26.01.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)

108. mál, rekstrar- og afurðalán til bænda

Flm. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Till. þá, er ég flutti á þingi í fyrra um greiðslu rekstrar- og afurðalána landbúnaðarins beint til bænda, endurflyt ég nú ásamt hv. þm. Jóhanni Hafstein. Till. þessi var í fyrra mikið rædd, bæði innan þings og utan, og voru undirtektir yfirleitt góðar. Margir mæltu með samþykkt till., þ. á m, forustumenn stjórnarandstöðunnar, þeir hv. þm. Lúðvík Jósepsson og Gylfi Þ. Gíslason. Aðrir töldu nauðsyn bera til að megintilgangi till. yrði náð, þeim að bændur fengju fjármuni sína strax í hendur, þótt þeir teldu að annmarkar kynnu að vera á framkvæmdinni. Aftur á móti er mér ekki kunnugt um að neinn maður, hvorki innan þings né utan, hafi opinberlega andmælt þessari till. Þó kom það fram hjá forstjóra Sambands ísl, samvinnufélaga, að rétt væri að grennslast fyrir um það, hvað bændur vildu í þessu efni. Því er ég sammála, enda held ég að aldrei hafi verið spurst fyrir um það, hvort bændur vildu fá fjármuni sína beint eða hvort þeir óskuðu þess, að þeir gengju í gegnum afurðasölu- og verslunarfyrirtæki. Þar hafa aðrir ráðið en þeir.

Hitt er svo annað mál, að þótt aðeins einn bóndi óskaði eftir því að fá fé sitt greitt beint til sín, en ekki til einhverra annarra, þá ætti hann auðvitað að eiga rétt á því. Á sama hátt getur sérhver sá, sem æskir þess að óbreytt fyrirkomulag verði, þ.e.a.s. að fjármunir hans verði greiddir til afurðasölufyrirtækjanna eða verslunarfyrirtækjanna, óskað þess, og þá mundi viðskiptabankinn að sjálfsögðu senda ávísunina þangað, en ekki til eigandans. Um þessa hlið málsins ættu því engar deilur að þurfa að rísa. Hér virðast allir vera sammála, þ.e.a.s. að það sé sjálfsagt mál að bændur sjálfir ráði þessu og þá hver og einn.

Á það hefur verið bent, að veð þurfi að taka í afurðum fyrir afurðalánunum, og sumir virðast álíta að afurðasölufyrirtækin ein geti veðsett sauðfjárafurðirnar. Þannig er því þó ekki varið. Þvert á móti mætti halda því fram, að hæpinn væri sá háttur, sem á er hafður, að afurðasölufyrirtækin veðsetji vöru sem þau eiga ekki. Getur það naumast helgast af öðru en hefð. Það er margyfirlýst af Sambandi ísl. samvinnufélaga, sem telst vera samtök stærstu afurðasöluaðilanna, að allar afurðirnar séu í umboðssölu, þ.e.a.s. að bændur eigi vöruna þar til heildsöluaðilarnir hafa selt hana. Bændur ættu því að geta veðsett vöruna. Erfitt er að andmæla þessum sjónarmiðum SÍS, a.m.k. er fyrirkomulag allt eins og tíðkað er við umboðssölu. Varan er ekki að fullu greidd fyrr en hún hefur verið seld, og þá er reiknaður út kostnaður, og stundum er ekki greitt fullt verð fyrir vöruna þar sem söluaðilum hefur ekki tekist að selja hana fyrir nægilega hátt verð eða kostnaður þeirra hefur verið það mikill að þeir telja sér heimilt að greiða lægra verð en grundvallarverðið.

Þessi mótbára gegn því, að bændur fái fé sitt beint, er því ekki marktæk. En ef einhver vandkvæði kynnu að vera á að breyta um fyrirkomulag af þessum sökum, þá er auðvitað hægurinn hjá að fá sérstaka löggjöf í því efni.

Ljóst ætti að vera hverjum og einum að kjör bænda þurfi að bæta. Kerfið er að keyra þá niður. en ekki athafnaleysi þeirra eða úrræðaleysi. Sjálfir hafa þeir að undanförnu fjallað um þann mikla vanda, sem að landbúnaðinum steðjar, og bent á margháttuð raunhæf úrræði til að bæta hér um. Naumast hefur þó fram að þessu verið nægilega undirstrikað, hve þýðingarmikið er fyrir landbúnaðinn að fá þær greiðslur, er honum ber, sem allra fyrst. Á tímum mikillar verðbólgu, eins og hér hefur geisað árum saman, hefur það að sjálfsögðu grundvallarþýðingu, að bændur fái rekstrar- og afurðalánin eins fljótt og auðið er til eigin afnota, þannig að þeir geti í ríkari mæli rekið bú sín með eigin fjármunum og þurfi ekki að sæta því, að fjármagn þeirra sé skert af verðhækkunum. Ljóst er því, að einhver þýðingarmesta úrbótin fyrir bændastéttina væri sú að rekstrar- og afurðalán hækkuðu og yrðu greidd beint til bændanna, sem þá gætu notað fjármunina á hinn hagkvæmasta hátt. En fjárskortur veldur því tíðum í landbúnaði, eins og raunar í fleiri atvinnugreinum, að hagkvæmustu innkaupum og vinnubrögðum verður ekki við komið. Við fjármögnun landbúnaðarins í heild hygg ég að nauðsynlegt sé að taka mið af þessum sjónarmiðum og stefna markvisst að því að stórauka rekstrarlánin þannig að bændur geti fengið afurðir sínar að fullu greiddar við innlegg á haustnótturn.

