brýna það fyrir stjórnvöldum, hve nauðsynlegt sé að mæla svo fyrir í slíkum reglum, bæði um óskoðunarskylda báta, 6 m og styttri, og jafnvel aðra smærri báta sem notaðir eru á sjó, að þeir séu t.d. málaðir sterkum litum og búnir radarspeglum sem geri auðveldari leit að þeim ef þeir týnast, eins og því miður kemur stundum fyrir.
Með grg. þessarar þáltill. er prentað viðtal sem dagblaðið Tíminn á við Hannes Hafstein framkvæmdastjóra Slysavarnafélags Íslands um þessi mál hinn 23. ágúst s.l. Í þessu viðtali koma fram ýmsar ábendingar Hannesar Hafsteins sem ástæða er til að hafa í huga þegar um þessi mál er rætt og að því kæmi að setja reglugerð um þetta efni. Þar kemur fram m. a, að Hannes Hafstein telur nauðsynlegt að hafa á plastbátum líflínu við báða borðstokka, þannig að auðvelt sé að ná taki á bátunum, einnig að lengri lína sé á bæði borð, sem unnt væri að nota til þess að snúa bátnum eða a.m.k. vega sig upp eftir og komast þannig á kjöl. Þar kemur enn fram það sem fyrr er getíð, hver nauðsyn er að smábátar séu málaðir skærum litum og þeir séu búnir talstöðvum til þess að auðvelda leit að þeim þegar þeir týnast. Þessi atriði eru, að mér sýnist, naumast svo kostnaðarsöm að þau ættu að vera ofviða þeim sem eiga eða nota báta af þessu tagi á óstæðu vatni.
Siglingamálastjóri hefur að undanförnu unnið að því að kynna sér þær reglur, sem gilda á Norðurlöndum um öryggisbúnað og flothæfni skemmtibáta, í því skyni að þær verði uppistaða í sambærilegum reglum hér á landi. Þetta ætti að flýta fyrir því, að mál þetta fái framgang. Ég hygg að siglingamálastjóri hafi unnið þýðingarmikið og gott undirbúningsstarf að setningu reglugerðar sem hér um ræðir. Nauðsynlegt er þó, að þessar reglur nái ekki einvörðungu til skemmtibáta, heldur einnig og ekki síður báta sem notaðir eru í atvinnuskyni og ekki eru skoðunarskyldir. Þýðingarmikið er að reglur af þessu tagi séu ekki þungar í vöfum og ekki of kostnaðarsamar í reynd, eigi þær að verða virkar í framkvæmd.
Í þeim reglum, sem hér er lagt til að settar verði, þurfa að vera ákvæði um framkvæmd þeirra og hvernig eftirliti skuli háttað. Við fyrstu sýn kann að virðast eðlilegt að sá þáttur málsins sé í höndum Siglingamálastofnunar ríkisins. En sé betur að gáð má telja líklegt að af því mundi hljótast óhæfilegur kostnaður. Þess vegna sýnist mér að þurfi a.m.k. að leita að ódýrari lausn. Hugsanlegt virðist að fela almennum löggæslumönnum þetta eftirlit og gera þeim þá jafnframt kleift að beita viðurlögum, jafnvel á þann veg að taka báta í sína vörslu sé fyrirmælum reglugerðar ekki hlýtt. Þessi atriði þurfa öll nánari athugunar við, m.a. viðræðna við lögregluyfirvöld, en að öðru leyti sýnist mér eðlilegt að reglur þessar séu settar í nánu samráði við Slysavarnafélag Íslands og Siglingamálastofnun ríkisins.
Ég legg á það áherslu, að þær kröfur, sem settar verða samkvæmt þessum reglum, mega ekki hafa óhæfilegan kostnað í för með sér fyrir eigendur bátanna. Þess sýnist enda ekki þörf, miðað við þær ábendingar sem fram hafa komið frá framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins. Ég legg einnig áherslu á að framkvæmd þessara reglna og eftirlit má ekki vera þungt í vöfum eða hafa of mikinn kostnað í för með sér, því þá mundi slíkt eftirlit væntanlega bresta. Þess vegna er höfuðnauðsyn að þessar reglur séu sem ódýrastar og leitað sé að þeirri leið til eftirlits með þeim sem er hægust í framkvæmd og kostar minnst fé. Ég tel sjálfsagt að félagar í björgunarsveitum og slysavarnadeildum geti verið hjálplegir við eftirlit með brotum á slíkum reglum, enda þótt ég telji ekki unnt að setja neinar skyldur á herðar þessara félagasamtaka í því skyni.
Ég skal svo, herra forseti, aðeins leggja áherslu á það að síðustu, að ég tel að þetta mál megi ekki dragast. Slys, sem orðið hafa og eru, eins og ég sagði, ærið mörg, ekki bætt. En ef unnt er með tiltölulega einföldum reglum og viðráðanlegum kostnaði að koma í veg fyrir eitthvað af slíkum slysum í framtíðinni tel ég óverjandi að koma ekki slíkum reglum fram.
Ég legg svo til, herra forseti, að að þessum hluta umr. loknum verði umr. frestað og till. vísað til hv. allshn.