Einhverjum kann að finnast þetta ábyrgðarlaust tal í fjármagnsþröng þeirri, sem við búum við, og þensluástandi. En skoðum það nokkru nánar. Er nauðsynlegt að fjármagn það, sem til landbúnaðarins rynni í heild á næstu árum, þyrfti að vera meira en á undanförnum árum, miðað við aðrar atvinnugreinar, þótt þessu markmiði yrði náð á nokkru árabili? Ég held ekki.

Almennt hafa menn nú viðurkennt að fjárfesting í sjávarútvegi megi minnka. Við eigum nú nægilega stóran skipaflota til að taka þann afla sem skynsamlegt og leyfilegt er að veiða. Auðvitað þarf að fylgjast með nýjungum og sinna endurbótum og endurnýjun flotans, og auðvitað þarf að halda áfram uppbyggingu fiskvinnslustöðva og endurbótum á eldri mannvirkjum. En afkastagetuna þarf ekki að auka til muna, einfaldlega vegna þess að hráefnið eykst ekki nema þá á alllöngum tíma. Allir vona að vísu að sigrarnir í landhelgismálinu leiði til þess, að aflamagn muni smám saman aukast, og þá verður að sjálfsögðu að fjárfesta til að nýta það.

Í landbúnaðinum er ástandið ekki óáþekkt. Þar er það raunar markaðurinn, sem er fullnýttur, á sama hátt og hráefnið er í sjávarútvegi. En mér sýnist að við þeim vanda verði að bregðast með svipuðum hætti og vandamálunum sem við sjávarútvegi blasa, þ.e.a.s. að hægja á fjárfestingu, og raunar hafa áhrifamenn í bændastétt bæði í orði og verki sýnt að fram hjá þessari staðreynd verður ekki gengið.

Það fjármagn, sem unnt væri að spara með minni fjárfestingu á næstu árum, mætti auðvitað nota til að styrkja rekstrarstöðu landbúnaðarins. Og það fjármagn yrði í veltunni, en ekki bundið, og notaðist því aftur og aftur, þannig að tiltölulega litill árlegur samdráttur fjárfestingar gæti haft mikla þýðingu fyrir rekstrarstöðuna, ef fjármununum væri varið til að styrkja hana. Þá hefur landbúnaðurinn innan fárra ára í veltunni það fjármagn sem nægja mundi fyrir eðlilegum rekstrar- og afurðalánum. Þannig gæti kostnaður við búreksturinn lækkað og afurðarverð þar með án þess að útheimta aukna hlutdeild í takmörkuðu fjármagni þjóðarinnar.

Gagnrýni sú, sem beinst hefur af afurðasölufyrirtækjunum, hefur ekki einskorðast við það, að greiðslur þeirra til bænda kæmu of seint, heldur hefur einnig verið á það bent, að rekstrarkostnaður þeirra væri of mikill. Hefur einkum verið bent á sláturhúsin og margsinnis verið um það rætt, að sláturkostnaður væri óhæfilega mikill. Út í þá sálma skal ég ekki fara langt nú. En hins vegar vil ég vekja á því athygli, að sáralítið hefur verið rætt um rekstrarkostnað mjólkurbúa. Hygg ég þó að ástæða væri til að skoða hann, ekki síður en kostnaðinn við sláturhúsin. A.m.k. á ég erfitt með að skilja að ekki skuli vera unnt að framleiða osta hér á nokkurn veginn sama verði og erlendis, jafnvel þótt mjólkurframleiðslan sé hér talsvert dýrari en þar, því að annar kostnaður en hráefniskostnaður er auðvitað talsverður, og ekki hafa verið færðar sönnur á að hann þurfi að vera hærri en erlendis. Sumir halda því meira að segja fram, að laun hér séu miklu lægri en í nágrannalöndunum. Ég held, að eðlilegt væri að gera á þessu athugun, og skal enga dóma fella fyrr en hún liggur fyrir.

En þegar um fjármögnun landbúnaðarins almennt er rætt er vert að víkja að því, hve mikilvægur iðnaður úr landbúnaðarafurðum er, og hann þarf að sjálfsögðu að fjármagna og einnig nýjar búgreinar, eins og t.d. fiskræktina, sem smánarlega lítið hefur verið sinnt hér. Á ég þar við fiskrækt sem búgrein.

Þá er það lítið efamál, að byggingarkostnaður gæti lækkað og þar með fjármagnsþörf, ef byggingaframkvæmdir væru betur skipulagðar og staðlaðar, og á það raunar við víðar en í landbúnaði. Byggingarkostnaður nýju sláturhúsanna er auðvitað óhæfilegur, eins og margsinnis hefur verið á bent, og lengra má ekki ganga á þeirri braut.

Niðurstaðan af öllu þessu er sú, að fjármagn það, sem ýmist er þegar bundið í landbúnaði og afurðum landbúnaðarins eða verður veitt til þessara þarfa á næstu árum, megi nýta mun betur, á þessu sviði sé að finna einn meginvandann sem að landbúnaðinum steðjar, aðeins ef menn vilja leita hans. Og vart verður því trúað, að menn vilji ekki leita af ótta við að finna. En samþykkt þessarar þáltill. mundi stuðla að því, að við vandanum yrði hreyft, og þannig leiða til mikilvægs árangurs fyrir landbúnaðinn og þar með þjóðina alla.

Að lokum vil ég aðeins nefna niðurgreiðslurnar og útflutningsuppbæturnar, sem raunar ætti að nægja að nefna útflutningsbætur. Sá háttur er á hafður, að því er þær varðar, að greiða þær til afurðasölufyrirtækja eins og rekstrar- og afurðalánin í flestum tilfellum. Ekki fæ ég séð að minnsta þörf sé á þessu. Úr því að ríkisvaldið ákveður að greiða landbúnaðarvörur niður, fyrst og fremst sem hagstjórnartæki, virðist liggja alveg beint við að greiða eigendum vörunnar þá fjármuni sem þeim ber, en ekki einhverjum öðrum. Ef verðbæta á vöru við útflutning á eigandi hennar líka að fá þær bætur. Afurðirnar eru í umboðssölu, en ekki í eigu afurðasölufyrirtækjanna. Þess vegna getur ekki verið að þau eigi neitt tilkall til niðurgreiðslnanna og útflutningsbótanna. Þær eru hluti af því fé, sem bændur eiga að fá fyrir framleiðsluvöru sina, og eiga því að ganga beint til þeirra, en ekki staðnæmast annars staðar í lengri eða skemmri tíma. Eru það tilmæli mín, að n. sú, sem till. þessa fær til athugunar, athugi hvort samstaða gæti náðst um að láta hana einnig taka til niðurgreiðslnanna og útflutningsbótanna, þannig að bændum væri greitt beint samkv. skýrslum um innlagðar mjólkur- og sláturafurðir.

Þegar máli þessu var fyrst hreyft á þingi í fyrra töldu sumir erfiðleika á framkvæmd þess. Við nánari skoðun kom þó í ljós að svo var ekki. Ég get búist við að nú segi einhverjir að erfiðleikum sé háð að koma niðurgreiðslunum og útflutningsbótunum beint til bænda. Það byggist líka á misskilningi, og nær er mér að halda að kerfið allt yrði einfaldara, ef þessi háttur yrði upp og a.m.k. tekinn, gætu menn þá betur áttað sig á því, hvað um fjármunina verður sem til landbúnaðar eiga að renna.

Margar athyglisverðar hugmyndir hafa komið fram í þeim miklu umr., sem orðið hafa um landbúnaðarmálin, fyrst og fremst af bænda hálfu. Þeir vilja leita vandans til að finna hann. Mig langar að vekja athygli á einni þessara hugmynda. Hana setur fram Halldór Gunnarsson, Holti undir Eyjafjöllum, í grein í Morgunblaðinu 7. jan. s.l., en í hugleiðingum hans segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:

„Styrkur ríkissjóðs við landbúnaðinn mundi í framtíðinni miðast við hlutfall núverandi fjárveitinga Alþ. af fjárl. til niðurgreiðslna og útflutningsuppbóta. Þessi styrkur mundi skoðast í heild til þess viðfangsefnis, að bændur, sem hafa meiri hluta tekna sinna af landbúnaðarframleiðslu, nái sínu lögbundna viðmiðunarkaupi, og jafnframt til þess, að neytendur fái landbúnaðarafurðir á sem hagstæðustu verði.

Til jákvæðrar stjórnunar á framleiðslunni yrði slíkur heildarstyrkur til landbúnaðarins greiddur að verulegum hluta beint til þessara sömu bænda mánaðarlega.“

Þessar hugmyndir eru náskyldar þeim sem ég hef reynt að setja hér fram. Að vísu vil ég ekki nefna greiðslur þær, sem renna eiga til bænda, styrki, því að þær eru það ekki nema þá að litlum hluta. En það er ekki aðalatriðið, heldur hitt, að bændur fái milliliðalaust það fé sem þeim ber. Þegar því marki er náð, hafa bændur unnið mikla sigra sem hafa munu úrslitaáhrif á hag landbúnaðarins. Þessir sigrar eru í sjónmáli og lengur má ekki draga að fylgja málinu fram.

Ég legg til, herra forseti, að till. þessari verði vísað til hv. allshn.